SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Page 50

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Page 50
50 28. mars 2010 Þ að var sjokkerandi en stórkostlegur heiður um leið að vera valinn flytjandi ársins,“ segir Dav- íð Þór Jónsson píanóleikari. Þessi fjölhæfi tón- listarmaður skaut á dögunum meðal annars Sinfóníuhljómsveit Íslands aftur fyrir sig þegar hann var valinn Tónlistarflytjandi ársins 2009, fyrir „fjölþreifni til hljóðfæra, fjölhæfni í stíltegundum tónlistarinnar og eiginleikann að virðast geta komið fram á mörgum stöð- um í einu,“ eins og segir í umsögn dómnefndar. Davíð Þór segir að vegna þess að hann fáist við svo margt þá megi búast við því að einhverjir taki hann ekki alvarlega sem flytjanda. „Ég er mjög glaðvær maður og tek sjálfan mig ekki mjög alvarlega – en það sem ég geri í tónlistinni geri ég samt af mikill alvöru.“ Ekki er ofsagt að Davíð Þór sé fjölþreifinn í listinni. Á síðustu mánuðum hefur hann til að mynda birst í djass- sveitum á borð við ADHD, í myndlistarverkinu The End ásamt Ragnari Kjartanssyni, á orgeltónleikum, spinn- andi út frá fúgum eftir Bach á sýningu í Listasafni Íslands og sem meðleikari Ólafar Arnalds. Þessi fjölhæfi lista- maður tekur á móti blaðamanni í fyrrverandi húsa- kynnum Hæstaréttar; þar vinnur hann nú að hljóðmynd leikverksins Af ástum manns og hrærivélar eftir Ilmi Stefánsdóttur sem verður frumsýnt í Kassanum í Þjóð- leikhúsinu hinn 20. maí í leikstjórn Vals Freys Ein- arssonar. Í æfingasalnum er vissulega píanó en líka banjó, gítar, ryksuga, steypuhrærivél og önnur raf- magnstæki sem Davíð Þór notar í upptökum. „Við erum búin að smíða nokkrar senur og vorum líka að byrja að taka upp tónlist; hljóðmynd og tónlist leika yfirleitt saman þegar ég vinn með Ilmi og Val,“ segir hann. Davíð Þór er nýlentur á landinu, hann var í Texas þar sem hann kom fram með Ólöfu Arnalds á tónleikum. „Það er mjög gaman að vinna með Ólöfu og að vera ann- ar upptökustjóranna á nýju plötunni hennar, ásamt Kjartani Sveinssyni,“ segir hann. „Tónlistin hennar er gríðarlega persónuleg og viðkvæm, oft mjög brothætt.“ Þegar Davíð Þór er spurður að því hvað tónlistarflytj- andi ársins sé einkum að fást við, þá brosir hann breitt og hellir sér út í að skilgreina þörfina sem býr að baki þessu skapandi hraunflæði. „Þetta er svo ofboðslega sterk þörf. Ég svala þörf minni fyrir að búa til tónlist og skapa, með því að vinna með öðru tónlistarfólki, með leikurum, myndlist- arfólki … Ég er alltaf að æfa og læra nýja tónlist, oft með offorsi, semja eða spinna, og stundum er ég hluti af org- anískri heild annarra. Vissulega gæti ég ákveðið að leika bara á flygil eða orgel, verið bara djasspíanisti; en mér finnast þessar skilgreiningar ekki skipta mig máli. Ég þarf að sinna mörgum litlum Davíðum sem búa innra með mér. Þetta er margþætt starf. Þú spyrð hvað tón- listarflytjandinn sé að gera – hann er að flytja tónlist!“ Stífar vinnubúðir með Bach og flygli Davíð Þór segir tónlistarferilinn hafa hafist á Akranesi þegar hann varð trommuleikari í lúðrasveit í tónlistar- skólanum. Þegar vantaði saxófónleikara fór hann að læra að blása í sax en níu ára gamall hóf hann píanónám. Píanótímarnir urðu strax heilagur tími. „Ég fórnaði öllu fyrir það. Það þótti til dæmis spennandi að fara til Reykjavíkur með foreldrum sínum en ég vildi frekar fara í píanótíma,“ segir hann. „Mér fannst ótrúlega gaman að leika á hljóðfæri og byrjaði fljótlega að spila eftir eyranu. Kennararnir sýndu því skilning og ég vann bæði með skrifaða tónlist og spuna. Það hefur þannig alltaf fylgt mér að geta gert hvort tveggja. Þegar ég var þrettán ára ákvað ég að helga tónlistinni líf mitt. Ég hef aldrei efast um þá ákvörðun. Ég fékk ómetanlegan stuðning heima. Frændi minn hjálpaði pabba að kaupa trommusett sem var barið alla daga, ég spilaði á orgel heima, var í hljómsveitum í skólanum og stjórnaði tónlistarflutningi á hæfileikakeppni og á söng- leikjum í Fjölbrautaskólanum.“ Sautján ára gamall var Davíð Þór farinn að keyra suð- ur á stórsveitaræfingar í Tónlistarskóla FÍH, þar sem hann lék á saxófón. Eðvarð Lárusson gítarleikari hafði kynnt hann fyrir djassinum. Hann lærði bæði á píanó og saxófóninn á Akranesi, lauk mörgum stigum á bæði hljóðfæri, og eftir stúdentspróf lá leið Davíðs Þórs í Tón- listarskóla FÍH þar sem hann lauk 7. stigi á bæði hljóð- færi sama veturinn. Árið eftir var hann kominn til Þrándheims í Noregi sem skiptinemi. „Þá gerðist það!“ segir hann. „Ég gat einbeitt mér að tónlistinni í djass- deildinni í allt að tíu tíma á dag en fyrstu fjóra mánuðina svaf ég á hæðinni með klassísku píanóleikurunum og náði þar í allar nótur sem ég komst í. Ég vissi hvar ég þurfti að taka mig á og hafði næði til þess. Ég fór því í stífar vinnubúðir, einn með flygli í litlu herbergi allan daginn, og fór á útopnu í Bach og fleira. Ég hef þetta allt í mér og reyni að vinna í því með hinu.“ Performans, blús, nikkan – allt jafn mikilvægt Davíð Þór segir að á námsárunum hafi hann lært hvað það sé mikilvægt að kynnast sífellt nýrri tónlist, að leika fyrir annað fólk og einnig að þora að gera mistök. „Maður þarf að henda sér út í djúpu laugina. Þú ræður hvað þú spilar. Þótt þú hafir lært klassíska tónlist þá máttu alveg spila Ain’t Misbehavin’ á Hótel Reykjavík. Það bannar þér enginn neitt í tónlist, hverju þú blandar saman eða hvernig þú spilar verkin. Vissulega er kostur að hafa fyrir því að læra hlutina til fulls, áður en maður fer að gera eitthvað með þá, en það er afstætt hvað hent- ar hverjum og einum. Ég trúi bæði á mikla vinnu, elju og handverk, en líka á að koma alveg ferskur að hljóðfær- inu eftir hvíld frá því. Oft koma mikilvægir og fallegir hlutir út frá „mistökum“. Ég er einfaldlega þannig gerður að ég hef þörf fyrir að fara á ólíka staði í listinni. Að fara í performans í mynd- bandsverki, leika blús á tónleikum á Rósenberg, að leika í Þjóðleikhúsinu í verki sem ég átti upphaflega bara að gera tónlist við, eða spila á harmónikkuballi fyrir eldri borgara. Mér finnst þetta allt jafn mikilvægt. Það er svo fallegt við tónlist hvað hún er óræð, að hún á allsstaðar heima, getur bæði verið falleg og grimm. Ég er ekki hræddur við að festast neins staðar, en mig langar jafn- mikið til að vinna með Ragnari Kjartanssyni, að hljóð- setja abstrakt vídeóverk fyrir Ásdísi Sif Gunnarsdóttur, skoða John Cage, spila Chopin, Bach, Schubert. Ég þarf að semja mína eigin tónlist rétt eins og ég þarf að leika með öðrum. Þetta er eitt langt ferðalag.“ Á dögunum hlaut Davíð Þór sex mánaða starfslaun úr Launasjóði tónskálda. Hann er lukkulegur með það. „Núna finnst mér í raun að ferillinn sé loksins að byrja,“ segir hann sannfærandi. „Ég er tilbúinn að gera nýja plötu. Loksins. Ég gerði plötuna Rask árið 2002 og hef síðan tekið þátt í mörgum verkefnum með öðrum, en nú er kominn tími fyrir mig að halda áfram. Ég talaði um að gera eina plötu – en ætli þær verði ekki bara fimm.“ Davíð Þór segist endalaust þakklátur fyrir að geta starfað við tónlistina. „Ég er þannig verðlaunaður á hverjum degi. Ég ákvað þrettán ára gamall að verða tón- listarmaður; held ég geri þetta fram í rauðan dauðann og eigi aldrei eftir að taka ellilífeyri.“ Tónlist Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Verðlaunaður á hverjum degi „Núna finnst mér í raun að ferillinn sé loksins að byrja,“ segir Davíð Þór Jónsson píanóleikari. Það er merkileg staðhæfing ef mið er tekið af því að á dögunum var hann valinn Tónlistarflytjandi ársins. Davíð Þór er óvenjulega fjölhæfur listamaður, jafnvígur á djass, dægurtónlist og þátttöku í myndlistarverkum. ’ Ég er alltaf að æfa og læra nýja tónlist, oft með offorsi, semja eða spinna, og stundum er ég hluti af organískri heild annarra. Vissulega gæti ég ákveðið að leika bara á flygil eða orgel, verið bara djasspíanisti; en mér finnast þessar skilgreiningar ekki skipta mig máli. Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.