Morgunblaðið - 20.02.2010, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 20.02.2010, Qupperneq 30
30 UmræðanKOSNINGAR 2010 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010 Í DAG, 20. febrúar, fer fram prófkjör Nes- listans, framboðs Bæj- armálafélags Seltjarn- arness í komandi sveitarstjórnarkosn- ingum 29. maí. Þá gefst íbúum Seltjarnarness tækifæri til að taka þátt í opnu prófkjöri og velja á lýðræðislegan hátt full- trúa Neslistans, þar sem tvö efstu sætin eru bindandi. Seltirn- ingar sem aðhyllast grunnhug- myndir félagshyggju ættu ekki að láta þetta tækifæri framhjá sér fara. Tækifæri til að hafa áhrif á vinnu- brögð og áherslur stjórnsýslunnar hér í bæ á komandi kjörtímabili. Neslistinn býður nú fram í sjötta sinn en Bæjarmálafélagið hefur stað- ið að framboði listans frá stofnun þess árið 1990. Ég býð mig fram í 2.-4. sæti Neslistans. Ég er fæddur og uppalinn í Borgarnesi. Ég lærði mat- reiðslu á árunum 1992- 1996 og lauk síðan meist- araprófi í þeirri iðn árið 2006. Í dag starfa ég hjá Orkuveitu Reykjavíkur en hef áður starfað á virtum veitingahúsum bæði hér á landi sem og erlendis. Ég og eiginkona mín, Vigdís Hallgrímsdóttir, fluttum á Nesið árið 2003 og dætur okkar tvær hafa lokið leikskólagöngu sinni og una sér nú vel í Mýrarhúsa- skóla. Ég kann mjög vel við sam- félagið hér á Nesinu, smæðina og auðsótt návígi við náttúruna og árs- tíðabundnar birtingarmyndir henn- ar. Allt hefur sinn tíma í þessu lífi, nú er tími breytinga. Brýn þörf er á að forgangsraða rétt á næstu misserum. Málaflokkar sveitarfélagsins þurfa faglega og málefnalega meðferð á tímum þrenginga og aðhalds. Eitt eru tímabundnar auknar álögur, ann- að er að tryggja óskerta grunnþjón- ustu. Gæta ber jafnræðis og jafn- réttis. Skýr krafa er uppi um virkt íbúalýðræði og opna stjórnsýslu, ekki síst í skipulagsmálum. Á líðandi kjörtímabili hef ég verið aðalmaður Neslistans í umhverfisnefnd sem og varabæjarfulltrúi. Einnig hef ég gegnt formennsku bæjarmálafélags- ins síðastliðin tvö ár. Ósk mín er sú að á Seltjarnarnesi ríki búsetuskilyrði sem höfða til allra aldurshópa og geri Nesið að spenn- andi kost til framtíðar. Þátttaka þín í þessu prófkjöri skiptir máli, góð kjörsókn á laugardaginn styrkir framgöngu bæjarfulltrúa Neslistans. Seltirningum býðst opið prófkjör Neslistans Brynjúlfur Halldórsson Brynjúlfur Halldórsson Höfundur er matreiðslumeistari og er formaður Bæjarmálafélags Seltjarnarness. ÞRÓUN Kópavogs síðustu tvo áratugina hefur einkennst af stór- hug og áræði sem hefur skilað sér í 30.000 manna bæ í fremstu röð á öllum sviðum. Þessi uppbygging á að halda áfram. Þótt á henni hægist nú um nokkurt skeið má ætla að næstu þrjú til fjögur kjör- tímabil fjölgi íbúum Kópavogs um 10-15 þúsund. Uppbygging á ekki að vera eingöngu uppbyggingarinnar vegna en hins vegar þarf tiltekinn fjöldi íbúa að vera fyrir hendi á hverju svæði til að standa undir góðri þjónustu innan hverfa. Skipu- leggja þarf bæinn í góðri sátt við íbúa með nýtingu fjárfestinga og þjónustuaðgengi bæjarbúa fyrir augum. Miðsvæði Kópavogs Eftir því sem Kópavogur stækkar og eflist gerir miðbærinn það líka. Gamli miðbærinn, menningarholtið, Kópavogstúnið og Kópavogsdal- urinn og Smáralindarsvæðið er í raun hinn nýi miðbær Kópavogs. Á næstu árum ætti að skipuleggja þetta svæði með það í huga að laða að fólk og ferðamenn. Þetta mun styrkja alla atvinnustarfsemi á svæðinu, auka nýtingu stofnana bæjarins og auðga mannlífið. Í Kópavogsdal gæti komið veitinga- og afþreying- araðstaða umkringd t.d. grasagarði Kópavogs. Margar góðar hugmyndir hafa verið á lofti um nýt- ingu Kópavogstúnsins fyr- ir safn þar sem sagan yrði í fyrirrúmi og svona má lengi telja. Heilsubær allra aldurshópa Heilsa og vellíðan á að vera ofarlega á forgangslista okkar. Veraldleg gæði eru lítils virði ef við höfum ekki heilsu til að njóta þeirra. Til að bæta heilsufar almennings þarf langtímahugsun og þar geta bæjaryfirvöld leikið stórt hlutverk. Margir njóta góðs af starfsemi öfl- ugra íþróttafélaga bæjarins en það eru þeir sem eru óvirkir sem ná þarf til. Með því að gera Kópavog að heilsubæ fyrir alla aldurshópa, ekki síst eldri borgara og börn, má ná fram miklum sparnaði í heilbrigð- iskerfinu og auka lífshamingju fólks. Við eigum í dag börn sem vonandi munu una sér vel í Kópavogi fram- tíðarinnar og skulum því hugsa til lengri tíma, jafnvel þótt það sé ekki alltaf stysta leiðin til persónulegra vinsælda. Framtíðin er björt í Kópavogi Eftir Jóhann Ísberg Jóhann Ísberg Höfundur er formaður Sjálfstæðis- félags Kópavogs og býður sig fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Í DAG fer fram prófkjör okkar sjálf- stæðismanna í Kópa- vogi. Niðurstaða þess er mikilvæg fyrir Sjálfstæðisflokkinn í bænum sem og á landsvísu. Það er mik- ilvægt að sjálfstæð- ismenn í Kópavogi sýni að þeir séu tilbúnir til að horfa fram á veginn og ganga til móts við nýja tíma. Það er mikið undir því komið að við sýnum að við séum óhrædd við að endurnýja flokkinn og endur- skilgreina vinnubrögð okkar eftir því sem nauðsyn krefur. Slíkt er eðlilegt viðhorf í kreddulausu samfélagi þar sem ætíð er reynt að ná sem bestum árangri. And- stæða þess er stöðnun. Ný forysta og nýjar áherslur Það er undir okkur sjálfstæðis- mönnum í Kópavogi komið að stilla upp sterkum lista sem mun skila góðum árangri í vor. Allt mælir með því að það takist. Við höfum úr breiðum og hæfum hópi frambjóðenda að velja. Þar fer saman þekking og reynsla úr sveitarstjórnar- og félagsmálum sem og atvinnulífi. Í hópi fram- bjóðenda eru einstaklingar sem eru fullir af krafti og hugmyndum og reiðubúnir að leiða Kópavog inn í nýja tíma. Við skul- um nýta okkur þetta og kjósa nýja forystu og nýjar áherslur. Veljum traust, gagnsæi og ný vinnubrögð Til að ná árangri í vor verðum við sjálfstæð- ismenn að tala með skýr- um hætti til kjósenda. Það á ekki að vera nein- um vafa undirorpið hvað við stöndum fyrir. Við viljum ábyrga fjármálastjórn á krefjandi tímum, við viljum dreifa byrðunum með sanngjörnum hætti, við viljum að það sé gott að eldast í Kópavogi, við viljum halda hjólum atvinnulífsins gangandi, við vitum að aukið gagnsæi er hagsmunamál okkar allra og við viljum standa vörð um þann góða árangur sem við höfum náð Til að þessi markmið náist þurfa ákveðin grundvallargildi að vera í hávegum höfð. Við skulum velja traust, gagnsæi og ný vinnubrögð í prófkjörinu í dag. Ég hvet sjálfstæðismenn í Kópavogi til að fjölmenna og taka þátt í prófkjörinu og gefa skýr skilaboð um hvernig Sjálfstæð- isflokkurinn á að vinna. Prófkjörið í Kópavogi fer fram í dag Eftir Ármann Kr. Ólafsson Ármann Kr. Ólafsson Höfundur er forseti bæjarstjórnar Kópavogs og býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna. Í DAG ganga Kópa- vogsbúar til kosninga í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í skugga efna- hagslegra hamfara og þeirrar spillingar sem á mesta sök á óförum þjóðarinnar. Uppgjör við fortíðina er jafnóum- flýjanlegt og það að sækja fram og byggja upp á ný. Fólkið sem velst til starfa í þessum kosningum skiptir sköpum fyrir framtíðina. Við þurfum nýtt og öfl- ugt fólk en fyrst og fremst heiðarlegt. Til að svo megi verða þarf þátttakan að verða mikil annars er hætt við að lýðræðisleg sjón- armið nái ekki að tryggja Kópavogsbúum bestu nið- urstöðuna. Spunameist- arar flokkseigendafélags mega ekki í skjóli lítillar þátttöku einoka heilbrigða stjórnmálaumræðu. Tómas Guðmundsson orti: Því meðan til er böl sem bætt þú gast og barist var á meðan hjá þú sast er ólán heimsins einnig þér að kenna. Stuðningsmenn Sjálfstæð- isflokksins sem ekki taka þátt í lýðræðislegum kosningum hans eiga það á hættu að bera ábyrgð á nið- urstöðu sem þeir eiga engan þátt í. Það má kalla að sofa á verðinum. Ég skora á Kópavogsbúa að taka þátt í prófkjörinu þannig að við getum gengið inn í framtíðina bjartsýn og sterk. Nýtum kosningaréttinn Sigurjón Sigurðsson Sigurjón Sigurðsson Höfundur er framkvæmdastjóri og formaður HK. Hann býður sig fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is . Föstudaginn 5.mars kemur út hið árlega Fermingarblað Morgunblaðsins. Fermingarblaðið hefur verið eitt af vin- sælustu sérblöðum Morgunblaðsins í gegnum árin og verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt. Fermingarblaðið verður borið frítt inn á heimili allra fermingarbarna á öllu landinu. Látið þetta glæsilega Fermingarblað ekki framhjá ykkur fara. MEÐAL EFNIS: Veitingar í veisluna. Mismunandi fermingar. Skreytingar í veisluna. Veisluföng og tertur. Fermingartíska. Hárgreiðsla fermingarbarna. Fermingarmyndatakan. Fermingargjöfin í ár. Hvað þýðir fermingin. Viðtöl við fermingarbörn. Nöfn fermingarbarna. Fermingarskeytin Og fullt af öðru spennandi efni. FERMINGAR PANTAÐU AU LÝSINGAPLÁSS FYRIR 1. MARS PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 1. mars. Ferm ing MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út- gáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofn- ana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.