Morgunblaðið - 20.02.2010, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 20.02.2010, Qupperneq 51
Menning 51FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2010 SÍ© ASTA S∞N IN GARH ELGI !          Leiðsögn þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10 Sjá nánar fræðsludagskrá á www.listasafn.is Ókeypis aðgangur | Opið daglega kl. 11-17 | Lokað mánudaga Fríkirkjuvegi 7 | 101 Reykjavík Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. 11–16, sunnud. 14–16 Listmunauppboð á næstunni Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma 551-0400, 896-6511 (Tryggvi), 845-0450 (Jóhann) Erum að taka á móti verkum núna í Galleríi Fold við Rauðarárstíg Sérkennileg umræða hefurskapast í kringum fatahönn-un Birtu Björnsdóttur undir merkinu Júníform. Fáum stuttu út- gáfuna af málavöxtum, eða eins stutta og hægt er: Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönn- unarbrautar Listaháskóla Íslands og fatahönnuður sendir Evu Maríu Jónsdóttur, dagskrárgerðarkonu á RÚV, bréf eftir úrslitakvöld Söngvakeppni Sjónvarpsins þar sem hún segir að kjólarnir sem hún, Eva María, og Ragnhildur Steinunn klæddust (eftir Birtu sem sagt) hafi verið ljótir og Sjón- varpið, „sem beri skylda til að sýna ávallt það sem er best í menningu, hönnun og listum,“ hafi brugðist. Birta svaraði fyrir sig í Frétta- blaðinu þar sem hún segir m.a. „Það kemur mér spánskt fyrir sjónir að aðjúnkt og fagstjóri við Listaháskóla Íslands komi fram í fjölmiðlum, með sterka sleggju- dóma sem þessa á íslenskan fata- hönnuð, faglærðan eða ekki.“    Birta sendi síðan rektor LHÍbréf þar sem hún fer fram á formlega afsökunarbeiðni. Hjálmar Ragnarsson, rektor Listaháskól- ans, varð ekki við því og styður Lindu 100%. Linda svarar síðan í Fréttablaðinu í gær þar sem hún áréttar að fatahönnun sé fag sem krefst sérþekkingar og nær á ein- hvern ótrúlegan hátt að gera dóna- skap að dyggð. Gunnar Hilm- arsson, formaður Félags fatahönnuða, segir hins vegar í Fréttablaðinu að bréfið hafi verið óþarft, og það sé „vísindalega ómögulegt að sanna hvort kjóll sé ljótur eða flottur.“ Ja hérna hér. Sérkennileg um- ræða, sagði ég í upphafi, en hér er verið að togast á um aldagamalt bitbein. Hvenær er eitthvað flott og hvenær ekki? Er hægt að þykja Buffalo-skór flottir eða eru þeir í eðli sínu ljótir? Þetta eru grund- vallarspurningar um fagurfræði og í raun um ákveðið viðhorf til hlut- anna. Er Britney Spears jafn merkileg og Mozart. Já, segja sum- ir, nei, segja aðrir og svo verður allt vitlaust. Mesta athygli vekur þó hversu heiftúðug rimman á milli Birtu og Lindu er, líkt og stungið hafi verið á einhverju kýli.    Ég verð að segja að þetta bréfLindu er sérstakt. Ekki er hægt að segja að álit hennar hafi verið sett faglega fram, það er meira eins og hún sé að skyrpa því út úr sér í bræði. Linda segir að gagnrýni hennar beinist gegn framsetningu RÚV í heildina (leik- mynd, umgjörð, förðun o.s.frv.) sem er gott og vel en manni blöskr- ar framsetningin. „Ykkur tókst í kvöld að upphefja eitthvað það versta sem er að gerast í fatahönn- un á Íslandi,“ segir hún í bréfinu til Evu og beinir orðunum gegn ein- um hönnuði. Eðlilegra hefði mér þótt að tala um ákveðna strauma, ákveðna þróun í heild yfir fremur en einn hönnuð, ef það þarf að lýsa áliti sínu á fatahönnun á Íslandi, og þá sérstaklega ef það kemur frá manneskju í þessari stöðu. Svo seg- ir í bréfi Lindu „þetta myndi ekki gerast hjá BBC“.??? Undarlegt. Birta gengur sköruglega fram í sínu bréfi. Hönnun Júníform nýtur mikilla vinsælda hérlendis, fötin eru í tísku, en auðvitað liggur á milli hluta hvort þau „eru“ flott eð- ur ei. Smekkur er persónubund- inn? Eða hvað? Birta segir fáránlegt að Linda sé með persónulega sleggjudóma í skjóli stöðu sinnar í LHÍ en Linda segir álit sitt faglegt, ekki persónu- legt.    Merkilegast er þó að lesa bréfsem Linda sendir Frétta- blaðinu í gær. Þar segir hún fata- hönnun fag sem hafi ekkert með persónulegan smekk að gera. Gott og vel. Hún tiltekur „efnistök, tækni, innsæi, þekking á faginu, heilindi og einlægni,“ sem eitthvað sem einkenni góða fatahönnun. En bíðum aðeins hæg. Sprenglært tón- skáld getur búið til hundleiðinlega tónlist. Amatör getur búið til und- urfagra tónlist sem tosar í hjarta- strengi, fyllir fólk andagift og feg- urð. Vivienne Westwood er ófaglærð. Það þýðir væntanlega að fötin hennar eru sjálfvirkt ljót. Það sem stingur þó mest er að dónaskapur sé tiltekinn sem kost- ur. Linda tiltekur frægar fígúrur, yfirmenn í virtum skólum og menn eins og Simon Cowell sem dæmi um þetta, að harðneskjuleg fram- ganga og dónaskapur sé málið. „Það er komin tími til á Íslandi að fólk megi opna munninn og segja sína skoðun,“ segir hún. Takk fyrir. En er kennari í Listaháskóla á litla Íslandi kominn á sama stall og þetta fólk? Og er framkoma þeirra og hegðun til eftirbreytni? Skoðun og gagnrýni er hægt að orða á mun faglegri og nærgætnislegri hátt og þannig kemst hún betur og dýpra til skila. Að láta fólk skjálfa á beinum hefur ekkert að segja. Ég fullyrði að engum finnst þetta snið- ugt nema því fólki sem valdi sínu beitir á þennan ógeðfellda hátt.    Lindu fannst kjólarnir ljótir.Gott og vel. Það er ekki vandamálið. Vandamálið er hvern- ig þeirri skoðun var komið á fram- færi. arnart@mbl.is Pilsaþyturinn mikli »Ég verð að segja aðþetta bréf Lindu er sérstakt. Ekki er hægt að segja að álit hennar hafi verið sett faglega fram, það er meira eins og hún sé að skyrpa því út úr sér í bræði. Morgunblaðið/Valdís Thor Ver sig Birta Björnsdóttir. AF FATAHÖNNUN Arnar Eggert Thoroddsen Morgunblaðið/Valdís Thor Júníform Hönnun eftir Birtu. Morgunblaðið/Eyþór Hörð Linda Björg Árnadóttir. TÓNLISTARMAÐURINN Elton John lét þau ummæli falla í viðtali við bandaríska tímaritið US að Jesús hefði verið samkynhneigður. Elton sagði Jesú hafa verið „sam- úðarfullan, ofurgreindan, samkyn- hneigðan mann sem hefði haft fullan skilning á vandamálum manna“. Þessi ummæli Eltons hafa farið heldur illa í marga af æðstu kirkj- unnar mönnum í Bandaríkjunum. Elton ræddi einnig við blaðamann um eiturlyf, frægð og kristna trú. Hann benti á að Jesús hefði fyr- irgefið þeim sem krossfestu hann og viljað að menn sýndu hver öðrum ást og hlýju. „Ég skil ekki af hverju fólk er svona grimmt. Prófaðu bara að vera samkynhneigð kona í Miðaust- urlöndum – það jafngildir dauða- dómi,“ sagði Elton. Meðal þeirra sem brugðist hafa illa við ummælunum er Stephen Green sem fer fyrir hægrisinnuðum kristnum hópi, Christian Voice. Hann segir ummæli Eltons kjaftæði. „Biblían segir að Jesús hafi verið syndlaus maður og því getur hann ekki hafa verið samkynhneigður,“ segir Green. Reuters Elton Var Jesús samkynhneigður? Jesús sam- kynhneigð- ur, að sögn Elton John

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.