Morgunblaðið - 20.02.2010, Page 4

Morgunblaðið - 20.02.2010, Page 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010 Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ALLS sátu 85 fulltrúar frá 53 aðild- arfélögum ASÍ tveggja daga fund um málefni lífeyrissjóðanna sem lauk á Selfossi í gær. Umræðan fór fram í framhaldi af ályktun seinasta ársfundar ASÍ um heildarendur- skoðun á stefnu í málefnum lífeyr- issjóðanna. Stjórnkerfi lífeyrissjóðanna hefur verið gagnrýnt og var til umræðu á fundinum. „Það er kallað eftir breyt- ingum, auknu gegnsæi og lýðræði við val á stjórnum sjóðanna,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Hann bendir á að verkalýðshreyfing- in kýs í stjórnir sjóðanna á vettvangi fulltrúaráða „en þetta þarf að vera gegnsærra“. Skýra og sterka siðferðiskennd Fram kom meðal fundarmanna mikill stuðningur við að halda teng- ingunni á milli kjarasamninga og líf- eyrissjóðanna. Gylfi segir vilja til að auka gagnsæi og lýðræði við val á stjórnum sjóðanna. „Það þarf að vinna áfram í að finna leiðir til þess að ná þessu fram og viðhalda því að verkalýðshreyfingin og atvinnurek- endur séu bakhjarlar þessa kerfis en að sama skapi finna leiðir til að koma til móts við kröfur um aukið lýð- ræði.“ Miklar umræður fóru einnig fram um fjárfestingarstefnu sjóðanna og einstakar fjárfestingar þeirra. Gylfi segir að fram hafi komið mjög skýr og sterk krafa um siðferði í fjárfest- ingum og við ákvarðanir sjóðanna um fjárfestingar. Þess verði að gæta að lífeyrissjóðirnir séu ekki til frjálsra afnota annarra, heldur komi fram sem virkur þátttakandi á fjár- málmarkaði með skýra og sterka sið- ferðiskennd og af samfélagslegri ábyrgð. „Menn leggja mikla áherslu á að hlutverki verkalýðshreyfingar- innar í uppbyggingu lífeyriskerfisins er ekki lokið,“ segir Gylfi. „Það kom fram mjög sterk áhersla á jöfnun líf- eyrisréttinda á milli almenna mark- aðarins og þess opinbera,“ segir hann. „Nú bíður okkar það verkefni að vinna úr þessu.“ Næstu vikur verði notaðar til þess og svo boðað til for- mannafundar í lok apríl þegar stefnumörkun liggi fyrir. Þá vill ASÍ setjast til viðræðna með atvinnurek- endum um endurskoðun á kjara- samningi um lífeyrismál. Auka lýðræði í sjóðunum  Skýr og sterk krafa um siðferði við fjárfestingarákvarðanir lífeyrissjóðanna  ASÍ-fulltrúarnir leggja þunga áherslu á jöfnun lífeyrisréttinda á vinnumarkaði Þjóðfundarbragur Verkalýðsforingjarnir sátu í hnapp við nokkur hringborð og skiptust á skoðunum á tveggja daga fundi á Hótel Selfossi. Þau mál sem bar hæst á fundinum voru jöfnun lífeyrisréttinda, aukið lýðræði við val í stjórnir lífeyrissjóða og fjárfestingar lífeyrissjóðanna. Eftir Ingibjörgu Rósu Björnsdóttur ingibjorgrosa@mbl.is „HUGMYNDIN er að hafa sýningarsvæði með tjöldum þar sem handverksfólk í búningum sé við hefðbundin störf víkinga og sýni og kenni gestum handbrögðin. Svo geti fólk æft sig í bogfimi, lært skylmingar og kastað öx- um á mark,“ segir Hermann Valsson sem stofnaði fyr- irtækið Viking Travel í fyrra. Hermann var fimmtugur kerfisfræðingur þegar hann missti vinnuna 2008. „Á þeim aldri getur maður gleymt því að komast í þann bransa aftur,“ segir Hermann sem skellti sér á land- varðanámskeið, starfaði eitt sumar í Vatnajökuls- þjóðgarði og hóf svo nám í ferðamálafræði við HÍ. Ferðamenn vilja fræðast Í fyrrasumar bauð hann ferðamönnum upp á við- burðaríkar ferðir um Mývatnssveit. Þá klæddist Her- mann víkingabúningi og kenndi þeim vopnaburð víkinga. Í framhaldinu fékk hann þá hugmynd að bjóða upp á vík- ingavöll þar sem saga og menning íslenskra víkinga væri kynnt og endursköpuð. „Ég gekk í víkingafélagið Rimmugýgi til að læra og þjálfa mig og get núna klofið nafn- spjaldið mitt með öxi á 10 metra færi," segir Hermann nokkuð hróðugur en hann smíðar sjálfur boga og skildi í víkingastíl. Einnig vill Hermann fræða ferða- menn um sögu Íslands, frá því fyrir ís- öld, fram að landnámi og til ársins 1262. „Samkvæmt könnunum sem Ferðamálaráð hefur gert vilja 30-40% ferðamanna læra um menningu og sögu landsins. Svo hefur fólk mjög gaman af þessari víkingafortíð svo það er tilvalið að sameina fræðslu og skemmtun.“ Hermann hef- ur sótt um leyfi til Faxaflóahafna að fá að setja vík- ingavöllinn upp á auðu svæði við Skarfabakka. „Þetta yrði starfrækt í allt sumar og ég myndi þurfa að ráða og þjálfa 10-15 manns. Mér skilst að atvinnuleysi sé mest í aldurshópnum 18-25 ára svo ég sé fyrir mér að þetta gæti verið nokkurs konar vinnuskóli fyrir ungmenni,“ Skylmingar, bogfimi og axarkast fyrir ferðamenn  Viking Travel vill setja upp víkingavöll við Skarfabakka Vígalegur Hermann í fullum skrúða. ÁGÚST Ein- arsson lætur af embætti rektors háskólans á Bif- röst í júní eftir þriggja ára starf og verður eft- irmaðurinn ráð- inn án auglýs- ingar, að sögn formanns stjórn- ar skólans, Andr- ésar Magnússonar. Hann bendir á að ekki séu nein ákvæði í lögum skólans um að auglýsa skuli stöðuna og rifjar upp að nýr rektor Háskól- ans í Reykjavík hafi einnig verið ráð- inn án auglýsingar. „Búið er að skipa valnefnd með þremur stjórnarmönnum, Finni Árnasyni, Ástráði Haraldssyni og mér,“ segir Andrés. „Við erum núna að skoða vænlega kandídata, kanna markaðinn. Þetta er mjög skemmti- legt verkefni, skólinn stendur afar vel, hann er búinn að ganga í gegn- um mikla fjárhagslega end- urskipulagningu. Hagnaður er af rekstrinum og eiginfjárstaðan er nú góð. Við erum með öflugan skóla í höndunum og viljum fá öflugan mann eða konu til að leiða hann áfram inn í framtíðina.“ kjon@mbl.is Ráða rekt- or án aug- lýsingar Andrés Magnússon Ágúst Einarsson hættir á Bifröst í júní Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út aukinn loðnukvóta. Aukningin fel- ur í sér að kvóti Íslands verður auk- inn um tæplega 20 þúsund tonn. Þetta þýðir að heildarkvóti Íslands verður tæplega 110 þúsund tonn. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir að þótt þessi aukning skipti vissulega máli sé þetta lítið magn. Hann vonast eft- ir að frekari mælingar leiði til þess að kvótinn verði enn aukinn. Menn horfi þá ekki síst til vestangöngu sem komi vestur með landinu. Loðnuvinnslur leggja núna áherslu á hrognavinnslu. Hrogna- vinnsla hófst t.d. á Akranesi í gær þegar Ingunn kom með 600 tonn af loðnu. Faxi kom í kjölfarið með svip- að magn til vinnslu. egol@mbl.is Kvótinn aukinn Vonast eftir meiru „Ég tók eftir því eftir fyrri daginn að það var töluvert mikið um að fulltrúar sem voru á fundinum kölluðu eftir auknu lýðræði við val í stjórnir lífeyrissjóðanna. Því mið- ur fannst mér niðurstaðan seinni daginn ekki alveg í samræmi við það en það á svo eftir að vinna úr þessu,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akra- ness. Einnig voru áhættufjárfest- ingar lífeyrissjóða gagnrýndar. Að sögn Vilhjálms kom fram í erindi Bjarna Þórðarsonar trygg- ingastærðfræðings að meðalraun- ávöxtun sjóðanna síðustu 10 ár var um 2%. Á móti hefði verið sýnt fram á að áhættulaus rík- isskuldabréf bæru hærri raun- ávöxtun eða 3,7-4% að meðaltali. „Það kom líka fram hjá Bjarna að ávöxtun lífeyrissjóðanna und- anfarin ár hefði verið sýnd- arávöxtun,“ segir Vilhjálmur. Ávöxtunin hefur sveiflast mikið. Hún var 6,7% árið 2007, hrundi niður í 3,1% 2008 og var neikvæð í fyrra. „Er ástæða fyrir lífeyrissjóð- ina að taka svona mikla áhættu? Ég efast um það.“ Meðalraunávöxtun síðustu tíu ár aðeins 2% VR krefst þess að rekstur fyrirtækja sé reistur á ábyrgð og siðferði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.