Skólablaðið - 01.02.1972, Síða 17
1U1
"Kæru samverkamenn ! Nií f kvöld er upprunninn hinn fyrsti dagur
raunverulegrar stjórnarfestu hér á landi. Ekkert mun framar
verða háð höppum og glöppum undir forystu okkar, til þess mun ég
sjá til með ykkar aðstoð. Við munum gera Mand að fyxirmyndar-
rfki....
Sendiboði frá lögregluyfirvaldinu rétti Halla skilaboð. Það var beiðni
um yfirlýsingu neyðarástands á Isafirði, Neskaupstað, Akureyri og Vest-
mannaeyjum. Æstur og reiður múgurimi hafði gert snarpan aðsúg að
stjórnarfulltrúum, bæjarstjórum og öðrum þeim, er voru bundnir hinu
opinbera. Rúður höfðu verið brotnar og eggjum hafði verið kastað
ásamt öðrum óþverra, bæði f hús og menn. f Vestmannaeyjum hafði
múgurinn brennt skrifstofu bæjarstjóra til grunna ásamt innbúi, skatt-
skýrslum og öðrum almennum skrifstofugögnum. Reiði almennings var
djúpstæð og heiftúðug, svo að þeir, er alla jafna voru manna gæflyndast-
ir og prúðastir f umgengni, voru nú bólgnir af innibyrgðum skammar-
og fúkyrðum f garð valdhafa. Fáliðuð Lögreglan hafði ekki ráðið við
Lýðinn og sumir þeirra höfðu jafnvel brugðist skyldu sinni og ekki heft
framsókn fólksins. Þeirra beið agarefsing, dauði fyrir vanræksLu við
skyldustörf.
ALLan uppreisnaranda almúgans varð að kæfa f fæðingu. HalLur kinkaði
kolli hátfðlega til sendiboðans, sem heilsaði á móti. Hann hafði skiia-
boð að færa LögregLuyfirvaLdinu. Þau skilaboð voru fyrirfram ákveðin
af HalLa, og voru þess efnis að LögregLa aLLs iandsins skyldi hefja hand-
tökur á þeim er sýndu mótþróa gegn hinni nýju stjórnskipan. TiL enn
frekari áherzlu á reiði hins nýja stjórnarherra var herskipunum skipað
að sigla til þeórra kauptúna, er almennar æsingar höfðu geisað og
skjóta hiklaust án ábyrgðar á Lffum varnarlausra þorpsbúa.
Brosandi og kátur snéri HaLLur aftur til veizlunnar. Hann var öruggur
enn um sinn f valdastól fslands, eyjunnar við norðurheimskautsbauginn,
sem nú Lá myrkvuð og einangruð frá umheiminum.
Skotdrunur herskipanna urðu vart greindar úr fjarska en f skjóli
myrkursins mátti þó heyra vængjaþyt lóunnar á Leið út til hafs.
Mundi hún segja umheiminum frá örlögum IsLands ?
Amór Sigurjónsson