Morgunblaðið - 20.02.2010, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 20.02.2010, Qupperneq 24
24 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010 HANN nostrar við krítartöflu Bethlehem-kvikmyndahússins ungi pilturinn í Kibera, fátækrahverfi í Nairobi, höfuðborg Keníu. Eins og sjá má er Scorpion King, bandarísk ævintýramynd með hasar- hetjunni The Rock, fyrst á efnisskránni. Tilhlökkunin leynir sér ekki. Reuters BÍÓDAGAR Í KIBERA Eftir Baldur Arnarson og Guðna Einarsson RÓTTÆKIR íslamistar njóta vax- andi hljómgrunns í Noregi á meðan fylgi við öfgastefnur til hægri og vinstri er nánast óbreytt, þrátt fyrir efnahagssamdrátt í kjölfar fjármála- kreppunnar haustið 2008. Þetta er mat öryggisdeildar norsku lögreglunnar (PST) en Trond Hugubakken, upplýsingafulltrúi hennar, segir aðspurður í samtali við Morgunblaðið að ekki sé hægt að veita upplýsingar um hvernig fylgst sé með slíkum hópum og umsvifum þeirra. Hugubakken er einnig þögull sem gröfin þegar hann er inntur eftir því hversu margir einstaklingar séu taldir aðhyllast íslamska öfgastefnu í Noregi en hann leggur áherslu á að hér beri að greina sundur venjulega múslíma sem setjist að í landinu og öfgamenn í röðum íslamista. Hryðjuverkaógnin óbreytt Þrátt fyrir þessa ógn hefur matið á hryðjuverkaógninni sem talin er steðja að Noregi ekki verið hækkað en það hefur verið í lægsta þrepi frá árinu 2006, eftir að hafa verið í þrep- inu þar fyrir ofan í um ár eða svo. Hugubakken verst einnig svara þegar hann er beðinn að skýra hvað ýti undir málstað öfgamanna og kemst svo að orði að það sé á verk- sviði stjórnmálamanna að tjá sig um það. Né heldur vill hann svara því á hvaða svæðum öryggisdeildin telji að öfgamenn séu að skjóta rótum ef frá er talin höfuðborgin, Ósló. Slíkar upplýsingar séu trúnaðarmál. Eins og greint hefur verið frá á vef Morgunblaðsins telur öryggisdeildin að ógnin frá öfgatrúuðum múslimum í Noregi geti aukist ef erlendir tengi- liðir þeirra ákveði að beita sér gegn skotmörkum í Evrópu. Þá óttast deildin að fleiri einstaklingar fari í þjálfunarbúðir á átakasvæðum en hún telur að þeir geti orðið bein ógn við öryggi landsins, enda hafi þeir þar fengið reynslu í bardögum og hugmyndafræðilega hvatningu til að vinna hryðjuverk. Ennfremur gerir deildin ráð fyrir að einstaklingar með tengsl við átakasvæði og íslamskar öfgahreyf- ingar flytjist til Noregs en hún hefur einnig áhyggjur af því að ungt fólk gangi til liðs við slíkar hreyfingar. Yfirmaður öryggisdeildarinnar, Janne Kristiansen, staðfesti í samtali við Aftenposten að margir ein- staklingar hefðu farið frá Noregi til náms við róttæka skóla múslima í öðrum löndum, svo sem við íslamska háskólann í Medina í Sádi-Arabíu. Viðbrögð hófsamra múslíma Fyrr í mánuðinum mótmælti fjöldi múslíma birtingu Dagbladet á skop- teikningum af Múhameð. Íslamistinn Mohyeldeen Mohammad gaf við það tilefni í skyn að birtingin kynni að hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér en hann hefur opinberlega stutt dauðarefsingu við samkynhneigð. Abid Raja, pakistanskur stjórn- málamaður í Frjálslynda flokknum í Noregi, hefur fordæmt ummælin og sagt að hófsamir múslímar í Noregi verði að svara slíku ofstæki. Ógn af öfgastefnu  Norðmenn óttast vaxandi fylgi við róttækar jaðarstefnur  Öryggisyfirvöld eru treg til að veita upplýsingar um málið Reuters Til Mekka Frá mótmælunum í miðborg Ósló fyrr í mánuðinum. BANDARÍSKIR vísindamenn við Cornell-háskóla í New York hafa gert þá merku uppgötvun að afurðir draumaverk- smiðjunnar í Hollywood fylgi formúlu, nánar tiltekið stærðfræði- formúlu þar sem lengd at- riða tekur mið af athyglisgáfu áhorfenda. Myndirnar sem rannsakaðar voru nutu allar velgengni í miða- sölu en þær voru um 150 talsins og frumsýndar á tímabilinu frá 1935 til 2005. Fjallað er um málið í vísinda- ritinu New Scientist en þar segir að Star Wars-myndirnar Revenge of the Sith, frá 2005, og The Empire Strikes Back, frá 1980, hamfara- myndin The Perfect Storm, frá 2000, gamanmyndin Pretty Woman frá 1990, og hin klassíska mynd James Dean, Rebel Without a Cause, frá 1955, séu allar dæmi- gerðar fyrir þau stílbrögð að miðla mátulega miklum upplýsingum í hverjum myndramma. Reyni mátulega á áhorfandann Niðurstaðan er rökrétt enda má ætla að myndir með löngum senum reyni meira á áhorfendur en stuttar senur, auk þess sem rannsóknin rennir stoðum undir þá tilgátu að of mikið upplýsingaflæði geti dregið úr skemmtanagildinu. Á móti kemur að þessi ágæta formúla kann að skýra hvers vegna svo margar afurðir draumaverk- smiðjunnar svokölluðu skilja svo lít- ið eftir sig. Hollywood- formúlan afhjúpuð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.