SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Side 43
28. mars 2010 43
A
ð fylgjast með eldgosinu í Eyjafjallajökli und-
anfarna daga hefur verið verulega kynferðislega
örvandi.
Ekki einasta er fyrirbærið eldgos mikið augna-
yndi, þar sem samspil lita og hreyfinga er munúðarfullt lista-
verk, heldur magnar þetta líka upp gredduna í langleiðum
Íslendingum.
Það er eins og hver önnur himnasending að fá svona ólg-
andi dúndurskot inn í drungalega Icesave-tilveruna.
Ekki ósvipað því að skora mark í heimsmeistarakeppni.
Nú er gaman.
Og gott fyrir þrautpínt egóið þegar eitthvað rammíslenskt,
sem lætur ekki hemja sig, brýst út með þessum líka ógnar-
krafti upp um ískaldan jökulinn.
Það má hverjum manni ljóst vera sem hefur orðið vitni að
þessu eldgosi, að þar fær jörðin sjálf langa og góða raðfull-
nægingu.
Við erum að tala um marga daga, kannski vikur.
Enda hefur gremjan safnast fyrir í áratugi, ef ekki árhundr-
uð.
Engin leið að hemja sig endalaust með slíkan undirliggjandi
og sívaxandi þrýsting.
Og skal því engan undra þó Fjallkonan fái organdi orgasma
loksins þegar hún opnast.
Hún er fögur þessi sýn, þegar Fjallkonan fríð, með logandi
skaut undir skautbúningi, sviptir sig klæðum og opinberar
sitt innsta eðli.
Þessi iðandi rauf í jöklinum, hún minnir óneitanlega á
kynfæri konu sem standa í ljósum logum á hápunktinum.
Og heitt er það sem út kemur.
Rauðglóandi saflát.
Og öllum þessum ósköpum fylgja líka dásamlega dýrsleg
og rymjandi hljóð.
Þetta kærkomna og kynferðislega eldgos minnir óneit-
anlega á mannlegt gos:
Kynferðislega fullnægingu.
Þarna birtist það á skjánum í myndrænu formi hvernig
okkur líður þegar við springum út í hæstu hæðum.
Hömlulaus gossprenging í allri sinni dýrð.
Beggja kynja.
Þegar karlmaður fær kröftuglega úr ’onum, getur það
sannarlega verið á við besta eldgos.
Mér er minnisstætt þegar maður nokkur sagði frá því þegar
hann „fékk það upp um alla veggi“, svo mikill var þrýsting-
urinn.
Útlendir karlmenn hafa stundum á orði að ástríða íslenskra
virkra eldfjalla undir jökli sé ekki ósvipuð og íslenskra
kvenna.
Í þeim búi þessar andstæður.
Þær sýni stundum af sér jökulkulda en ekki þurfi mikið til
að bræða þær og sprengja í loft upp.
Þær losi jafnvel um rauðglóandi hraunið inni í sér af slíku
blygðunarleysi að það jaðri við að þeir verði hræddir.
Blessaðir útlendingarnir, þeir eru svo óvanir svona sturl-
uðum eldgosum.
Halda barasta að þau séu hættuleg.
Og það er engin tilviljun að eitt og sama orðið er notað um
hvolpavitið og fyrirbærin í óbyggðunum.
Náttúra.
Ekki einasta er það upplifunin sem er svo áþekk, heldur er
mikil samsvörun í því sjónræna.
Víða um land má sjá kletta sem eru sláandi líkir karl-
mannslimum í fullri reisn.
Og eitt þekki ég gil upp við jökul sem er svo áþekkt konu-
klofi að það hefur fengið nafnið Píkugil.
Gjósandi
fjall(konur)
Stigið í
vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is
Gatan mín
G
uðrún Vilmundardóttir, útgáfustjóri
bókaforlagsins Bjarts og þýðandi, hefur
búið á Mímisvegi síðastliðin fimm ár.
„Þetta er falleg gata með fáum, en
mjög reisulegum húsum,“ segir Guðrún. „Gatan
er stutt og liggur í boga frá Hallgrímskirkju niður
að horni Fjölnisvegar og Barónsstígs. Í þeim fjór-
um húsum sem heyra Mímisveginum til, býr fólk á
öllum aldri og hverfið er almennt lifandi og
skemmtilegt.“
Guðrún segir samskipti milli nágrannanna vera
með miklum ágætum.
„Ég bý í stærsta húsinu við götuna, það mun
raunar vera eitt elsta fjölbýlishús í Reykjavík, og
þar er ljómandi samfélag. Við héldum frábæra
sumarhátíð fyrir alla íbúa á Mímisveginum í okkar
stóra garði, með tilheyrandi grilli og blöðrum og
partítjaldi, en það var reyndar þarsíðasta sumar,
þegar ég hugsa um það, og því er ljóst að slíkar
sumarhátíðir eru „bíennall“ eins og margar aðrar
virðulegar samkomur. “
Aðspurð segir Guðrún að sig hafi aldrei langað
að búa í öðrum bæjarhlutum.
„Ég ólst upp á Haðarstígnum sem er hérna rétt
hjá. Ég hef líka búið á Aragötu og í Brussel og París
en annars hefur þetta verið mitt hverfi og ég er al-
sæl með það. Það er fallegt þægilegt, gamalt og
gróið, stutt í skóla og sund og miðbæinn, og höf-
uðstöðvar Bjarts í Vesturbænum eru í göngufæri.
Sú gönguleið liggur meira að segja í gegnum
miðbæinn, svo það gæti varla betra verið. Þegar
maður man hvað er gaman að ganga og þykist ekki
of önnum kafinn, bregst ekki að á þeirri leið hittir
maður bráðskemmtilegt fólk. Þar að auki á ég
ömmu, mömmu og bróður hérna í næstu húsum,
nú og unaðslegar vinkonur í göngu- ef ekki hrein-
lega kallfæri. Síðast þegar ég flutti, var það um 200
metra, það verður líklega þannig aftur næst,“ seg-
ir Guðrún að lokum.
kristrun@mbl.is
Morgunblaðið/Ernir
Þægilegt, gamalt og gróið
1. Krambúðin er skemmtileg blanda af kaupmanni á
horni og ferðamannasjoppu. Hún er í 450 metra fjar-
lægð frá húsinu mínu. Það hefur verið vísindalega
mælt til þess að stinga upp í unga fólkið á heimilinu
sem lætur stundum eins og þangað sé rúm dagleið,
ef það er beðið um að skjótast.
2. Sundhöllin er næsta heilsulind. Pottarnir á þakinu
eru góðir en dásamleg hönnunin á búningsklefunum
enn betri. Opna skápinn, loka klefa. Loka skápnum,
opna klefa. Frábært.
3. Vitabarinn er hverfisbarinn. Vinkona mín að austan
gerði athugasemd við þessa skilgreiningu um daginn
og taldi hana geta átt við alla bari í miðbænum – en
þá missir hún alveg af hinum fínni blæbrigðum. Maður
á bara einn hverfisbar.
4. Eymundsson Skólavörðustíg er næsta bókabúð.
Bóksalarnir eru sérstaklega elskulegir og gaman að
sjá hvað nýja hlutverkið fer Spron-húsinu vel.
5. Freyjugöturóló er fastur punktur. Hann er einhvern
veginn alltaf eins, jafnvel þótt hann breytist.
Uppáhaldsstaðir
Guðrúnar
Helsta lófatölva heims er Nintendo DS sem til er í nokkrum útgáfum
og á dögunum bættist enn ein við; Nintendo DSi XL.
Þetta er fjórða afbrigðið af Nintendo DS og í raun áþekkt og DSi-
línan, nema að því leyti að hún er með heldur stærri skjá; 4,2" sam-
anborið við 3,25" á hefðbundnu DSi-vélinni. Gefur augaleið að vélin
öll er heldur stærri um sig og þyngri, en að sögn Nintendo-manna
gerir stærri skjárinn það kleift að fjölskyldan geti öll setið við spila-
mennsku, enda sjái fleiri á skjáinn en ella. Annar kostur við stærri
skjá er vitanlega að betra er að lesa texta á skjánum, en einnig er raf-
hlaða hennar stærri og endist betur – nema hvað. arnim@mbl.is
Græjan Nintendo DSi XL
Stóri bróðir DSi
Nintendo DSi XL með 4,2" skjá.