Morgunblaðið - 20.02.2010, Qupperneq 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Síðasti dagur
útsölu
60-90% afsláttur
www.rita.is
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Leggings 1.990 kr.
Mussa 5.900 kr.
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
20%
aukaafsláttur
af útsöluvörum
í dag laugardag
Str. 38-56
Í DAG, laugardag, kl. 15.00 standa
Hagsmunasamtök heimilanna og
Nýtt Ísland fyrir ellefta kröfufundi
sínum á Austurvelli. Á mælendaskrá
eru María Jónsdóttir og Sigurður
Hreinn Sigurðsson. Í tilkynningu frá
samtökunum segir: „Eftir þann
glæsilega áfanga sem náðist þegar
dómurinn féll um ólögmæti geng-
istryggða lána er það ennþá mik-
ilvægara að sýna samstöðu og fjöl-
menna sem aldrei fyrr á Austurvelli.
Með því sýnum við stjórnvöldum og
fjármálafyrirtækjum landsins að
baráttan heldur áfram þar til rétt-
látt Ísland hefur litið dagsins ljós.“
Kröfufundur á Austurvelli
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ í sam-
vinnu við Stangaveiðifélag Reykja-
víkur, Veiðihornið og Veiðikortið
efnir til hnýtingakeppni um sil-
ungsflugur. Keppt er í tveimur
flokkum; almennum flokki og ung-
lingaflokki (16 ára og yngri), og
hljóta þrír efstu í hvorum flokki
verðlaun í boði samstarfsaðila
keppninnar. Með þátttöku sam-
þykkir keppandinn að flugan verði
eign Krabbameinsfélags Íslands og
verður hún fjöldaframleidd og seld
til fjáröflunar fyrir félagið. Flugan
þarf að berast Krabbameinsfélag-
inu, Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík,
eigi síðar en 19. mars nk. Þátttaka
er öllum opin.
Besta flugan til Krabbameinsfélagsins
DAGANA 22.-26. febrúar nk. stendur skáta-
hreyfingin fyrir „góðverkadögum“ í fyr-
irtækjum landsins. Góðverkadagar voru
fyrst haldnir í fyrra og tókust ákaflega vel.
Þá var nokkrum fyrirtækjum boðið að taka
þátt og var þátttaka langt umfram vænt-
ingar. Nú í ár hafa góðverkadagar auk fjölda
þátttökufyrirtækja fengið Stöð 2, Bylgjuna
og visir.is til samstarfs og verða „góðverk
dagsins“ kynnt í dagskrá miðlanna og al-
menningur hvattur til þáttöku. Allar upplýs-
ingar um góðverkadaga má finna á
www.godverkin.is.
Góðverkadagar í fyrirtækjum landsins
FÉLAG vélstjóra og málmtækni-
manna lýsir yfir miklum vonbrigðum
með dóm Félagsdóms á fimmtudag,
en dómurinn hafnaði kröfu félagsins
um að það fengi að koma að gerð
kjarasamnings fyrir hönd fé-
lagsmanna sinna í álverinu á Grund-
artanga. Samningar þar eru lausir.
Félagið hefur falið lögmönnum
sínum að kanna möguleika þess að
skjóta málinu til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu í Strassborg.
Félagsdómur sagði m.a. í niður-
stöðu sinni, að ekki hefði verið sýnt
fram á þeir starfsmenn álversins,
sem Félag vélstjóra og málmtækni-
manna krefðist samningsumboðs
fyrir, væru félagsmenn í félaginu.
Illa grunduð niðurstaða
Í tilkynningu frá félaginu er nið-
urstaða dómsins sögð illa grunduð
enda sé hún ekki í samræmi við lög-
verndaðan samningsrétt félagsins
eða vilja starfsmannanna. Að auki
samræmist hún ekki dómafordæmi
Hæstaréttar, sem kveði á um að
lagaheimild og málefnaleg sjónarmið
þurfi til að skerða megi samnings-
rétt stéttarfélaga.
Því til viðbótar samræmist hún
ekki mannréttindaákvæðum stjórn-
arskrárinnar og mannréttindasátt-
mála Evrópu, einkum ákvæðum um
félagafrelsi, sem annars vegar bann-
ar að menn verði þvingaðir til að
vera í stéttarfélagi sem þeir vilja
ekki vera í og hins vegar tryggir rétt
manna til að fela stéttarfélögum sín-
um að semja um kaup.
Félagið vill koma að kjara-
samningum við Norðurál
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dómur Félag vélstjóra og málmtæknimanna fær ekki að koma að kjara-
samningum í álverinu á Grundartanga samkvæmt dómi Félagsdóms.
HÁSKÓLAR landsins munu í dag
kynna námsframboð sitt fyrir
næsta skólaár. Í Ráðhúsi Reykja-
víkur verða Háskólinn á Akureyri,
Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á
Hólum, Háskólinn í Reykjavík,
Landbúnaðarháskóli Íslands og
Listaháskóli Íslands. Háskóli Ís-
lands verður á Háskólatorgi, Gimli
og Odda í Háskóla Íslands. Jafn-
framt verður boðið upp á kynningu
á framhaldsnámi í Danmörku og
Svíþjóð í Norræna húsinu.
Á háskóladeginum munu nem-
endur, kennarar og námsráðgjafar
skólanna taka á móti gestum og
miðla af reynslu sinni. Í Háskóla-
bíói verða litríkar sprengingar og
ýmis efnafræðiundur á dagskrá á
tveimur sýningum, kl. 12 og 14 í sal
eitt. Þá mun Sprengjugengið, hópur
efnafræðinema við HÍ, sýna listir
sínar en hópurinn hefur nokkrum
sinnum sett upp tilkomumiklar
efnafræðisýningar, m.a. á menning-
arnótt. Tilgangurinn er að þeirra
sögn að vekja áhuga fólks á efna-
fræði enda segir forsprakki hópsins
efnafræðina bjóða upp á annað og
meira en að húka yfir stærðfræði-
skruddum og efnafræðiformúlum
alla daga.
Aðsóknin að sýningum Sprengju-
gengisins hefur yfirleitt verið mikil
enda hafa jafnt börn sem fullorðnir
gaman af efnafræðikúnstum hóps-
ins.
Morgunblaðið/Kristinn
Sprengjugengið Vekur athygli
fólks á undrum efnafræðinnar.
Sprengju-
gengi sýn-
ir kúnstir
Fullorðnir fikta með sprengjur