Morgunblaðið - 20.02.2010, Síða 14

Morgunblaðið - 20.02.2010, Síða 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010 Hjartamiðstöðin T ilkynning – Lung nalæ knar Hef opnað læknastofu í Hjartamiðstöðinni, Holtasmára 1, 6. hæð í Kópavogi. Tímapantanir eru í síma 550 3030 eða á www.hjartamidstodin.is Holtasmára 1 • 6. hæð • 201 Kópavogi • Sími 550 3030 • www.hjartamidstodin.is Hans Jakob Beck lungnalæknir Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hinn árlegi bókamarkaður í Perl-unni hófst í gærmorgun. Nokkriráhugasamir viðskiptavinir biðu ínæðingnum fyrir utan inngang- inn áður en opnað var og áður en klukku- tími var liðinn var orðið margt um manninn innandyra. Kristján Karl Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri bókamarkaðarins, segir að í boði séu um 10.000 titlar frá rúmlega 100 bókaútgefendum, allt frá þessum stóru, sem séu með flesta titlana, niður í einyrkja, sem gefi kannski út eina ljóðabók og eigi örfá eintök eftir. Finnur alltaf eitthvað „Ég finn alltaf eitthvað forvitnilegt hérna,“ segir Jón Thoroddsen sem var einna fyrstur á vettvang. Hann bætir við að verð bókanna sé ekki síður aðdráttarafl en úrval- ið og því hafi hann aldrei láta sig vanta á bókamarkað enda sé þetta kjörið tækifæri til þess að kaupa afmælis- og jólagjafir. „Ég er svo sem ekki að leita að neinu sér- stöku,“ segir Jón og vísar til þess að hann eigi þegar gott safn. Hann segist oft hafa gert góð kaup og bendir sérstaklega á lösk- uð eintök Bókmenntafélagsins í því efni. „Það er alltaf spennandi að sjá hvað leynist í hillunum, en ég skima fyrst til þess að hemja í mér græðgina.“ Herdís Steindórsdóttir segist hafa verið að sinna erindum í bænum, séð opnun bóka- markaðarins auglýsta og ákveðið að skella sér. „Ég kom til að kíkja á bók sem heitir Saga daganna en ég sé hana ekki,“ segir hún. Í ljós kom að bókin var ekki til en Her- dís lét það ekki á sig fá og fann aðrar bæk- ur í staðinn. „Ég get ekki sagt að ég sé bókasafnari en mér finnst gaman að líta í þjóðlegan fróðleik og annað slíkt,“ segir hún. Jón Gunnar Baldursson segir að hann reyni að mæta á alla bókamarkaði og sé auk þess tíður gestur í fornbókaverslunum. Hann segir að verðið sé allt annað og betra á þessum stöðum en almennt gerist á nýút- gefnum bókum og hann mæti snemma á fyrsta degi til þess að missa ekki af neinu. „Ég er aðallega að leita að fræði- og skáld- verkum,“ segir hann. Hann segist oftast finna það sem hann leiti að og fyrir vikið sé safnið orðið stórt. „Ætli það megi ekki segja það,“ segir hann spurður hvort hann sé bókasafnari. „Ég á sennilega orðið fullmikið af bókum, en ég er af þessari kynslóð sem las og las og las og get ekki hætt. Mér finnst óskaplega gaman að lestri og fróð- leik.“ Yndisauki og ánægja Fornleifafræðingarnir Sigríður Þorgeirs- dóttir og Lilja Björk Pálsdóttir voru á hött- unum eftir bókum sem tengjast faginu, mættu því snemma og brostu út úr eyrum á leiðinni út. „Það var bara til eitt eintak af þessari,“ segir Lilja Björk og bendir á bók- ina Skálholt, skrúður og áhöld, í nær fullri innkaupakörfunni. „Hún er líka á rosalega fínu verði,“ bætir Sigríður við, en bókin kostaði 1.000 krónur. Stöllurnar komu snemma og voru ekki lengi að fylla körfuna. „Þetta eru allt bækur okkur til yndisauka og ánægju,“ segir Sig- ríður. Lilja Björk segir að vissulega hefðu þær getað keypt fleiri bækur en það væri alltaf hægt að koma aftur. „Það er alltaf hægt að bæta við,“ segir Sigríður og gerir ráð fyrir að þær kíki áður en pakkað verði niður á ný. „Listinn er endalaus,“ segir Lilja Björk. Kræktu í eina eintakið  Hinn árlegi bókamarkaður í Perlunni vekur athygli og er fastur liður hjá mörgum Íslendingum  Mikið úrval bóka gerir það að verkum að margir koma oft og flestir finna eitthvað við sitt hæfi Lestur Jón Gunnar Baldursson segist hafa óskaplega gaman af lestri og fróðleik. Morgunblaðið/Ernir Úrval Herdís Steindórsdóttir fékk ekki bókina sem hún vildi en fann aðrar í staðinn. Varkár Jón Thoroddsen segist skima fyrst til þess að hemja í sér græðgina. Fornleifafræðingar Sigríður Þorgeirsdóttir og Lilja Björk Pálsdóttir fylltu körfuna. „Í SJÁLFU sér var ég ekki að leita að einhverju sérstöku en ég fann áhugaverðar bækur,“ segir Halldór Árnason, sem var í fríi í gær og not- aði tækifærið til þess að kíkja á bókamarkaðinn. Halldór er fæddur og uppalinn í Stykkishólmi og keypti meðal ann- ars bókina Eitt stykki Hólmur. „Hérna er verið að segja frá kyn- slóðinni í Hólminum áður en ég fæddist,“ segir hann. Landneminn mikli, ævisaga Stephans G. Steph- anssonar, heillaði hann líka. „Ég hef alltaf ætlað mér að fara í gegn- um þessa sögu og þetta er byrjunin en ég sá ekki seinna bindið. Svo er hérna lokabindið af sögu Einars Benediktssonar eftir Guðjón Frið- riksson. Auk þess tryggði ég mér Bót í máli, leiðsögn um gott málfar og gildi þess. Hún kemur sér örugglega alltaf vel, en ég gæti þess að kaupa ekki of margar bæk- ur í einu.“ Stillir kaupunum í hóf Ánægður Halldór Árnason keypti fjórar áhugaverðar bækur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.