Morgunblaðið - 20.02.2010, Blaðsíða 49
Dagbók 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010
Enn um kvótakerfið
– nú verður að
nota skynsemina
MIKIÐ hefur verið
skrafað og skrifað um
kvótakerfið að und-
anförnu og því miður
flest á neikvæðum nót-
um. Ég sjálfur er þar
ekki undanskilinn en
það er kannski ekki
óeðlilegt þegar um er
að ræða deilur milli
andstæðra fylgjenda
mismunandi sjón-
armiða. Það var því
ánægjulegt að lesa
grein Guðmundar
Ragnarssonar í Mbl. 29. janúar sl. þar
sem fjallað er um deilumálið á jákvæð-
an og skynsamlegan hátt. Ég get tekið
undir flest sem fram kemur í grein
Guðmundar en mér finnst þó vanta
nokkuð upp á að öllu séu gerð grein-
argóð skil. Ég er t.d. sammála Guð-
mundi um að fyrningarleiðin svoköll-
uð er ekki vænleg aðferð til að leysa
vandamálið eins og hún er sett fram í
dag, enda óraunsæ og tekur ekki á
vandamálinu að fullu. Þetta getur ein-
faldlega ekki gengið upp óbreytt fyrir
hvern sem er. Það er því nauðsynlegt
að leggja hana til hliðar á meðan
nefnd sem fjalla á um málið hefur ekki
lokið störfum.
Þegar kerfið var sett á laggirnar
upphaflega átti það fyrst og fremst að
stuðla að betra skipulagi á veiðunum
og verndun fiskstofnanna. Mér finnst
að hvorugt hafi gengið eftir. Þar er
fyrst og fremst um að kenna stækkun
flotans og öflugri veiðarfærum sem
hafa skapað vanda á uppeldisstöðvum
íslensku fiskstofnanna.
Mér finnst því að á
þessu máli verði að taka
með því að vernda
hrygningarstöðvarnar
með því að friða ákveðin
svæði og takmarka
veiðiheimildir innan
ákveðinna marka svo
sem t.d. innan 12 mílna.
Það mætti gera á marg-
an hátt sem ég mun
ekki fjalla um ítarlega í
þessari grein. Eitt væri
t.d. að leyfa aðeins
krókaveiðar innan þess-
ara marka sem væru
öllum heimilaðar eftir
ákveðnum reglum en
aflamark ákveðið af stjórnvöldum.
Eitt er víst að kerfið hefur gengið sér
til húðar og aldrei mun verða nein
sátt um það í núverandi mynd. Þessu
verða kvótahafar að gera sér grein
fyrir og sætta sig við. Hitt er annað
mál að ekki er nauðsynlegt að ganga
fram af slíkri hörku að það leiði til
gjaldþrots fjölda fyrirtækja ef hægt
er að komast hjá því þótt vissulega
megi segja að sumir a.m.k eigi ekkert
betra skilið. En um þetta mál verður
aldrei nein sátt nema allir aðilar komi
að málinu og komist að sameiginlegri
niðurstöðu. Ég vona að sjávarútvegs-
ráðherra vilji leysa málið á sem hag-
kvæmastan hátt fyrir greinina og
þjóðarbúið í heild sinni og láti skyn-
semina ráða en ekki að pólitísk sjón-
armið ráði ferðinni einhliða.
Hermann Þórðarson,
fyrrverandi flugumferðarstjóri.
Ást er…
… þegar hjarta þitt
hefur gert upp hug sinn.
Velvakandi
Hörður Björgvinsson er eins ogfleiri hagyrðingar sem stigið
hafa fram upp á síðkastið – hann á
sér uppáhaldsfjall:
Fegurð heillar hvar sem er
heims á ferðaleiðum,
Vék þó vart úr huga mér
Vörðufell á Skeiðum.
Hreinn Þorkelsson á sér líka eft-
irlæti:
Frelsi og tign í fasi ber
fannahvítur hökull
hjartans djásn og augna er
Eyjafjallajökull
Ármann Þorgrímsson hefur
ástæðu til að fagna – vitaskuld í
bundnu máli:
Ennþá getur af sér fætt
ástin blóm sem vaxa hratt
Hefur stækkað Hraunkotsætt
hér við bættist ein í nótt
Björn Ingólfsson óskaði honum
til hamingju:
Úti á lífsins ólgusjó
Ármann hefur vöxtinn rétta.
Orðinn langi-afi þó
ekki sé hann lengri en þetta.
Þá Friðrik Steingrímsson:
Hér er lítil frænka fædd,
frændi þú ert ríkur.
Fegurð bæði og gáfum gædd,
genið engan svíkur.
Þegar Jón Arnljótsson kom inn
úr fjósinu var Veðurstofan að
kveðja og segja hvenær næsta spá
kæmi – af því fékk hann þessa
flugu:
Baldur var bóndi á Fréttá,
blesótta gripi hann sett’á.
Veðrið oft las,
wiský með glas.
Honum er lífið svo létt hjá.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af fjöllum og frænku
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞÚ VEIST AÐ ÞAÐ ER
LANGLÍFI Í ÆTTINNI MINNI
FRÆNKA MÍN, EDDA, ER ORÐIN
102 ÁRA GÖMUL EN ER ENNÞÁ
ÓTRÚLEGA SKÝR Í KOLLINUM
ÞESSI SEM
SAUMAR BUXUR
Á HÆNURNAR
SÍNAR?
JÁ, OG HÚN
KEYRIR LÍKA!
NÚ ER
LÍFIÐ
BÚIÐ!
LÁTUM OKKUR SJÁ...
ÞIÐ PÖNTUÐUÐ FIMM
STÓRA HUMRA...
ÉG GERI EKKI RÁÐ FYRIR ÞVÍ AÐ ÞIÐ ÞURFIÐ HJÁLP VIÐ AÐ
BRJÓTA SKELJARNAR... OG ÉG SLEPPI LITLU GÖFFLUNUM
ERTU ENNÞÁ
AÐ HORFA Á
ÓLYMPÍU-
LEIKANA
Í KÍNA?
JÁ. ÉG
ER AÐ
HORFA Á
FRJÁLSAR
ÍÞRÓTTIR
SVAKALEGA
HLEYPUR ÞESSI
KÍNVERJI HRATT!
HVAÐA GREIN
ER ÞETTA
EIGINLEGA?
HLAUP,
HOPP OG
LANDFLÓTTI
SÆLL,
RAJIV
ÉG FRÉTTI AÐ ÞÚ HEFÐIR
SÉÐ FLJÚGANDI FURÐUHLUT HVERNIGVISSIR
ÞÚ ÞAÐ
EIGINLEGA?
ÉG SÁ
MYNDBANDIÐ
SEM ÞÚ SETTIR
Á „YOUTUBE“
HVER
SETTI ÞAÐ
Á NETIÐ?
VEIT ÞAÐ EKKI, EN
200.000 MANNS HAFA
HORFT Á ÞAÐ SÍÐUSTU
ÁTTA TÍMANA
KOMIÐ
SÆL
ÞIÐ MEGIÐ
FAGNA EF ÞIÐ
VILJIÐ
FYRST VULTURE ER
EKKI Í HÆTTU LENGUR
GET ÉG FARIÐ OG
NÁÐ Í JAMESON
ÞÚ HEFÐIR FREKAR ÁTT AÐ
PASSA UPP Á SJÁLFAN ÞIG!
UNNNHHH!
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag