Morgunblaðið - 12.02.2010, Side 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
RAFBÓK netverslunarinnar Amazon,
Kindle, nýtur vaxandi vinsælda hér á
landi líkt og annars staðar í veröld-
inni. Tækið fæst ekki hér á landi og
þarf því að flytja það inn. Nokkuð
hefur verið kvartað yfir því við toll-
stjóra að Kindle sé í röngum tollflokki
og ætti að vera með öðrum tölvum.
Tollurinn telur flokkun sína rétta
enda uppfylli tækið ekki skilyrði til að
flokkast með sjálfvirkum gagna-
vinnsluvélum, þ.e. tölvum. Búið er að
kæra tollmeðferðina til tollstjóra.
Tölvunarfræðingurinn Frank Arth-
ur Blöndahl Cassata er einn þeirra
sem telja að Kindle eigi að flokka meðal far- og
lófatölva. Hann bendir á að Kindle sé með ör-
gjörva, innra minni og harðan disk. Á
henni sé lyklaborð auk þess sem hún
er eingöngu notuð til birtingar texta.
Þetta telja starfsmenn tollsins nóg
til að tækið falli í flokk með afspil-
unartækjum. Bók er hlaðið inn í tækið
og hún spiluð, rétt eins og af sjón-
varpi.
Auk þess þurfi tækið að uppfylla
ákveðin skilyrði til að flokkast sem
tölva, s.s. að auðvelt sé að forrita það í
samræmi við óskir notandans, það
geti framkvæmt talnaútreikning sam-
kvæmt ákvörðun notandans og sjálft
sett upp vinnsluforrit sem gerir ráð
fyrir að það geti breytt úrvinnslu
sinni með rökrænni ákvörðun meðan
á vinnslu stendur.
Að öðru leyti er beðið eftir niðurstöðu úr
kærumálum og verður hún leiðbeinandi.
Önnur rafbók tollafgreidd sem bók
Frank greiddi Amazon 35 þúsund krónur fyrir
Kindle. Væri rafbókin flokkuð með tölvum hefði
hann átt að greiða um 10 þúsund krónur í virð-
isaukaskatt. Vegna þess að Kindle er flokkað
sem afspilunartæki greiddi hann hins vegar 25
þúsund krónur í toll, vörugjald og virðisauka-
skatt.
Til að bíta höfuðið af skömminni veit hann
dæmi þess að einstaklingar hafi flutt til landsins
aðra tegund af rafbók, iRex iLiad, og var hún
tollafgreidd sem bók! Það fékkst þó ekki staðfest
hjá tollinum.
Þá er væntanlega stutt í að Apple-aðdáendur
flytji inn nýjustu afurðina, Ipad, sem er spjald-
tölva og mun fjölhæfari en Kindle. Ekki hefur
verið tekin afstaða til tollflokkunnar Ipad en þó
er talið líklegt að hún verði sett í flokk með tölv-
um, enda geti hún keyrt alls kyns forrit.
Rafbók tolluð sem afspilunartæki
Í HNOTSKURN
»Á Kindle er nánast aðeinshægt að lesa bækur.
»Hægt er að kaupa 390þúsund bókartitla fyrir
Kindle en einnig er hægt að
lesa þá í iPhone og iPod frá
Apple.
»Umræða hefur skapastum Kindle og tollun tæk-
isins á vefspjalli Maclantic.
»Þar lýsa notendur m.a.þungum áhyggjum sínum
af því að tollurinn ætli sér að
flokka Ipad með Ipod.
Viðskiptavinur Amazon telur sig hafa greitt fimmtán þúsund krónum of mikið fyrir rafbókina Kindle
Tollurinn lítur á tækið sem afspilunartæki en ekki lófatölvu Afstaða hefur ekki verið tekin til Ipad
Eftir Nönnu Gunnarsdóttur
NOKKRIR einstaklingar í Mosfellsbæ fengu þá hug-
mynd fyrir jólin að stofna til kærleiksviku í bænum þar
sem kærleikurinn réði ríkjum.
„Hugmyndin var að skvetta svolitlum kærleik yfir
bæjarbúa í svartnættinu þegar jólaljósin væru horfin og
Icesave-deilan dyndi á landsmönnum með fullum þunga
eftir jólaleyfi, til að sjá viðbrögðin,“ sagði Bryndís Har-
aldsdóttir, einn forsprakka kærleiksvikunnar. Það eina
sem þegar er skipulagt er upphafsviðburðurinn á sunnu-
daginn að sögn Bryndísar, þegar til stendur að setja
heimsmet í hópknúsi en til eru nokkrar útgáfur af slíku.
Mosfellingar hyggjast knúsast tveir og tveir á miðbæj-
artorginu í eina mínútu og verða svo mættir knúsarar
taldir en núverandi met í slíkri knúsaðferð er um 200
manns, svo betur má ef duga skal, eigi mosfellska knúsið
að komast í heimsmetabók Guinness. Eftir knúsið verður
gengin brosganga yfir í Kjarnann þar sem boðið verður
upp á kaffi, kakó og piparkökur. Einnig verður frumflutt
kærleiksvikulagið Kærleiksgjöf eftir Birgi Helgason og
Ingibjörgu Bjarnadóttur í flutningi Stefaníu Svavars-
dóttur.
Kærleikskorn á innkaupakerrum verslana
Viðbrögðin í bæjarfélaginu hafa verið góð en fyrirtæki
og stofnanir fengu sendar upplýsingar um framtakið.
Meðal annars taka unglingar í bæjarfélaginu þátt með
því að koma fyrir kærleiksríkum skilaboðum á inn-
kaupakerrum verslana, kærleiksþema verður í skól-
unum, kertafleyting á tjörninni, markþjálfar bjóða þjón-
ustu sína á kaffihúsum, kærleiksnámskeið verða í boði og
hópheilun í Lágafellsskóla síðasta daginn, sem ber upp á
konudag. Áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með á
facebook og heimasíðu Mosfellsbæjar.
Dagskrá vikunnar er ekki fullmótuð og þeir sem
áhuga hafa á að vera með eru hvattir til að hafa samband
við undirbúningshópinn, því enn er nóg rúm fyrir kær-
leik í Mosfellsbænum. „Verkefnið er ekki tengt fyrir-
tækjum eða stofnunum, heldur er hér um að ræða ein-
staklingsframtak í þágu einstaklinga,“ segir Bryndís.
„Markmiðið er eingöngu að gleðja og bæta geð Mosfell-
inga í skammdeginu og strá kærleik og hlýju í kringum
sig og það má gera með brosi, hrósi, jákvæðri framkomu
og, síðast en ekki síst, með knúsi.“
Hópknús verður við
upphaf kærleiksviku
Hugmyndin var að skvetta svolitlum kærleik yfir Mosfell-
inga í svartnættinu Kærleikur verður í orði og á borði
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
LAUSAGANGA hunda er bönnuð á
höfuðborgarsvæðinu og það getur
kostað allt að 25 þúsund krónur að fá
hundinn afhentan hafi hann verið
tekinn laus á almannafæri og færður
í gæslu.
Gjaldið er 21.500 kr. í Reykjavík.
Sé hundurinn óskráður þarf að
borga 15.400 kr. í skráningargjald
en allt að helmingi minna hafi verið
farið með hundinn á ákveðin nám-
skeið. Í Kópavogi, Garðabæ, Hafn-
arfirði og á Álftanesi er afhending-
argjald handsamaðs hunds 25
þúsund krónur en 12.500 kr. fyrir
skráðan hund.
Lausaganga bönnuð
Árný Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, segir að sama vinnan
sé í kringum handsömun hunds,
hvort sem hann er skráður eða
óskráður, og því sé gjaldið það sama.
„Hundar eiga ekki að vera í lausa-
göngu og þetta er umsýslugjald,“
segir hún. „Það er sama vinna að
sækja hund hvort sem hann er
skráður eða ekki.“
Farið er með alla handsamaða
hunda á Reykjavíkursvæðinu á
Hundahótelið á Leirum og þar er
sólarhringsgjaldið 1.700 kr. sem
bætist við afhendingargjaldið. Á ný-
liðnu ári var þar tekið á móti nær
300 hundum og þar af um helm-
ingnum úr Reykjavík.
Allir hundar eiga að vera skráðir
og merktir, en Árný segir að á því
geti verið misbrestur. Hún segir að
um 2.100 hundar séu skráðir í
Reykjavík en ætla megi að fjöldi
hunda í borginni sé nær 3.000. Hún
bendir á að hundar í lausagöngu séu
teknir þar sem í þá næst og eins séu
hundar oft teknir af fólki vegna
ítrekaðra brota. Þá komi gjarnan í
ljós að viðkomandi hundar hafi verið
óskráðir í mörg ár. Í Reykjavík voru
um 1.700 skráðir hundar 2007. Þá
voru 145 hundar handsamaðir vegna
lausagöngu en 130 í fyrra.
Getur kostað 25 þúsund
krónur að leysa út hund
Morgunblaðið/RAX
Hundalíf Hundar verða að sætta sig
við að lausaganga er bönnuð.
Eigendur skráðra
hunda borga sums
staðar hálft gjald
„Markmið vikunnar er fyrst og fremst að sýna hvert
öðru hlýju og kærleik í orðum og gerðum,“ segir
Bryndís Haraldsdóttir, einn forsprakka Kærleiksvik-
unnar.
„Það getur falist í brosi, faðmlagi, hrósi eða ein-
hverju öðru uppbyggilegu og jákvæðu, sem allir
þurfa á að halda. Von okkar er að allir Mosfellingar
upplifi kærleik í sinn garð þessa vikuna og gefi kær-
leik af sér á móti,“ segir Bryndís.
Svo skemmtilega vill til að kærleiksvikan í Mos-
fellsbæ rammast inn af Valentínusardegi og konu-
degi og kærleikurinn svífur því vonandi yfir vötn-
unum þar og annars staðar næstu vikuna.
Náungakærleikurinn öðru ofar
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Hópknús Mosfellingar geta lært af hópknúsi nemenda í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit.