Skólablaðið - 01.12.1962, Page 8
Klingja mínar krónur
x kristalvösum
glóir mitt gullið
x gljáfægðum vösum
drottinn, þér ég þakka
þessi gróðans jólin
þú sem hygginn hyglir
Theildsalanna stétt
þitt er ríkið, þín er veltan
þitt er gózið mikla
ó, faðir ^
ó, gjafmildi faðir
en samt eg stend og star:
steyptur inm myrkrið
og hvarflað að mér hefur
á haustnóttunum köldum
að Mammon hafi máttkur
myrt þig fyrr á öldum.
i
Glápir yfir garðsins vegg,
hinn grái, ----—
skín x húmi á hvítan legg,
hvín 1 strái
hvín í ýlustrái.
Glápir fram 1 gnauð og þyt
hinn grái
fýkur höfgur fyrir vit
fnykur af nái
fnykur af úldnum nái.
4
Hrópar þá með glott í gný i
hinn tjráí. /
"Horfðu glóðaraugað í
opið und ljái
opið und brúna ljái. "