Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 25
Síðastliðna daga hafa ótal minn- ingar sótt á mig. Í gær þegar ég heimsótti heimili ykkar afa sá ég að lítil mynd sem hékk á veggnum var örlítið skökk svo ég gekk að henni og lagfærði hana hugsandi til þess að þú amma mín hefðir gert slíkt hið sama. Heimilið ykkar var ávallt óaðfinnan- legt, rétt eins og hjá móður minni. Þið áttuð það sameiginlegt að metnaður fyrir fallegu og hlýju heim- ili var í hávegum hafður. Mér fannst óraunverulegt að koma í Árskógana og finna ekki fyrir nærveru þinni lengur sem var alltaf svo góð og hlý. Mér varð litið upp á óróann sem hangir í eldhúsinu og sá þig sam- stundis fyrir mér sitja við eldhús- borðið mér til samlætis, að þylja gamlar sögur, á meðan ég þurrkaði af honum fyrir þig. Þú sagðir mér svo oft sögur um liðna tíð þegar ég heim- sótti þig. Þú sagðir mér frá tímanum þegar þú og fjölskylda þín bjugguð í torfkofa sem mér fannst ótrúleg hetjudáð og dáðist að því hversu ótrúlega ævi þú hafðir lifað. Stundum lágum við saman uppi í rúmi að kjafta eða leysa gátur. Jafnvel gátum við dottið í slúður af og til og hlógum mikið saman. Þú varst svo hjartahlý og kenndir mér ætíð að sjá hið góða í náunganum og af þér lærði ég fyrst og fremst að sýna samúð með fólki. Við vorum nánar og afskaplega góðar vinkonur og ég á eftir að sakna sam- talanna okkar afar mikið. Þið afi pössuðuð okkur skæruliðana, mig og Sindra, mikið þegar við vorum lítil. Þá bjugguð þið í Goðheimunum. Þið voruð okkur svo óskaplega góð og þolinmæði ykkar óendanleg. Ekki er annað hægt að segja en það hafi verið stjanað við okkur þegar við vorum í ykkar umsjá. Mér fannst alltaf svo gott að vakna á morgnana í Goðheim- unum því ég vissi að þegar ég færi fram úr myndi ég sjá þig á náttkjóln- um standa við eldavélina að hræra í hafragrautnum sem var minn uppá- haldsréttur. Enginn gat búið til jafn fullkominn hafragraut og þú enda varstu afbragðskokkur og allt sem þú tókst þér fyrir hendur óaðfinnanlegt. Pabbi minntist þess um daginn að þegar Sindri var lítill þá tilkynnti hann þeim mömmu að þegar þau færu héðan úr þessum heimi ætlaði hann að flytja til ömmu og afa. Þann- ig voru þið eilíf í hans huga eins og mínum. Ég var svo viss um að þú yrð- ir alltaf hjá okkur. Þú lifir hins vegar í minningum mínum þar til ég kem til þín. Ég get aðeins vonað að verða jafn tignarleg, falleg og aðdáunar- verð eins og þú varst, elsku hjartans amma mín. Þú varst mér svo kær. Hvíl í friði, elsku amma mín. Anna Ýr Gísladóttir. Í dag kveð ég elskulega móður- systur mína, hana Stebbu, þá yngstu í systrahópnum og þá næstyngstu í systkinahópnum frá Kirkjuskógi í Dölum. Eftirlifandi er yngsti bróðir- inn, Víglundur, sem nú syrgir kæra systur en mikil vinátta var alltaf á milli fjölskyldna þeirra. Þrátt fyrir háan aldur var Stebba ótrúlega hress í anda en líkamleg heilsa var farin að gefa sig á ýmsan hátt og því má þakka fyrir að sjúkra- húsdvölin varð ekki löng og að hún þurfti ekki að þjást mikið í lokin. Það er óneitanlega sérstök tilfinn- ing að kveðja það fólk sem fylgt hefur manni frá upphafi en það hafa móð- ursystkinin mín sannarlega gert. Þegar ég hugsa um Stebbu kemur upp í hugann, kraftur, dugnaður og glaðværð. Hún var ofurkona, áður en það orð kom inn í íslenskuna, allt sem hún afrekaði með sína stóru fjöl- skyldu og lét sig ekki muna um að passa litla dóttur mína um tíma þeg- ar alvarleg veikindi komu upp í minni fjölskyldu. Gæfa Stebbu í einkalífi var að eign- ast hann Jón Guðnason fyrir lífsföru- naut og saman stóðu þau í blíðu og stríðu en sorginni fengu þau sannar- lega að kynnast við missi sonar og barnabarna. En gleðistundirnar voru líka á sínum stað með börnunum og fjölskyldum þeirra og einnig stórfjöl- skyldunni og er nærtækast að minn- ast 90 ára afmælis Stebbu árið 2008 en stuttu áður hafði hún veikst en hún hresstist og afmælið var haldið aðeins seinna. Það lýsir best kraft- inum sem einkenndi hana alla tíð. Í einu ljóði Davíðs Stefánssonar yrkir hann um „Daladætur sem dreymir allar um sól og vor.“ Í mín- um huga var Stebba ein af þessum „Daladætrum“ og vonandi er hún nú umvafin sól og komin á berjamó, en það var henni alltaf mikið kappsmál. Það er komið að kveðjustund og ég þakka Stebbu frænku fyrir allt og bið henni blessunar Guðs. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson.) Elsku fjölskylda Stebbu, innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra frá mér og minni fjölskyldu. Svanhildur Hilmarsdóttir. Mig langar með nokkrum orðum að minnast kærrar móðursystur minnar, Stefaníu Sigurjónsdóttur, eða Stebbu frænku, sem lést á Land- spítalanum eftir stutta sjúkrahús- legu. Fyrst man ég eftir Stebbu, Jóni og fjölskyldu í Álfheimunum um 1960. Þá var ég 9 ára gömul. Það var oftast líf og fjör í kringum Stebbu og fór ég oft með mömmu (Jóhönnu systur hennar sem lést árið 2002 91 árs) í heimsókn til hennar. Þær töl- uðu mikið og hátt og voru léttar í lund. Mér finnst Stebba alltaf hafa verið sístarfandi, að sauma föt, baka, prjóna, fara í berjamó, taka slátur og létu þær systur engan stoppa sig í því fram á síðustu æviár. Einnig veit ég að hún og Jón pössuðu oft barna- börnin. Í mörg ár hafa Stebba og Jón búið í Árskógum í Reykjavík og það var alltaf hressandi að koma þangað og hefðu heimsóknirnar mátt vera fleiri. Hún bar mikla umhyggju fyrir mér og minni fjölskyldu og spurði alltaf frétta af börnum mínum og barnabörnum. Fyrir tæpum tveimur árum var haldið upp á 90 ára afmælið hennar og er það alveg ógleyman- legt. Undanfarin ár veit ég að þau hafa fengið góða hjálp og stuðning frá börnum sínum og fjölskyldu sem er alveg ómetanlegt. Komið er að kveðjustund, elsku Stebba mín, og vil ég þakka þér góð kynni í um það bil 50 ár. Ég votta Jóni og öllum í fjölskyld- unni innilega samúð. Þín systurdóttir, Ósk Guðrún Hilmarsdóttir. Ég sit hér í dag og mig langar að koma á blað kveðju til Stebbu sem ég hef átt að vin og einstökum félaga í áraraðir. Við kynntumst í gegnum Sigga, manninn minn, á sjötta ára- tugnum. Siggi og Nonni voru miklir vinir og þar kynntist Stebba honum Nonna sínum. Síðan hefur líf okkar tvinnast saman. Í huga mínum koma margar ljúfar minningar svo sem há- tíðarstundir eins og fermingar og giftingar barna okkar. Einnig eru ferðalögin okkar, þar var Stebba hrókur alls fagnaðar. Einnig sátum við oft saman í eldhúsinu og drukkum kaffi og saumuðum. Þú kenndir mér réttu handtökin við saumaskapinn sem ég hef búið að síðan. Minning mín um þig lifir með mér. Ég bið góðan Guð og styrkja og blessa Nonna og alla fjölskylduna. Stebba mín, þetta er kveðjan mín til þín, hún felst í þessum ljóðlínum: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Margrét Árnadóttir og Gunnar Þórðarson. Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 eins væru nokkrir dagar í níræðisaf- mælið. Gunnþórunn var fjölhæf kona. Allt lék í hennar höndum og oft aðstoðaði hún okkur mömmu við saumaskap. Matthías og Gunnþór- unn byggðu sér sumarhús við túnfót- inn í Miðdalskoti hjá foreldrum mín- um og nefndu Lund. Hann varð skjótt mikill sælureitur þar sem við áttum margar ánægjustundir. Og þau voru ávallt reiðubúin að hýsa okkur er við skruppum til borgarinn- ar á æskuárunum. Gunnþórunn átti, ásamt Kristínu dóttur sinni, Hatta- og kvenfata- verslunina í Reykjavík sem var rekin af myndarskap árum saman. Undan- farin ár hefur Gunnþórunn háð bar- áttu við erfiðan sjúkdóm, en tók ör- lögum sínum af æðruleysi og hetjulund. Við þökkum Gunnþórunni og fjöl- skyldu hennar fyrir einstaklega ljúfa samleið og tryggð og sendum Krist- ínu, Guðmundi, Einari og fjölskyld- um þeirra innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Ingunn Valtýsdóttir. Mjög margt er það sem kemur upp í huga minn þegar ég lít til baka og minnist tengdamóður minnar Gunn- þórunnar Einarsdóttur sem nú er látin. Okkar viðkynni voru alla tíð mjög góð og fór ætíð vel á með okk- ur. Hún var glæsileg kona, alltaf vel til höfð enda mikil saumakona og smekkvís. Það lék allt í höndunum á henni, sama hvort hún var að sauma föt, yfirdekkja húsgögn, halda stórar eða litlar veislur, hún töfraði allt fram með miklum glæsibrag. Heimili hennar bar einnig vott um góðan smekk og myndarskap. Það var ætíð létt yfir henni og hún hafði gaman af því að umgangast og ræða við fólk og fræðast um hagi þess. Hún var vel að sér og fylgdist vel með þjóðmálum og því sem var að gerast í kringum hana. Hún var mikið gefin fyrir alls konar bóklestur og hafði jafnframt mikla unun af því að spila bridge við ættingja og félaga. Það var ekki annað hægt en að dáðst að þessari konu sem tók sig til á sextugsaldri og ákvað að hefja rekstur á sinni eigin fataverslun. Naut hún í því starfi þekkingu sinnar á fataefnum og reynslu af sauma- skap. Fór hún oft ein í viðskiptaferð- ir til London og allt gekk þetta upp hjá henni. Það sem hún ætlaði sér það gerði hún og það var aldrei neitt sem vafðist fyrir henni. Þótt hún væri heimakær hafði hún gaman af því að ferðast og naut þess að sjá sig um bæði innanlands og erlendis. Mér er hugleikin ferð sem við hjónin fór- um með hana hringinn í kringum landið fyrir nokkrum árum. Þar gafst henni tækifæri til að heim- sækja marga staði sem hana hafði lengi langað til að sjá og upplifa. Þá eru mér minnisstæðar margar ferðir okkar í sumarbústaðinn hennar á Laugarvatni en þar átti öll fjölskyld- an góðar stundir saman. Margar ferðirnar kom hún til okkar hjónanna þegar við bjuggum í Sví- þjóð og var þá stundum að koma úr innkaupaferð til London í tengslum við verslunarrekstur sinn. Oftar en ekki kom hún þá færandi hendi með fatnað og aðrar gjafir, ekki síst til barnabarnanna sem kunnu vel að meta það að fá ömmu sína í heim- sókn. Þegar ég kynntist Einari, manni mínum, bjó Gunnþórunn í Sólheim- um 1 í Reykjavík en síðar fluttist hún að Sólheimum 23 eftir að tengdafaðir minn dó. Var hún þar í nokkur ár uns heilsunni fór að hraka og fluttist hún þá til dóttur sinnar Kristínar sem annaðist hana af lífi og sál en þær mæðgurnar voru afar nánar og höfðu um langan aldur bæði búið og starfað saman. Fyrir tæpu ári hafði heilsu hennar hrakað það mikið að hún þarfnaðist meiri umönnunar en hún gat fengið heima fyrir og fór hún þá á hjúkrunarheimilið Skjól. Þar naut hún góðrar hjúkrunar og umönnunar allt til hins síðasta. Ég kveð tengda- móður mína með söknuði og kær- leika. Blessuð sé minning hennar. Guðbjörg Guðbergsdóttir. ✝ Systir mín og frænka okkar, ÞÓRUNN GUÐJÓNSDÓTTIR frá Tungu, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, lést á heimili sínu sunnudaginn 7. febrúar. Útförin fer fram frá Breiðabólsstaðarkirkju í Fljótshlíð laugardaginn 13. febrúar kl. 14.00. Sigurlaug Guðjónsdóttir og systkinabörnin. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR ÞORVALDSSON rafvirkjameistari, Stóragerði 9, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala, Landakoti þriðju- daginn 9. febrúar. Útförin verður gerð frá Grensáskirkju föstudaginn 19. febrúar kl. 15.00. Guðrún Jónsdóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Magnús R. Jónasson, Vilborg Sigurðardóttir, Guðmundur Gunnlaugsson, Ólöf Sigurðardóttir, Jón Sigurðsson, Sigríður Kristjánsdóttir, afa- og langafabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR ÁGÚST VETURLIÐASON múrari, Vesturtúni 38, lést föstudaginn 5. febrúar. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju mánudaginn 15. febrúar kl. 13.00. Kristín Guðmundsdóttir, Andrea Ólafsdóttir, Erlendur G. Gunnarsson, Guðrún Ólafsdóttir, Ármann Ólafsson, Árdís Olga Sigurðardóttir, Helga Ólafsdóttir, Bergur Helgason, Ágúst Ólafsson, Rebekka Rut S. Carlsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, WALTER HJALTESTED, Geitastekk 3, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku- daginn 10. febrúar. Svandís Guðmundsdóttir, Kjartan Hjaltested, Katrín Sverrisdóttir, Margrét Hjaltested, Eiríkur Benónýsson, Sólrún Hjaltested, Hákon Ísfeld Jónsson og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SVANDÍS HARALDSDÓTTIR frá Stóra-Lambhaga, Brekkubyggð 7, Garðabæ, andaðist á Landspítalanum Fossvogi miðviku- daginn 3. febrúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sólveig Jónsdóttir, Ólafur Jónsson, Haraldur Jónsson, Hulda Ingibjörg Benediktsdóttir, Sigurður Sverrir Jónsson, María Lúísa Kristjánsdóttir, Arnbjörg Jónsdóttir, Kristján B. Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.