Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 www.rita.is Eddufelli 2, sími 557 1730 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Stretch -buxur Str. 36-56 Síðar og stuttar Hæðasmára 4 • 201 Kópavogur Sími 555 7355 • www.selena.is Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. ÚTSÖLULOK Enn meiri verðlækkun 15% aukaafsláttur af útsöluvörum www.birkiaska.is Birkilauf- Betulic Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Verðhrun 60-80% afsláttur Til sölu eru rekstur og eignir þrotabús A. Karlssonar ehf. A Karlsson ehf. var leiðandi sölu- og þjónustufyrirtæki á heilbrigðis-, fyrirtækja- og einstaklingssviði. Fyrirtækinu var skipt upp í eftirtalin svið: Heilbrigðissvið er með vörur fyrir allar deildir heilbrigðis- og sjúkrastofnana. Einnig með tæki, efnavörur og innréttingar fyrir rannsóknarstofur og vöruval fyrir dvalar- og hjúkrunarheimili, sjúkraþjálfun og vörur á sviði hjálpartækja. Helstu umboð eru GE Healthcare, Lohman&Rauscher o.fl. Veitinga- og húsgagnasvið er með tæki, búnað og húsgögn fyrir veitingastaði, kaffihús og stór eldhús stofnana og fyrirtækja. Einnig með húsgögn fyrir skrifstofur og fundar- herbergi. Hreingerningaráhöld, tæki og efni fyrir verktaka, heilbrigðisstofnanir og vinnustaði. Helstu umboð eru Ilsa, Satelliet, Hounö, Bravilor o.fl. Verslanir BESTA í Ármúla í Reykjavík og í Njarðvík. Verslanirnar eru sérhæfðar á hreinlætisvörumarkaði og eru með mikið úrval af hágæða tækjum, áhöldum og efnum til hreingerninga. Helstu umboð eru Spartan, Vikan o.fl. A Karlsson ehf. rak verkstæði og sinnti viðhaldi tækja og sölu varahluta. Óskað er eftir tilboðum í eignir og rekstur þrotabúsins, í heild sinni eða í einstakar deildir þess, m.a. í verslanir BESTA. Upplýsingar veitir undirritaður skiptastjóri þrotabúsins (thorsteinn@forum.is) og fulltrúi hans, Halldór Reynir Halldórsson, lögfr. (hrh@forum.is). Tilboðum skal skilað til undirritaðs fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 16. febrúar 2010. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Þorsteinn Einarsson, hrl. forum lögmenn Aðalstræti 6, Reykjavík sími 562 3939 fax 562 2150 TIL SÖLU Stofnfundur fyrir félagið Sjálfstæðir Evrópumenn verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu föstudag- inn 12. febrúar klukkan 16.30. Tilgangur félagsins er að standa vörð um sjálfstæði Íslands, áframhaldandi samvinnu Íslands við vestrænar lýðræðisþjóðir og stuðla að efnahagslegum og pólitískum stöðugleika, trausti, einstaklings- og atvinnufrelsi og frjálsum viðskiptum. Til þess að ná þessum markmiðum vill félagið stuðla að hagstæðum samningi um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fundurinn er opinn öllum þeim sem styðja tilgang félagsins. Ávörp: Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður Jónas Haralz, hagfræðingur Katrín Helga Hallgrímsdóttir, lögfræðingur Gunnar Þórðarson, fv. útgerðarmaður Ísafirði Fundarstjóri: Ragnhildur Helgadóttir, fv. ráðherra Fundarboðendur: Baldur Dýrfjörð, form. fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, Benedikt Jóhannesson ritstjóri, Einar Leif Nielsen, stjórnarm. í Heimdalli, Einar Stefánsson prófessor, Guðfinna S. Bjarnadóttir, fv. alþingismaður, Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Hanna Katrín Friðriksson framkvæmdastj., Jón Benediktsson, stjórnarmaður í Heimdalli, Katrín Fjeldsted, fv. alþingismaður, Sigrún Gísladóttir, fv. skólastjóri í Garðabæ, Sigrún Ingibjörg Gísladóttir laganemi, Þorsteinn Pálsson, fv. formaður Sjálfstæðisflokksins, Þór Whitehead sagnfræðingur. Sjálfstæðir Evrópumenn Sjálfstæðir Evrópumenn 22% VERÐMUNUR mældist á mat- vörukörfunni er verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágverðsverslunum sl. þriðjudag. Vörukarfan, sem saman- stendur af almennum neysluvörum, var ódýrust í Bónus þar sem hún kostaði kr. 14.736 en dýrust var hún í Kosti þar sem hún kostaði kr. 17.920. Verðmunurinn er 3.184 krónur. Mat- arkarfan reyndist næstódýrust í Krónunni, en ekki var nema 111 kr. verðmunur á körfunni í Krónunni og Nettó. Mestur verðmunur í könnuninni var á nautahakki sem var dýrast, 1.659 kr/kg, í Kosti, en ódýrast í Krónunni, 799 kr/kg. Nemur munur- inn tæplega 108%. 84% verðmunur var þá á ferskum kjúklingabringum sem voru dýrastar í Nettó á 2.941 kr/ kg og ódýrastar í Bónus, 1.598 kr/kg. Mikill verðmunur var einnig á van- illuís, beikoni, spagettíi og rauðum eplum, en þau voru ódýrust í Nettó, 198 kg/kg, en dýrust í Krónunni, 329 kr/kg. Umtalsverður verðmunur mældist á fleiri tegundum grænmet- is og ávaxta, en af einstaka liðum í könnuninni reyndist verðmunurinn minnstur á viðbiti, mjókurvörum og sykruðum drykkjarvörum. Skilaboð til Samkeppniseftirlits Í athugasemdum sem verslunin Kostur sendi frá sér í kjölfar verð- könnunarinnar segir að með henni sendi ASÍ skýr skilaboð til Sam- keppniseftirlitsins. „Að við skulum vera fyllilega sam- keppnisfær með þær vörur sem Kostur flytur sjálfur inn til landsins, en ekki aðrar, er sjúkdómseinkenni á innlendum birgjum þjökuðum af margra ára fákeppni á matvöru- markaði,“ segir í athugasemdunum. Hringamyndun hafi fengið að þróast nær óáreitt á undanförnum árum á Íslandi. Þannig nái stærsti aðilinn inn hagnaðinum í gegnum aðrar keðjur sínar og neyði birgja til að velta kostnaðinum yfir á keppinaut- ana. Þá er bent á að af þeim 40 vörum sem teknar voru út í könnuninni flytji Kostur eingöngu inn tvær vörutegundir sjálfur. Hinar 38 séu keyptar frá innlendum birgjum, auk þess sem ýmis dæmi í könnuninni beri saman vörur sem ekki séu sam- bærilegar að gæðum. Könnun ASÍ var gerð í Bónus Holtagörðum, Krónunni Lindum, Nettó Hverafold og Kosti Dalvegi og er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila. Verðkönnun ASÍ Vörutegund (ódýrasta kílóverðið) BÓNUS KRÓNAN NETTÓ KOSTUR Verðmunur Kjúklingabringur, ferskar (skinnlausar) 959 1.079 1.765 1.525 84,0% Nautahakk 8-12% 599 400 595 830 107,6% Bacon 431 566 346 479 63,6% Spaghetti 98 115 115 189 93,8% Gular hálfbaunir 159 263 139 241 89,2% Epli, rauð 249 329 198 299 66,2% 22% munur á vörukörfu í lágverðsverslunum Mikill verðmunur mældist á ávöxtum og grænmeti Almannavarnanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu og björg- unarsveitir á svæðinu undirrituðu í gær samstarfssamning sín á milli. Ætlunin með þessu er að efla sam- vinnu aðila m.a. með því að koma á fót aðgerðastjórnstöð almannavarna og björgunarmála í húsnæði Flug- björgunarsveitarinnar á Hellu og vettvangsstjórnstöðvar í húsnæði björgunarsveitanna á Hvolsvelli, Vík og á Kirkjubæjarklaustri. Samningnum fylgir að björg- unarsveitir hafi umsjón með fjar- skiptum og útvegi mannskap til að sjá um þau og setja upp tæknibúnað í aðgerða- og stjórnstöðvum. Almannavarnanefndin hefur lagt áherslu á að efla björgunarsveitir í umdæminu og að stjórnstöðvar al- mannavarna séu í húsnæði sveit- anna. Í krafti þessi hefur almanna- varnanefnd ákveðið að styrkja björgunarsveitir á svæðinu um 2,5 milljónir kr og fær hver ákveðna upphæð. sbs@mbl.is Almannavarnir semja við björgunarsveitir Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Liljurós, Hinrikka og Vigný, en hafnað nöfnunum Veron- ica, Besti og Liljarós. Um eiginnafnið Veronicu segir að það geti ekki talist ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn „c“ teljist ekki til íslenska stafrófsins þótt hann komi fyrir í nokkrum mannanöfnum sem unnið hafi sér hefð hérlendis. Bent er á að rithættirnir Veróníka, Veronika og Veroníka séu leyfðir. Nafninu Besti er hafnað þar sem engin hefð sé fyrir því að eiginnöfn séu leidd af miðstigi eða efsta stigi lýsingarorða. Liljarós fæst ekki samþykkt þar sem það geti ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls að rita tvö sjálfstæð eiginnöfn á borð við Lilja og Rós sem eitt orð. Liljurós er hins vegar myndað í samræmi við íslenskar orðmyndunarreglur. Liljarós og Besta hafnað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.