Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 10.11.1962, Side 20

Skólablaðið - 10.11.1962, Side 20
- 84 - verið ritað en svo, að nokkrar blekslett- ur úr penna mmum fái getð því við- unandi skil. Ég vil þó með örfáum orð- um minna á, hversu brýnt erindi esper- antó á til þeirra kynslóða, er byggja þessa jörð í nútíð og framtíð. Það er nefnilega löngu komið á dag- inn, að hinir æðstu valdamenn þjóðanna eru ekki þeim vanda vaxnir að semja um frið. Því verður alþýða manna um allan heim að ríða á vaðið, meðan svo- kallaðir stjórnmálamenn standa enn hvor- ir á sínum bakka þess hrikalega fljóts, er virðist skipta öllum þjóðum í tvær fylkingar. Hún verður að útrýma hatri og tortryggni og koma af stað þeirri friðaröldu, er engir stjórnmálamenn fá risið undir_. Enginn þyrnir er kalda- stríðsmönnum stærri í augum en sá, að almenningur ''óvinveittra" þjóða auki með sér kynni, eyði misskilningi og knýti þau vináttubönd, er liggja ofar öll- um landamærum. í þessari baráttu al- þýðu gegn misvitrum stjórnmálaspekúlönt- um er ekkert vopn beittara en einmitt ersperantó. Tilefni þessara skrifa er fyrst og fremst það, að algert sinnuleysi virðist ríkja hér í skólanum um esperantó. Ég veit ekki til þess, að af skólans hálfu hafi esperantó verið sýndur nokkur áhugi, en hins vegar hef ég sannspurt, að a.m.k. tveir úr hópi nemenda hafi sýnt þá framtakssemi að veita skóla- systkinum sinum tilsögn í esperantó. Svo er þess að geta, að í embættis- mannatali 1960-1961 eru nöfn þriggja kvenna, er sagðar eru í stjórn Esperantófélags, en síðan hefur embætt- ismannatal þagað um þetta ágæta félag. Þar eð ráða má af embættismannatali, að konur þessar séu enn í skólanum, þætti mér vænt um, ef þær vildu skýra frá í Skólablaðinu afdrifum þessa ágæta félags. í nóvember Í962. - þ - LEIÐRÉTTING: 1 greininni "Herranótt" í síðasta blaði stendur (síða 59): "Leiksýningar mennta- skólanema hafa farið fram árlega síðan 1922, að undanteknum árunum 1926-1941" Þar á að standa: . . . að undanteknum árun- um 1926 og 1941. Er höfundur beðinn velvirðingar á þessum mistökum. SA SÍÐASTI, frh. af bls. 75. flissa. Þórður skilur ekki alveg, hvað er svona skemmtilegt, en hlær samt og spyr um líðan manna í höfuðstaðnum og ræðir síðan fram og aftur um veðurfar, heyskap og fleira. Að lokum stendur Steini upp og segir, að það sé hollast að fara að hypja sig. Þetta hafi bara verið smá bíltúr, og bezt að pilla sig í bæinn. Síðan standa döm- urnar upp og þakka agalega vel fyrir sig. Þórður tekur þétt í hendurnar á þeim og biður guð að fylgja þeim. Þá verða stúlkurnar skrítnar a svipinn, og segjast vona, að hann reyni að hafa það huggu- legt. Um leið og píurnar eru horfnar fram göngin, vindur Steini sér að föður sínum og spyr, hvort hann sé klikkaður, að vísa dömunum á kamarinn, að gefa þeim bleksvart kaffi og kandís úr skítugum, haldalausum bollum, að rausa um veður- far, töðu og helvítis húmbúkk, að káfa á höndunum á þeim með drulluskítugum lúkunum, síðan segir hann ljótt og geng- ur út. Bíllinn rennur úr hlaði á fleygi- ferð, og þyrlar gráum reykskýjum yfir grænt tunið. VIII. Litlu síðar stendur Þórður aftur á hlaðvarpanum, lotinn í herðum. Hann snýtir sér með fingrunum og þurrkar í buxna skálmina. Hann er að fara að moka fjósið, I júlí 1962 - nB. NV KENNSLUBÖK í Tslandssögu, gefin út í New York árið 25 00 Ein var þjóð við yzta haf, sem áður þoldi nauð, við hokur bjó og harðsm kost, hlekk og myglað brauð; seinna varð hún sæl 0£( rík, af sálargáfum full, trylltist þó og sökk í svall og seldi sig fyrir gull. Jón Si.gurðsson

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.