Morgunblaðið - 12.02.2010, Qupperneq 16
Þann 14. febrúar ár hvert halda
Vesturlandabúar upp dag heilags
Valentínusar. Á þeim degi gleðja að-
ilar ástarsambanda hvor annan með
gjöfum eða einhvers konar viðleitni
til að sýna ást sína, umhyggju eða
kærleika. Hefðin hefur þó ekki skotið
rótum á Íslandi fyrr en á allra síð-
ustu árum. Margir þráast við og vilja
halda í hina hefðbundnu bænda- og
konudaga og fordæma ameríkaníser-
ingu íslenskra hátíðisdaga.
Í stað þess að apa hátíðardaga eft-
ir erlendum þjóðum ættu Íslend-
ingar frekar að búa til sína eigin við-
hafnardaga, ef þeir sem fyrir eru
duga ekki til. Þeim er þetta ritar
dettur strax í hug að halda Lárents-
ínusardaginn hátíðlegan í stað Val-
entínusardagsins. Glöggir taka eftir
að nafn dagsins er sótt til formanns
skilanefndar Landsbankans, Lár-
entsínusar Kristjánsssonar.
Lárentsínusardagurinn gæti falið í
sér að íslenskur almenningur sýndi
ört stækkandi stétt skilanefnd-
armanna á Íslandi þakklæti sitt
fyrir óeigingjörn og brýn störf í
þágu þjóðarinnar. Menn, konur
og börn gætu safnað saman
greiðslukvittunum vegna veitts
sérfræðikostnaðar á árinu,
pakkað þeim í hjartalaga
umbúðir og sent skila-
nefndum bankanna í
tilefni dagsins. At-
vinnulífið gæti
líka tekið þátt
í hátíðinni.
Þannig gætu
öll ráðgjaf-
arfyrirtæki,
lög-
fræðistofur og aðrir boðið öllum sem
vilja upp á sérfræðiþjónustu að
kostnaðarlausu. Væntanlega yrðu
viðbrögðin ámóta og þegar íslensk
stjórnvöld buðu upp á skattalaust ár.
Þá fjölgaði vinnustundum Íslendinga
hressilega, enda vildu margir ná til
sín sem mestu af tekjum þegar ríkið
gaf skattgreiðendum grið í tólf mán-
uði.
Sama gæti orðið upp á teningnum
á Lárentsínusardeginum. Almenn-
ingur myndi ekki hika við að leita sér
sérfræðiaðstoðar, þess vegna í lít-
ilfjörlegustu málum. Einhverjir
gætu leitað til fjármálasérfræðinga
til að fá úttekt á því hversu hár vasa-
peningur hámarkaði nytjar barna
þeirra. Annar gæti leitað til lögfræð-
inga og kannað réttarstöðu sína í
kjölfar þess að hafa tekið einu staupi
of mikið af ákavíti á síðasta þorra-
blóti. Íslenska ríkið gæti jafnvel bor-
ið við Lárentsínusardegi í viðræðum
við breskar lögfræðistofur um
greiðslu á sérfræðikostnaði vegna
skýrslugerðar.
Áhrifaríkasta leiðin fyrir fjölmiðla
til að gera Lárentsínusardeginum
skil væri að leita álits sérfræðinga á
hinum ýmsu deilumálum sem uppi
eru í íslensku samfélagi. Að mati
undirritaðs er álitum og skoðunum
sérfræðinga, sérstaklega fræði-
manna við Háskóla Íslands,
ekki gert nógu hátt undir
höfði í fjölmiðlaumfjöllun. Á
Lárentsínusardegi væri
hægt að gera fréttir, sem
snerust ekki um neitt ann-
að en menn með fullt af
bókum og krítartöflu
sér að baki, að
segja skoðun sína
á ákveðnum
málum.
Þar væri
vægast sagt
um hressilega
og tímabæra
tilbreytingu
að ræða!
’Atvinnulífiðgæti líka
tekið þátt
í hátíðinni
Á föstudegi Hvað með Lárentsínusardag?
16 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16 mánudaginn 15. febrúar.
Best er að panta sem fyrst til að
tryggja sér góðan stað í blaðinu!
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út
stórglæsilegt sérblað, LIFUN,
sem fjallar um tísku og
förðun, föstudaginn
19.febrúar.
Í blaðinu verður fjallað um
tískuna vorið 2010
í förðun, snyrtingu og fatnaði,
fylgihluti auk umhirðu
húðarinnar, dekur og fleira.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/M
O
R
48
90
9
1/
10
MEÐAL EFNIS:
Förðunarvörur
Förðun
Húðin, krem og meðferð
Snyrting
Kventíska
Herratíska
Fylgihlutir
Skartgripir
Árshátíðatískan
Vortískan
Og fullt af
öðru spennandi efni
Ert þú í tísku?
FYRIR 15. FEBRÚAR
Kaldir litir eru áberandi í nýju Love Lace-línunni frá MAC.
Ef þú vilt ljúka vetrarmánuðunum sem sannkölluð ísdrottning á
þorranum þá eru stálgráu og bláu augnskuggarnir í þessari línu
rétta leiðin.
Kohl power-augnblýanturinn í svar-navy-bláu gerir útkomuna svo
virkilega dökka og dramatíska.
Toppurinn á Love Lace-línunni er samt „Intricate“-varaliturinn;
hann er fölbleikur með köldum, málmkenndum blæ sem passar
ótrúlega vel við föla vetrarhúðina og sérstaklega ef augnmálningin
er dökk og „smoky“.
Glossið er líka fínt. Það er þó ekki mjög afgerandi eitt og sér,
enda eru fölar varir áberandi núna, en þess vegna getur það líka
virkað yfir dökkan varalit til að tóna hann aðeins niður, ef vill.
Love Lace-línan fæst hjá MAC í Kringlunni og í Debenhams í
Smáralindinni.
Í snyrtibudduna
Frostkaldar ísdrottningar með
dramatísk augu og málmvarir
Augnblýantur: 3.490 kr
Augnskuggi: 3.490 kr
Varalitur: 3.990
Gloss: 3.890 kr
Sjónvarpsstöðin MTV sló í gegn
með raunveruleikaþáttum um ungt,
fallegt og ríkt fólk í Hollywood en nú
hafa þeir þættir hrapað verulega í
vinsældum.
Svo virðist sem áhorfendur hafi
meiri áhuga á annars konar raun-
veruleikaþáttum MTV sem einnig
fjalla um ungt fólk en reyndar í dá-
lítið annarri stöðu.
Þættirnir 16 ára og ófrísk vöktu
mikla athygli þegar byrjað var að
sýna þá sl. sumar en eins og nafnið
gefur til kynna fjalla þeir um ung-
linga sem eiga von á barni.
Í kjölfarið hóf MTV sýningar á
Unglingsmamma og hafa að með-
altali 2,4 milljónir Bandaríkjamanna
horft á hvern þátt. Nú þegar er búið
að ákveða að önnur þáttaröð verði
framleidd.
Þættirnir eru í heimildamyndastíl
og segja frá fjórum nýbökuðum ung-
lingsmæðrum sem þurfa að aðlagast
breyttum aðstæðum.
Hugmyndin að þáttunum vaknaði
í kjölfar þess að Bristol Palin, dóttir
Söruh Palin forsetaframbjóðanda,
og Jamie Lynn Spears, systir Brit-
ney Spears, urðu mæður á unglings-
aldri.
Líf mæðranna er gjörólíkt því sem
áhorfendur voru eitt sinn svo gagn-
teknir af að fylgjast með í þáttunum
The Hills og Laguna Beach. Þær
hugsa ekki um hvort þær komist inn
á heitustu næturklúbbana, eigi flott-
ustu flíkurnar og geti skroppið burtu
í helgarferðir.
Þeirra áhyggjur snúast um að
eiga fyrir leigunni og halda sam-
bandinu við barnsföðurinn góðu.
Oft hefur verið gagnrýnt að barn-
eignir unglinga skuli vera sýndar í
jákvæðu ljósi í kvikmyndum og sjón-
varpi og ekki sé sýnt hversu erfitt
það er í raun fyrir unglinga að eign-
ast börn.
Hins vegar hefur Unglings-
mömmunni verið vel tekið og þátt-
urinn þótt gefa raunsanna mynd af
því hvernig líf unglinga gjörbreytist
við það að eignast börn.
Áhugasamir geta nálgast þættina
á mtv.com.
Mömmur Unglingsmæður hafa hingað til ekki verið algeng viðfangsefni í unglingaþáttum en nú er öldin önnur.
Vinsælar táningsmæður
Líf mæðranna er gjörólíkt
því sem áhorfendur voru
eitt sinn gagnteknir af að
fylgjast með í þáttunum
The Hills og Laguna Beach