Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 10.11.1962, Page 10

Skólablaðið - 10.11.1962, Page 10
- 74 I. ALSAKOT er ekki aðeins innsti bærinn í dalnum, heldur eini bærinn. Sá, sem gaf bænum nafn, hefur annaðhvort verið maður með mjög sérstæða kýmnigáfu, eða heimslcur eins og kapítalisti. Enginn staður á íslandi verðskuldar siður nafnið Hálsakot en þessi kaldrana- legi og hrjóstrugi útkjálki, sem ber hið fegursta nafn í heimi. II. Hálsakot heyrir ekki til hinna gömlu rómantísku torfbæja, þar sem kveðnar eru rímur í hlýrri baðstofu og akfeitar heimasætur renna hýru auga til stúdenta og sýslumannssona. Fljótt á litið virðist sjálfur bærinn vera ólögulegur fjóshaugur, sem rignt hefur niður um langan tíma. I þessum saggafulla og draugalega torfkumbalda, langt í burtu frá skarki lífsins, búa ógrynni af köngurlóm og pöddum, nokkr- ar hagamýs, gamall maður, tveir kettir og einn hundur, sem sjaldan er heima við. III. Eiginlega á þessi saga að fjalla um karlinn. Ekki vegna þess,að hann má bæta titlinum "óðalsbóndi" aftan við nafn sitt, né heldur vegna þess, að hann er sagður eiga kistil fullan af peningum grafinn í jörð. Ekki er ástæðan heldur sú, að karlinn er sagður hálfgeggjaður sérvitringur, sem flytja ætti til höfuð- borgarinnar. Ef til vill er ástæðan sú, að hann er sá síðasti. IV. Karlinn heitir Þórður í Hálsakoti, og er venjulega nefndur : Fíflið í kotinu, karlskrattinn eða þegar bezt lætur karl- bjálfinn, eða einhverju álíka nafni, sem lýsir hjartagæzku almennings. Hversu lengi hann hefur búið í Hálsa- koti veit enginn. Hann hefur eins lengi og menn muna verið þar á sinum stað rétt eins og tunglið og stjörnurnar. Hver hann er, hvaðan hann er og hvert hann fer, hugsar enginn lengur. Hann hefur lifað sína kynslóð og stend- ur nú einn uppi í heimi, sem er honum framandi. Reyndar á Þórður vin, sem hann get- ur sagt allt. Þessi vinur er hundur, sem að vísu er tröllheimskur, en hann er skilningsríkari en heil þjóð. Annars er þessi hundur hinn mesti grmisti og væri til með að gera gys að öllu saman, en að minnsta kosti hlustar hann ætíð með athygli og lætur sér ekki detta í hug að glotta eins og maður. V. Venjulega gengur lífið x Hálsakoti sinn vanagang, en stundum drekkur Þórður sig fullan í brennivini og kveður rímur eftir sigurðbreiðfjörð, svo að undir tek- ur í hreysinu. Þegar Þórður er fullur gleymast all- ar erjur. Og hundurinn - ef hann er þá ekki að snöltra út um sveitir - situr kyrr og lætur vera að gelta að köttunum. En kattaskrattarnir lygna geispandi aftur augunum gersneiddir öllum. áhuga á þjoðlegheitum. Þegar Þórður hefur fengið nóg af sigurðibreiðfjörð , kallar hann á hundinn og ræðir við hann um kvenfólk og nautnr ir. Skilningsleysi sitt bætxr hundurinn fullkomlega upp með áhuga:num. Að lokum fær kallinn nóg af því að hlusta á sjálfan sig. Þá gjerist. hainn fúll og þögull og hugsar. Þá Ifður bæði Þórði og hinum skepnunum. bölvanlega.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.