SunnudagsMogginn - 29.08.2010, Side 34
É
g hef alltaf ljósmyndað fólk í sínu daglega lífi,“ segir
Ken Opprann um tildrög þess að hann ákvað að
gera frásögn í máli og myndum af fimm trúar-
brögðum.
„Þegar ég fór fyrst til Indlands árið 1985 tók ég
eftir því, að það var fastur liður í daglegu lífi fólks að sýna ýmsum
guðum virðingu við altari og musteri í vegkantinum. Eftir því
sem árin liðu og ég ferðaðist til ólíkra heimshluta, þá komst ég að
því, að ég hafði ljósmyndað margvíslegar trúarathafnir þegar ég
myndaði fólk. Þá varð ég æ áhugasamari um trúarbrögð: Ég hélt
áfram ferðalögum mínum um heiminn, meðal annars til Ind-
lands, Eþíópíu, Kambódíu, Tíbets, Suður-Afríku og Bandaríkj-
anna, þegar tími gafst til og fjárráð leyfðu. Ég hef varið miklum
tíma í þetta verkefni, en það hefur verið hverrar mínútu virði.“
– Kom þér eitthvað á óvart?
„Eiginlega ekki! Ég er opinn fyrir því að fólki eigi að leyfast að
trúa hverju sem það vill. En varð ég undrandi? Já! Yfir skilyrðis-
lausri aðstoð sem ég fékk frá fjölmörgum einstaklingum af öllum
trúarbrögðum. Þegar ég kom að máli við þá og sagði þeim frá
verkefninu, þá leyfðu þeir mér að ljósmynda sig á mjög persónu-
legum augnablikum. Mér var aldrei neitað og ég hef verið boðinn
í skírnir, brúðkaup, jarðarfarir og aðrar einkaathafnir.“
– Komstu aldrei að lokuðum dyrum?
„Ég mætti engum teljandi vandræðum.“
– Ertu orðinn gagnrýnni á einhverjar hliðar trúarbragða sem
stofnunar í samfélaginu?
„Ég var ákveðinn í einu frá upphafi, að ég ætlaði ekki að breyta
þessu verkefni í pólitíska yfirlýsingu. Hugmyndin var sú, og er
enn, að sýna fólk sem einstaklinga þar sem það biður til guðs
síns, til dæmis í hofum, kirkjum, moskum og sýnagógum og
hvar sem það iðkar sín trúarbrögð.“
– Í hverju felst munurinn á milli þeirra trúarbragða sem þú
fjallar um í bókinni?
„Þetta verkefni snerist um einstaklinga og hvernig þeir tengj-
ast guði sínum. Þess vegna hef ég ekki leitað eftir því, hvernig
þau eru frábrugðin, heldur hvernig þau líkjast og hvernig fólk af
ólíkri menningu og trú hagar trúariðkun sinni.“
– Láta trúarbrögð gott af sér leiða, að þínum dómi?
„Ég get aðeins horft á það út frá einstaklingssjónarmiði. Ég
held að fólk sem leiðist á glapstigu, til dæmis á glæpabraut, en
verður svo trúað og bætir ráð sitt, að þá hafi trúarbrögðin látið
gott af sér leiða fyrir þann einstakling.“
– Og eftir þessa miklu yfirlegu, að hvaða trúarbrögðum hneig-
ist þú?
„Ég tilheyri engum trúarbrögðum.“
pebl@mbl.is
Kristindómur
Fjölmennustu trúarbrögðin, telja
2,1 milljarð. 17. desember ár
hvert safnast tugþúsundir manna
saman í El Rincon í messu til dýrð-
ar San Lazaro, dýrlingi fátækra. El
Rincon, Kúbu árið 1997.
Hindúasiður
Elstur af helstu trúarbrögðum
heims með 3-4000 ára sögu.
Hindúar telja um milljarð og eru
þetta því þriðju fjölmennustu
trúarbrögð veraldar. Hér sést
morgunbæn við ána Hooghly. Kol-
kata, Indlandi árið 2001.
Trúin fest á ljósmynd
Norski ljósmyndarinn
Ken Opprann er hvorki
hindúi, kristinn, mús-
limi, búddisti né gyð-
ingur. En hann hefur fest
á filmu frásögn af þess-
um fimm ólíku trúar-
brögðum. Afraksturinn
er nýkominn út í ljós-
myndabók á vegum for-
lagsins Opnu og verður
sýning á ljósmyndunum
opnuð í Listasafni Akur-
eyrar í dag, laugardag,
undir yfirskriftinni
„Trú“.