Skólablaðið - 10.11.1962, Side 12
- 76 -
Tapað - fundið.
RYGGVI Karlssonx) rauk um
daginn á Svavar Gestsson for-
seta, og bað hann vinsamlega
að aðstoða sig við leit að
LÍFSINS HARMONÍUM. Helzt
gerir Tryggvi ráð fyrir, að þetta sé að
finna í söng eða öðru syndsamlegu at-
hæfi.
Ef einhver kynni að rekast á lífsins
harmoníum, er sá hinn sami beðinn að
skila gripnum umsvifalaust til Tryggva
án allra syndsamlegra þenkinga.
x) Sá, sem ætlaði að byggja skíða-
skálann.
Ars gratia artis.
Framtíðin hefur stofnað jazzklúbb.
Svo mörg voru þau orð.
Leiklistaráhugi.
Leiknefnd starfar nú af fullum krafti
áð undirbúningi Herranætur. En þrátt
fyrir mjög almennan leiklistaráhuga
innan skólans, hafa ýmsir látið f ljósi
meiri áhuga á því að komast í partíið
eftir sýningu en að sjá kómedíu Benna
sáluga Sjo.
Friður á jörðu.
Sagt er sjöunda nóvember "hófið" f
rússneska sendiráðinu hafi farið vel
fram. Fáir menntlingar voru viðstaddir.
Service eða zervez ?
Sagt er, að einn þeirra er sóttu um
styrk hjá ameríkanfíldsörvis hafi skyndi-
lega dregið umsókn sína til baka.
Kvað hann umsókn sína hafa verið á
misskilningi byggða. Mannaulinn mun
hafa ruglað saman enska orðinu "service"
og spænska orðinu "zervez", sem þýðir
bjór.
List eða dónaskapur ?
__ í þýzkubók þeirri, sem kennd er 1
fjórða bekk, kemur fyrir setning nokkur,
er veldur miklum deilum manna á meðal.
Segja sumir, að setning þessi sé tær
snilld, aðrir halda því fram, að það sé
ljótt að segja svona nokkuð. Setningin
hljóðar svo: "Meine Freundin B. liegt
auch im Bett, und so können wir uns
unterhalten. " Og önnur : " Gestern nach-
mittag sind wir leichtsinnig gewesen. "
( Birt án leyfis höf. ).
Það, sem þér viljið,
að aðrir menn gjöri yður. . . .
Sveinbjörn Rafnsson skólaskáld hefur
að undanförnu harðneitað að leyfa SKÓLA-
BLAÐINU að birta sfna andlegu ávexti.
Er Sveinbjörn frelsaður??
Varnarræða.
Þar sem undirritaður hefur sætt
ákæru um að hafa ritið QUID NOVI í
síðasta Skólablað, vill hann láta þess
getið, að slík ummæli eru ærumeiðandi
átvinnurógur, og mun þvílíkra svívirð-
inga ekki látið óhefnt.
ÞRAINN
Náttúrufræði f 5. B
Eyþór : "Eins og þið vitið eru til fisk-
ar, sem anda með lungum og kallast
þeir lungnafiskar. Getið þið nefnt
einhver hliðstæð dýr, sem anda með
lungum? "
Sveinn: "Lungnakrabbar! "