Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.12.1962, Page 39

Skólablaðið - 01.12.1962, Page 39
- 131 - deyjandi alheimsmenningar. Ég nefni það: LEIÐBEININGAR TIL HANDA UNGUM MÖNNUM, SEM KYNNjU AÐ HAFA AHUGA A AÐ SPRÆNA UTAN.r LANDSBANKANN. skál fyrir örsmáum englabörnum sem eru sæt á jólunum en dansa stríp-tís á nýársnótt. skál fyrir ungum lebenistum sem skandalísera hvern aftan hafandi samvizkubit á morgnana. skál fyrir sveltandi listamönnum og rauðnefjuðum kassapredikurum hafandi hugsjón mestallan sólarhringinn. skál fyrir komandi kynslóð sem éta á rotnunina hafandi rokkmússik fyrir vasapela. 100. þökkum sköpurum skapara vors fyrir hversu lengi þeim hefur tekizt að halda í horfinu bölvum sköpurum skapara vors fyrir hversu lengi þeim hefur tekizt að halda f horfinu að éta eða vera étinn. að deyja eða vera drepinn. hver býr til sterkustu skelina. 10. nú hefur fengizt fullnægjandi svar við fyrsta og þriðja lið hinnar eilffu spurningar. Jón Jónsson hefur lokið flutningi kvæðisins. Láki er ofurlítið utan við sig, en fagnar þó skáldinu með miklum látum. Þeir eru báðir kófdrukknir. Skyndilega heyrist hávaði og skvaldur framan úr gangi. Hvaða djöfulgangur er þetta, segir Jón Jónsson, helvftis kellingarnar eru komnar. Hann stendur á fætur og leysir niður um sig buxurnar og gengur fram. Ægileg öskur og píkuskrækir kveða við. Ésú er ákallaður í sífellu og auk þess er talsvert minnzt á einhvern Jiminn. Skáldið harðneitar að hysja upp um sig bux- urnar, og þrumar peternoster yfir kellingunum. Hann kallar á Laka. Láki sefur enn, Jón Jónsson stendur með buxurnar á hælunum inni í miðjum hóp æpandi kellinga. Hann lýsir því yfir, að hann ætli að fá sér meira brennivín o^ slökkva svo á jólatrénu. Síðan gengur hann í stofu, klárar konjakið og slekkur a jólatrénu. Honum tekst að vekja Láka aftur til lífsins með þvf að hella úr viskf flösku yfir fésið á honum. Skáldið vill stúdera kannibalisma, og leggur til, að þeir fórni einni kellingunni f þvf augnamiði. Sú tillaga fær daufar undirtektir, þvf að Láki er stofnaður aftur. Og Jón Jónsson gefst upp.......... Desember 1962 nB.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.