Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1972, Síða 7

Skólablaðið - 01.02.1972, Síða 7
91 honum fannst hann sitja á fúnum trjábol og horfa niður i djúpa grasi vaxna laut. þar lágu tveir unglingar, drengur og stúlka, á 'nlið, og horfðu hvort á annað, öðru hverju lék vindurinn sér f hári þeirra. hann fann til ónota, svip- aðra og þegar hann horfði i spegil, stóð upp og leit undan. þegar hann leit aftur niður f laut- ina voru þau horfin og hann sá hendur sfnar, aftur ungar og hvftar eins og þá. þær héldu á sendibréfi og hann var að lesa. hann mundi enn þegar hann vaknaði : Vertu eins og ég. Lifðu ekki Itfum annarra. Lifðu cigin ICfi.... heldurðu ekki við yrðum hrædd ?......ég hugsa um hann dag sem nótt, ég er einungis hamingjusöm með honum - ég elska hann...... ókunna manninn, blóð lifs mfns, innan heims, sem ég þekki ekki....... ég sagði ekki neitt. nann vaknaói hægt og rólega, þurrkaði tár af kinnunum og settist upp. skápurinn var opinn upp á gátt og herbergið var þrungið einkenni- legri lykt, lykt af grasi, lykt af vindi, hárum, tárum. hann stóð á fætur, gekk fáein skref, staðnæmdist við enda rúmsins frammi fyrir skápnum. hann settist hálfboginn niður. skáp- urinn var stærri að innan en utan. hillurnar voru fjórar og þar að auki eitt stórt gímald, ofan úr þvf héngu raðir herðatr jáa. f hillunum og á herðatrjánum voru föt, hrúgur. hann stóð upp, þreifaði á þeim og fann þægilega mýktina strjúkast um hendur sér, lokaði augunum, reyndi að sjá. myrkur. hann tók fangið fullt af fötum og þrýsti þeim að sér, lyfti þeim svo upp og hellti þeim yfir sig eins og vami. hann gerði þetta aftur og afmr unz skápurinn var tómur og fötin lágu f hrúgum f kringum hann. hann lét sig sfga niður f benduna og velti sér upp úr fömm, lyktaði og andaði þeim að sér, beit f þau og heyrði f þeim þytinn. hann hló, grét og hrópaði, þangað til að hann var orðinn hás. sfðan stóð hann aftur upp og tróð á sig fötum, fór f aðrar buxur yfir þær gömlu og tróð sokkum og nærfötum f alla vasa, fór f tvær þrjár peysur eða skyrtur og tókst að troða heilum jakka inn á bringuna. þá var hann orðinn uppgefinn og byrjaði að mása. hann hrundi niður á hnén og lagði lófana á gólfið, höfuðið hékk máttlaust og tungan lafði. hann róaðist smám saman og hætti að stynja, skreiddist á fæmr. hann fór út að glugganum, hnaut einu sinni, staðnæmdist, dró grænu tjöldin frá. með einu handtaki kippti hann f spottann á vindutjaldinu, svo að það þeyttist burt úr augsýn. eitt augnablik sá hann út en svo tætti birtan sér leið á kaf inn f augu hans, hann rak upp vein og greip báðum lófum fyrir augun. hann hörfáði undan eldinum og vogaði sér ekki að opna augun aftur. hann rak hnakk- ann f brún skápsins, hneig niður f stólinn, var ekki seztur fyrr en hann stóð upp aftur. hann var farinn að anda f stuttum rykkjum og munn- urinn titraði. hann sneri sér að skápnum og tók um brún sem sneri að vegg númer fjögur og tók á, fastar en nokkru sinni áður, herpt andlitið blóðroðnaði við áreynsluna, blóðdropi spratt út af enninu og rann niður á kinn. skápurinn almáttugi varð að fisi f höndumhans, lyftist upp að aftan, stóð eitt augnablik fkyrru jafnvægi, riðaði síðan og féll. um leið opnaði hann augun, sá skápinn þjóta fram hjá sér og skella með miklum dynki á vegg númer tvö. hann heyrði brothijóð, mundi eftir glugganum, greip andann á lofti og hóstaði, þegar útiloftið flæddi inn og brenndi hann, grét þegar egg- hvöss birtan skóf augu hans. hann snökti þegar hann skreið upp á skápinn, áfram og út um opið á brotinni rúðunni. hann fann hvassan glerodd rista á skinnið á annarri kinninni, um leið og hann skreiddist út. það var lykt af hellirigningu og hann stóð f mold sem var á jörðinni. jakkinn datt á jörðina, undan fötunum sem hann hafði klætt sig f, hann beygði sig og ætlaði að taká hann upp en datt á andlitið f moldina. vit hans fylltust af hreinni mold og hann dró til sfn keiminn, fyllti lungun og slef- aði, hann gróf fingrunum á kaf og það fór um hann sæluhrollur, þegar komin þrýstust undir neglurnar. hann sá vatn f rigningarpoLli við annað augað litast blóði. hann hélt áfram að gráta og hlæja, hugsaði mold, vissi að fólkið á götuimi var að horfa á hann og stóð hjartan- lega á sama. „Jesus var til” - fullyrða 8 MILLJÓNIR TÍEYRINGA STYTTU STOLIÐ Undirbúa stofnun kommúnistaflokks

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.