Morgunblaðið - 12.02.2010, Síða 38
38 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010
BJÖRG Atla opnar mál-
verkasýningu í Listasal Garða-
bæjar á Garðatorgi 7 á morg-
un, laugardag. Sýninguna
nefnir hún Tilbrigði við stef.
Björg útskrifaðist úr mál-
aradeild Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands 1982. Hún hef-
ur verið með eigin vinnustofu
síðan 1982 og kenndi málun á
námskeiðum í Myndlistaskól-
anum í Reykjavík 1982-87.
Björg hefur haldið nokkrar einkasýningar, síðast í
Hafnarborg í Hafnarfirði 2004, og tekið þátt í
samsýningum, þar á meðal tveimur sýningum
listamanna í Garðabæ 2009. Sýningin verður opin
frá kl. 13-18 og stendur til 28. febrúar.
Myndlist
Björg Atla sýnir
tilbrigði við stef
Björg Atla sýnir
í Garðabæ.
ÞÓR SIGURÐARSON, safn-
vörður Minjasafnsins á Ak-
ureyri, segir draugasögur í
Gamla bænum í Laufási í
Eyjafirði á sunnudagskvöld.
hann leggur áherslu á þjóð-
legar draugasögur sem gerð-
ust innan torfbæja en þar var
nóg um dimm göng og rangala
og ýmislegt gat leynst í hverju
skúmaskoti. Félagar í kvæða-
mannafélaginu Gefjuni á Ak-
ureyri, Rósa María Stefánsdóttir og Kristín Sig-
tryggsdóttir, munu einnig kveða draugalegar
rímur.
Aðgangur verður takmarkaður og því þarf að
tilkynna þátttöku til Minjasafnsins á Akureyri
Þjóðfræði
Draugasögur í
Laufási í Eyjafirði
Þór Sigurðarson
safnvörður.
LISTAKONAN Jóna Heiða
Sigurlásdóttir opnar myndlist-
arsýningu í Gallerý KvikkFix í
Vesturvör 30c í Kópavogi. Jóna
Heiða lauk námi frá Listahá-
skóla Íslands, stundaði í kjöl-
farið nám við Universität der
Künste í Berlín og nam
kennslufræði við Listaháskóla
Íslands. Á sýningunni verða
átján myndverk, innsetning og
KÍMERA creations-skart-
gripir sem hún hannar og framleiðir. Jóna Heiða
hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum en þetta
er fyrsta einkasýning hennar á höfuðborgarsvæð-
inu. Sýningin er opin á afgreiðslutíma KvikkFix
alla virka daga og stendur til 9. apríl.
Myndlist
Jóna Heiða sýnir
í Gallerý KvikkFix
Jóna Heiða
Sigurlásdóttir
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
SAFNANÓTT er haldin í dag í fimmta sinn.
Undanfarin ár hefur Safnanótt verið hluti af
Vetrarhátíð, en þar sem Vetrarhátíð er aflögð í
bili fær Safnanóttin að njóta sín sem aldrei fyrr.
Safnanótt hefur verið einn stærsti liður
Vetrarhátíðar, en verður nú stærri en nokkru
sinni að sögn Guðríðar Ingu Ingólfsdóttur, verk-
efnisstjóra viðburða hjá Höfuðborgarstofu, enda
spannar hún nú allt höfuðborgarsvæðið, „nær
ekki bara til Reykjavíkur heldur verða líka söfn
á Seltjarnarnesi, í Kópavogi, Hafnarfirði og Mos-
fellsbæ með að þessu sinni og söfnin því 35 í stað
25 safna síðast,“ segir Guðríður.
Hún segir að undirbúningur fyrir hverja
safnanótt hefjist haustið fyrir hverja hátíð, enda
sé að mörgu að hyggja. Tveir starfsmenn Höf-
uðborgarstofu vinni að skipulagningu, en annars
sjá söfnin sjálf hvert um sína dagskrá. „Við
leggjum ákveðna línu, veljum tiltekið þema, sem
er Draumar að þessu sinni, en síðan skipuleggja
söfnin sjálf sína dagskrá og senda til okkar.“
Eins og sagði taka 35 söfn þátt í Safnanótt að
þessu sinni, en einnig tengjast henni aðrir við-
burðir eins og hátíðin Kærleikar sem Guðríður
segir að verði eins konar forréttur Safnanætur
og hefst á Austurvelli kl. 18.00. Borgarstjórinn í
Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, setur
Safnanóttina síðan formlega kl. 19.00 á túninu
við Tjarnarbrúna og þá verður fluttur ljósa-
gjörningur bandaríska listamannsins Bills Fitz-
gibbons, sem lýsir upp öndvegissúlur Ráðhússins
við tónmynd Sverris Guðjónssonar. Síðan rekur
hver viðburðurinn annan í söfnunum, en dag-
skráin stendur til miðnættis.
Sem dæmi um það sem fram fer má tína til að
raftónlistarmaðurinn Rúnar Magnússon verður
með draumavélainnsetningu með tónlist í Ás-
mundarsafni, Ragnheiður Gröndal flytur íslensk
vögguljóð ásamt undirleikara á Bókasafni Garða-
bæjar, Íslandsmynd danska orlogskafteinsins
A.M. Dams, sem tekin var á Íslandi 1938 og
1939, verður sýnd í Bæjarbíói í Hafnarfirði,
ljóðaslamm, ljóðlistarkeppni ungs fólks, verður í
Borgarbókasafni Reykjavíkur, nútímadansverk
verður flutt á Borgarskjalasafni Reykjavíkur, fé-
lagar í Smábílaklúbbi Íslands bjóða gestum og
gangandi að spreyta sig á að stýra fjarstýrðum
rafdrifnum smábílum í anddyri Minjasafns Orku-
veitu Reykjavíkur, Þorvaldur Friðriksson
skrímslafræðingur leiðir næturgesti um sýning-
arsali Náttúrufræðistofu Kópavogs, styrkt-
arfélagið Göngum saman leiðir vasaljósagöngu
frá Þjóðminjasafni að Vesturbæjarlaug, nútíma-
dansverkið This is not Entertainment, sem
Kama Jezierska og River Carmalt sömdu og
dansa, verður flutt í Borgarskjalasafni Reykja-
víkur, sýning verður á portrettum af þjóð-
kunnum Íslendingum og getraunaleikur í
tengslum við hana í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar, Ólafur Ásgeirsson fjallar um hinn þekkta
morðingja Axlar-Björn og samtíð hans í lestr-
arsal Þjóðskjalasafns Íslands og ratleikur verður
um borð í Varðskipinu Óðni við Grandagarð svo
fátt eitt sé talið.
Sérstakur safnanæturstrætó gengur á milli
safnanna sem auðveldar gestum að sjá sem mest
af því sem í boði verður, en að sögn Guðríðar
verða ríflega 150 viðburðir í boði á höfuðborg-
arsvæðinu. „Gestir á síðustu Safnanótt voru um
10.000 en það má gera ráð fyrir því að þeir verði
talsvert fleiri að þessu sinni.“
Fjölbreytt Safnanótt stendur frá kl. 19:00 og fram á nótt. Kristján „KK“ Kristjánsson tekur þátt í Safnanóttinni að þessu sinni og heldur stofutónleika í
Gljúfrasteini, safni Halldórs Laxness, kl. 21.00. Safnastrætó ekur frá Kjarvalsstöðum til Gljúfrasteins klukkan 20 og til baka klukkan 22.
Fjölbreytt Safnanótt
Safnanótt haldin á
höfuðborgarsvæðinu
35 söfn þátttakendur –
25 söfn voru með síðast
Yfir 150 atburðir í boði
frá kvöldi og fram á nótt
Eins og fram kemur hér til hliðar verður hátíðin
Kærleikar einskonar forleikur að Safnanótt, en
hún hefst á Austurvelli kl. 18. Hugmyndasmiður
og skipuleggjandi Kærleika er Bergljót Arnalds,
en hátíðin er haldin til að skapa samkennd, veita
hvatningu og styrk.
Kærleikar hefjast með því að nokkrir þekktir
einstaklingar fjalla um kærleikann, en síðan er
gengin kærleiksganga í kringum Tjörnina ásamt
lúðrasveitinni Svani og kórar Reykjavíkur sam-
einast í fjöldasöng. Af öðrum atriðum má nefna
að Páll Óskar syngur „Sönginn um lífið“, björg-
unarsveitarmenn sem voru við störf á Haítí
koma fram, allsherjargoðinn Hilmar Örn Hilm-
arsson, séra Helga Soffía Konráðsdóttir, prestur
í Háteigskirkju, Óskar Bjarni Óskarsson aðstoð-
arlandsliðsþjálfi, Sönglist, Rauði krossinn, Frið-
arhús og fleiri. Litur hátíðarinnar er rauður og
því beint til væntanlegra gesta að klæðast ein-
hverju rauðu.
Vetrarjazzhátíð í Reykjavík tengist líka Safna-
nótt og verður með sérstaka dagskrá í Norræna
húsinu með þátttöku djassleikara frá Íslandi,
Finnlandi og Noregi í Norræna húsinu. Tónleikar
verða á klukkutíma fresti, en þá munu listamenn
sem fram koma á Vetrarjazzhátíð flytja sýn-
ishorn af dagskrá sinni, þar með taldar norska
hljómsveitin Pelbo og finnska hljómsveitin Plop.
Kærleikar og djassleikar
Í DAG:
Kl. 20:00-24:00 Safnanótt með
þátttöku djassleikara frá Ís-
landi, Finnlandi og Noregi í Nor-
ræna húsinu. Tónleikar á
klukkutíma fresti.
Kl. 22:00Tríó Sunnu Gunnlaugs
leikur tónlist eftir Bill Frisell í
Kaffi Kúltúra.
Kl. 23:00 Frelsissveit hins nýja
Íslands leikur í kjallaranum á
Kaffi Kúltúra. Frumsamin tón-
list innblásin af atburðum líð-
andi stundar útsett af Hauki
Gröndal. Sveitina skipa auk
Hauks Óskar Guðjónsson,
Snorri Sigurðarson, Valdimar
Kolbeinn Sigurjónsson, Þor-
grímur Jónsson og Scott
MacLemore.
Vetrarjazzhátíð
LEIKVERKIÐ Gerpla, í leikstjórn
Baltasars Kormáks, verður frum-
sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins í
kvöld. Gerpla, ein kunnasta skáld-
saga Halldórs Laxness kom úr fyrir
tæpum 60 árum en hefur ekki verið
færð á svið fyrr en nú. Leikgerðina
vann Baltasar ásamt Ólafi Agli Eg-
ilssyni og leikhópnum. Í Gerplu
skrifaði Halldór sögu fóstbræðr-
anna Þorgeirs Hávarssonar og Þor-
móðs Kolbrúnarskálds, sem kunnir
eru úr Fóstbræðrasögu, á nýjan
hátt. Hann afhelgar þar hugmyndir
manna um söguöldina og hetjur
hennar en blés um leið nýju lífi í
samband þjóðarinnar við bók-
menntaarfinn.
Jóhannes Haukur og Björn
Thors leika fóstbræðurna
Þetta er áttunda sýningin sem
Baltasar leikstýrir í Þjóðleikhúsinu.
Hann hefur meðal annars sett þar á
svið ýmis stórvirki klassískra leik-
bókmennta, þar á meðal eftir Shake-
speare, John Ford, Ibsen og Tsjek-
hov. Hann hlaut Grímuverðlaunin
fyrir sýningarnar Þetta er allt að
koma og Pétur Gaut.
Með hlutverk fóstbræðranna fara
þeir Jóhannes Haukur Jóhannesson
og Björn Thors. Níu aðrir leikarar
fara með hlutverk í sýningunni.
Grétar Reynisson hannar leikmynd,
Helga I. Stefánsdóttir búninga, Lár-
us Björnsson lýsingu og hljóðmynd
skapar Gísli Galdur Þorgeirsson.
Saga um fóstbræður Úr sýningu
Þjóðleikhússins á Gerplu.
Frumsýna
Gerplu
í kvöld
Ný leikgerð sögu
Halldórs Laxness
Það þykir ekkert
hallærislegt lengur
að kynnast makanum á
Facebook eða Einkamál.is.
40
»