SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Side 48

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Side 48
48 28. mars 2010 E f Snorri Sturluson hefði ekki verið drepinn og fleiri Íslend- ingasögur skrifaðar, værum við þá ekki í betri málum?“ Þessa einlægu spurningu lagði fyrir mig nem- andi á öðru ári í framhaldsskóla. Árgang- urinn hans hafði daginn áður farið um slóðir Egilssögu, rifjað upp atburðarás hennar, sérstöðu Íslendingasagna og af- rek íslenskra sagnritara á 13. öld sem borið hefðu hróður þjóðarinnar um langa vegu. Spurning unglingsins sýnir greinilega að enn eru tengsl milli sjálfsmyndar Ís- lendinga og fornbókmennta okkar og hafi eitthvert ryk sest á þau undanfarna áratugi hafa síðustu atburðir í þjóðlífinu blásið því burt. Í þeim eymdardal sem blasir nú við er gott að horfa um öxl til þess tíma þegar hér voru unnin andleg afrek sem staðist hafa tímans tönn. Svo- lítið rómantískt viðhorf, ekki satt? Í æsku hafði ég alltaf gaman af Íslend- ingasögunum og þótti hálfgert viðundur fyrir bragðið. Þær voru ekki efstar á vin- sældalista unglinga þegar rokkið hélt hingað innreið og hugtakið unglinga- vandamál varð stöðugt háværara. Ekki minnist ég heldur þess að sögurnar væru lesnar fyrr en í menntaskóla og öll um- ræða um þessa bókmenntagrein var svo hátimbruð að fæstir unglingar fundu nokkra samsömun við hana. En viðhorfið hefur greinilega breyst, enda hafa sögurnar verið gerðar aðgengi- legar grunnskólanemendum, sem reyna að ráða í undarlegar persónur svo sem Gretti og Guðrúnu Ósvífursdóttur. Og eftir dágóð kynni af Agli Skallagrímssyni eru nemendur mínir ekki í nokkrum vafa um að hann sé úr smiðju Snorra Sturlu- sonar, sem þeir höfðu áður kynnst með lestri Snorra-Eddu og þótt mikið til koma. Ég hafði ekki á takteinum nógu gáfu- legt svar handa fyrirspyrjanda mínum en þeir sem hrærast í stöðugum ótta um af- drif íslenskrar tungu og menningar geta glaðst yfir því að hvort tveggja vekur að- dáun og heilabrot hjá ungu fólki. Í betri málum? ’ Enn eru tengsl milli sjálfsmyndar Íslend- inga og fornbók- mennta okkar og hafi eitt- hvert ryk sest á þau undanfarna áratugi hafa síðustu atburðir í þjóðlífinu blásið því burt Hefði íslenskri þjóð farnast betur ef Snorri Sturluson hefði ekki verið veginn? Væru styttur af Snorra víðar um land, en ekki bara í Reykholti? Morgunblaðið/Golli Tungutak Guðrún Egilson gudrun@verslo.is Í vikunni kom út ný skáldsaga Ingi- bjargar Hjartardóttur, Hlustarinn, sem er þriðja skáldsaga hennar. Bókin var gefin út í tilefni af Góuhátíð kvenna, en á henni voru ein- mitt afhent Fjöruverðlaunin, bók- menntaverðlaun íslenskra kvenna sem Ingibjörg hefur staðið að í samstarfi við aðrar konur. Ingibjörg segir og að ekki sé tilviljun að bókin hafi komið út á þessum degi, enda hafi ýmsar konur í rithöfundastétt lengi velt því fyrir sér af hverju ekki sé hægt að gefa bækur út á öðrum tíma en í sömu þremur vikunum rétt fyrir jólin. „Þetta er eitt af því sem við höfum rætt um – hvað konur eigi að gera til þess að drukkna ekki í þessu flóði og eins hvort bækur kvenna eigi meiri hættu á að drukkna í þessu flóði en bækur karla.“ Hún segir að þær geti ekki sannað þessa tilgátu, en ef hægt sé að koma því þannig í kring að bækur komi jafnt út allt árið þá fái þær bækur sem koma snemma vors meira pláss í fjölmiðlum en þær hefðu ella fengið, og svo gætu þær samt sem áður tekið þátt í jólabókaflóðinu. „Það má því kannski orða það svo að ég hafi sleppt jólabókaflóðinu en kom núna út með kiljuna.“ Það vantaði kvenfólk í sveitirnar Aðspurð segist Ingibjörg hafa verið að skrifa þessa bók síðastliðin tvö ár, en þrjú ár síðan hugmyndin kviknaði, en hún orðar það svo að hún hafi eiginlega fengið hugmyndina upp í hendurnar. „1949 flutti Búnaðarfélagið á fjórða hundrað Þjóðverja hingað til lands sem ráðnir voru á sveitabæi víða um land, en það var í samningi þeirra að þeir máttu bara vinna á sveitabæjum og ef þeir sóttu í önnur störf, sögðu upp, fóru á síld eða til Reykjavíkur, svo dæmi séu tekin, þá misstu þeir landvistarleyfið. Samningur þeirra gilti í eitt ár, en mátti framlengja í ár til viðbótar, en helmingurinn af kon- unum settist að hér á landi, giftist Ís- lendingum, bóndanum eða bóndasyn- inum eða stráknum á næsta bæ, og bjó hér allar götur síðan. Núorðið heldur fólk að þetta hafi bara verið konur, en það komu líka karlar, þeir voru bara miklu færri. Það vantaði landbún- aðarverkafólk í sveitirnar vegna upp- gangsins í Reykjavík, sérstaklega kven- fólk sem fór suður í vist eða á síldarplönin. Strandferðaskipið Esjan var sent til Hamborgar gagngert til að sækja þetta fólk, sem var ráðið í gegnum ráðning- arskrifstofu í Lübeck, og þegar fólk steig um borð í Esjuna vissi það nákvæmlega á hvaða bæ það ætti að fara, það fékk ekk- ert að ráða sjálft. Konurnar sem settust hér að voru gjarnan kallaðar Esjustelp- urnar. Hlustarinn segir frá Helgu, lögfræðingi í góðri stöðu sem ákveður skyndilega að breyta lífi sínu, hættir sem lögfræðingur, innritar sig í sagnfræði og hyggst þá skrifa BA-ritgerð um þennan innflutning á verkafólki. Hún heldur norður í land að spjalla við einsetukonuna Ursulu, sem alltaf er kölluð Súla, Esjustelpa sem er að verða áttræð, fædd í Lübeck 1928. Fljót- lega eftir komuna norður verður Helga veðurteppt og sá grunur vaknar að erindi hennar sé annað og meira en að safna heimildum. Fyrstu eiginlegu nýbúarnir Ingibjörg segir að ekki séu mjög miklar rannsóknir að baki bókinni, enda hafi hún ætlað sér að skrifa skáldsögu en ekki sagnfræðirit. Hún hafi spjallað við nokkrar af þessum konum, en þær eru ekki margrar á lífi í dag, og svo studdist hún við BA-ritgerð í sagnfræði eftir Pét- ur Eiríksson, sem síðar varð að bókinni „Þýska landnámið“ sem kom út hjá Sögufélaginu 2008. Ingibjörg bendir á að þetta sé fyrsti innflutningur í stórum stíl af verkafólki til Íslands, „fyrstu eiginlegu nýbúarnir frá landsnámsöld“. Að þessu sögðu þá segir hún að sjálf hugmyndin að bókinni hafi eiginlega dottið upp í hendurnar á henni nánast fyrir tilviljun. „Þýski rithöfundurinn Walter Lauf- enberg var meðþýðandi að einni bók minni, Þriðju bóninni, sem kom út á þýsku fyrir tveimur árum, og hann heimsótti okkur hjónin til Íslands norður í Svarfaðardal og þá sögðum við honum Örlagasaga Helgu og Ursulu Bakgrunnur Hlustarans, nýrrar skáldsögu Ingi- bjargar Hjartardóttur, er örlög þýsks landbún- aðarverkafólks sem flutt var hingað til lands í stríðslok og sneri sumt ekki aftur heim. Árni Matthíasson arnim@mbl.is ’ Fyrir tveimur árum fór ég til Indlands og þá kom sagan, þá birtist aðalpersónan í sög- unni hjá mér, einsetukona um áttrætt sem býr á nyrsta odda landsins með hund- inum sínum.“ Lesbók Já, upplýsingaveitur efndu til hug- myndasamkeppninnar Þú átt orðið í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, en samkeppnin snerist um það hvernig best væri hægt að nýta gagnagrunninn Beygingarlýsing ís- lensks nútímamáls sem inniheldur u.þ.b. 270.000 íslensk beygingardæmi. Sam- keppnin var haldin í tilefni af því að ákveðið var að opna fyrir aðgang að gagnagrunninum á Netinu, en stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur umsjón með grunninum og Já styrkir stofnunina til að gera gögnin að- gengileg með þessum hætti. Tuttugu tillögur voru sendar inn í hug- myndasamkeppnina og nýttu allar gagnagrunninn á ýmsa vegu. Best þótti tölvuleikurinn Orðavindan eftir Borgar Þorsteinsson, en leikurinn fer þannig fram að leikmanni er úthlutað sex bók- stöfum sem geta myndað fjölda orð- mynda og markmiðið að finna sem flestar þessara orðmynda áður en tíminn rennur út. Önnur verðlaun hlaut Stefán Ingi Valdimarsson fyrir verkefnið Orðaleit, sem hjálpar notendum við leit að íslensk- um orðum á vefsíðum, þriðju verðlaun Steinar Þór Sturlaugsson fyrir verkefnið Bætt gagnasnið fyrir opna útgáfu gagnagrunnsins og sérstök aukaverð- laun hlaut Tihomir Rangelov fyrir verk- efnið Beygingarlýsing for dummies, en í henni er gerð tilraun til nýrrar beyging- arflokkunar fyrir íslensku. Tölvuleikurinn Orðavindan hlaut fyrstu verðlaun

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.