Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.12.1962, Side 26

Skólablaðið - 01.12.1962, Side 26
- 118 - NDIR lok nóvembermánaðar, kom út þriðja tbl. Skólablaðs- ins. Þótti þá sumum nóg um. Ritstjóri fór þess á leit við mig, að ég skrifaði um það ritdóm nokkurn. Ég tók því ekki fjarri, kvaðst mundu verða harðorður. Hefi ég hér saman settan pistil þann, eftir þvi, sem ég hefi vit til. Blaðið hefst að vanda á því, sem eitt sinn hét "Editor dicit", en heitir nú "Frá ritstjóra". Júníus Kr. hefir löngum ætlað sér það hlutverk að frelsa heim- inn. Nú ræðst hann á þá, er verða hon- um þyngstir 1 skauti í þessu sjálfsagða framfaramáli. Fer hann á þeim gand- reið mikla, en lýkur henni á sama stað og lagt var upp. Greinin er annars hin þokkalegasta, og einkum verð aflestrar þeim, sem að er skotið. Ef til vill verður niðurstaðan þó hin sama og hjá Steini Steinari, þegar lestrinum er lokið. Gunnar Jónsson er,eins og fleiri, "rödd hrópandans í eyðimörkinni". Er vonandi, að sú rödd nái eyrum sem flestra, og fari ekki án viðkomu 1 gegn. Jón Örn Marinósson ritar "Nokkur orð",og beinir þeim aðallega gegn þeirri samkomu, er við fimmtu bekkingar héld- um á "Sal" nú fyrir skemmstu. Jón tel- ur þessa samkomu hafa verið hinn mesta ómenningarvott. Þvi mega þeir svara, sem sannfærðari eru en ég um, að svo hafi ekki verið. Hins vegar finnst mér Jón nota stærri orð en sæmi þeim, sem vilja vera forsvarar menningar í nafni Jóns Sigurðssonar. Inspector scolae ritar ferðapistil úr ftalíuför. Ekki vil ég fella dóm um hann, að svo komnu máli, þar sem von er á framhaldi. ölafur Gíslason skrifar um sýningu Magnúsar Tómassonar. Er hann að von- um allhrifinn. Hygg ég, að svo hafi fleirum fa,rið, er hana sáu. Vel þykir mér farið, að keyptar skuli hafa verið myndir eftir Magnús til varðveizlu í skólahúsunum. Stefán Glúmsson sendir pistil frá sér og Ljósmyndaklúbbnum. Ekki vil ég dæma þá grein, þar er mér er efnið ókunnugt. En vafalaust er þarna um gott málefni að ræða. Quid novi er ritað af Þráni Bertels- syni. Virðist mér það mun lakara en í síðasta blaði, enda sver Þráinn fyrir að hafa ritað Quid novi þá. í heild lélegt, í smáatriðum lélegt. "Blekslettur" eru mjög þokkalega rit- aðar, og þótt ég sé ekki fyllilega sam- mála höfundi, tel ég þær vel verðar lestrar. Ritdóm skrifar Sveinbjörn Rafnsson. Er hann vel máli farinn, og dómurinn því skemmtilegur aflestrar. G.K. skrifar "Athugasemdir við rit- dóm" og Þorbjörn Broddason "Um"Fá- einar athugasemdir" ". Vel er það til fundið, að stofna til ritdeilna í skóla- blaðinu og þykja mér þær góðar, svo lengi sem þær eru jákvæðar, en ekki er barizt með gífuryrðum einum og upp- hrópunum. nB ritar smásögu, sem hann nefnir "Sá síð'isti". Upphafið er þokkalegt, en lengra nær höfundur ekki. Þá fer að renna út í fyrir honum, sagan verður laus í reipunum, setningar sundurslitnar og orðin of mörg. I þessari sögu er ein leið málvilla, sem ef til vill er ekki höfundi að kenna, en það er að rugla saman "að heyra til einhvers" og "að tilheyra einhverjum". Þá er í blaðinu saga, sem vantar bæði heiti og höfundarnafn. Ekki skil ég meir en svo tilgang höfundarins, ef til vill á þetta að vera tákn forgengi- leikans, en þó virðist mér höfundurinn missa marks. Málfar þykir mér heldur lélegt i sögunni, til dæmis er þar talað um "'að láta út árar". Olikt fallegra mál þykir mér vera "að setja út árar",

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.