Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 10.11.1962, Síða 25

Skólablaðið - 10.11.1962, Síða 25
o 0 - 89 - e <7 oo 2. tölublaði Skólablaðsins birtist meðal annars efnis hugleiðing, ^3 - sem höfundurinn, Jón Sigurðs- * y- s son að nafni, kallar "Fáeinar athugasemdir". Höfundur er margorður og beiðir nokkrum sinnum í grein sinni, ýmist þess, að menn fyrir- gefi honum skrifin, eða að þeir hyggi að kjarna máls síns. Ekki ætla ég að taka afsökunarbeiðn- irnar hátíðlega, þar sem augljóst er, að höfundur tekur ekki nokkurt mark á þeim sjálfur, en reyna heldur að snúa mér að kjarnanum. Að lestri greinarinnar loknum er, þrátt fyrir dæmalausar málalengingar og orðagjálfur, ljóst hvað höfundur virðist telja kjarna orða sinna, honum líkar ekki "að helztu stöður skólafélags o.s.frv. eru nefndar latneskum nöfnum". Höfundur virðist sannfærður um ágæti eigin málstaðar og það svo mjög, að hann velur sér stöku sinni orðalag, sem vart getur hófsamlegt kallazt. Eftir talsverðar vangaveltur og at- hyglisverðar rökleiðslur, hefur höfundur komizt að þeirri niðurstöðu, að fyrr- nefndar nafngiftir geti aðeins ráðizt af annarri tveggja, hogværð eða minnimátt- arkennd. Að hógværðinni eyðir hann engum orðum, enda ekki trúaðir á hana þegar tiL kemur, en tekur í þess stað að álasa. mönnum í nafni þjóðernis, þjóð- legar menningar og uppruna síns fyrir að gera minnimáttarkennd sinni hærra undir höfði en tungu feðranna. Hafandi gert grein fyrir skilningi mín- um á orðum Jóns Sigurðssonar, langar mig til að auka við nokkrum orðum frá eigin brjósti. Svo er mál með vexti, að mér hefur komið í hug, að venja þessi, sem Jón nefnir svo kurteislega ósið, viðurstyggð og háðung, kunni að vera í heiðri höfð, ekki sakir minnimáttarkenndar, heldur sakir virðingar fyrir því, sem liðið er. Ég lít svo á, að með því að halda þess- um grónu latnesku heitum, séum við að heiðra minningu fyrirrennara okkar hér í skólanum, og þeirra viðhorfa, er þá ríktu, þegar fatt þótti lærdómur annað en latína. í þeim jarðvegi á skólinn rætur sínar og breyta ríkjandi sjónarmið nútímans engu um það. Ef við afnæmum tíðrædd heiti, værum við að lítilsvirða uppruna skólans og um leið uppruna okk- ar eigin menntunar. Ég hygg það sé almenn skoðun hugs- andi manna, Jóns Sigurðssonar sem annarra, að vilji menn standa traustum fótum á líðandi stund, sé ekki rétt að skera á öll bönd til fortíðarinnar og af- neita henni. Þorbjörn Broddason Minnimáttarkennd I. Hvers á ég að gjalda : Drottinn minn ég dýrka þig djúpt í. hjarta mínu. Veldur illt að villtu'ei mig verma 'í skjóli þínu. Larfur minnar lundar er lémagna og trauður, höktandi og hæddur fer hortitturinn blauður. Hví má ég nú gjalda Guð grárra verka þinna, og ætíð heyra sífellt suð, sönginn galla minna? II. Sefjunar ég fáki ríð: Þó að hreiður heimsku minnar hrelli mig nú, ár og sið, nakinn bíð ég náðar þinnar nepju'í sálu enga líð. Þ. P. H.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.