Skólablaðið - 01.12.1962, Qupperneq 21
Einmanaleiki lífsins :
Þetta líf er þunnt og leitt,
þjarmar að hjarta mínu.
Ég anda fyrir ekki neitt,
einn í kvöl og pínu.
Vísa :
Ekki'er gott að yrkja ljóð
svo enginn finni galla,
því varla hefur vísa góð
vísdóm fyrir alla.
Konan :
Konan hefur kærleiksyl,
og kossar hennar nettir.
En undir barmi eru til
illska, fals og prettir.
J. Ö.M.
Ort á dansiballi um
Júníus editor Hafstein Kristinsson:
Mímis niðji meður oss,
mangar til við konur.
Hengdur uppá holdsins kross
Hafsteinn Kristinssonur.
V. L.
Kveðið 1 kennslustund :
Löng er stundin lxtið gaman,
leiður kundur talar her.
Unga sprund við ættum saman
út að skunda. Hvað finnst þér?
H. P.
Um tónlist :
Rokk og tvist og rúbídú,
raunir burtu ærir.
A Beethoven er búin trú
um Bach sig enginn kærir.
Þráinn
Níðvisu svarað:
Reytir af sér roknabull,
rymur bragi skakka.
Þin er sál af þynnku full
þú ert líkur krakka.
J. S.
f skammdeginu:
Það er bylur, enginn ylur,
inn um þilið vindur hrin.
Myrkrið hylur, drauga dylur,
drjúgt er bilið heim til þín.
Sig. R.
Nirfill :
Gfrugur eftir gullbaugum,
glennti krumlur báðar.
Með glámskyggninnar gleraugum
grýndi tölur máðar.
G.K.
Mannlýsing:
Herðimjór og miðbreiður,
miðlungsstór og kjaftgleiður.
Gáfnasljór og geðstirður,
gambra þjórar ótrauður.
Sig. R.