Skólablaðið - 01.02.1972, Page 21
105
kemur fram, að Bandarfkjamenn hófu að senda vopnaða skemmdarverka-
menn inn f N-Vfetnam þegar árið 1954.
Doktorinn fmyndar sér, að S-Vfetnam hafi færzt f lýðræðisátt fyrir til-
verknað USA. Menn verða að gera sér grein fyrir þvf, að einsog segir
f Pentagonskjölunum, er S-Vfetnam hreinlega skapað af Bandarfkjamönn-
um og að allt hið illræmda einræðiskerfi Dfems, sem á sér hliðstæður
einungis f stjórnarfari Hitlers og StaLfns, var skipulagt og fjármagnað
af USA. Þáttur bandarfska sendiherrans f skrfpaleik Thieus sællra
minnínga sýnir glögglega hversu heillavænleg áhrif vera Bandarfkjamanna
hefur á stjórnarfarið f landinu. Bandarfkjamenn bera greinilega obbann
af ábyrgðinni á þessu stjórnarfari, sem heldur um eitt hundrað þúsund
óbreyttra borgara sem pólitfskum föngum við hinar hroðalegustu að-
stæður.
Fullyrðingu Tingstens um andstöðu S-Vfetnama við sameiningu Landshiut-
anna vfsa ég á bug sem óskhyggju : jafnvel stjórnarvöldin f Safgon vilja
sameiningu (væntanlega undir sinni stjórn) og skoðanakönnun, fram-
kvæmd af CBS sjónvarpsstöðinni f S-Vfetnam fyrir nokkrum árum sýndi,
að 83% aðspurðra vildu sameiningu, 5% voru á móti.
Að lokum fullyrðir Tingsten, að brottför Bandarfkjahers mundi Leiða af
sér ógnir og ofbeidi. Hvað segir Tingsten um.þær ógnir og ofbeldi,
sem vera Bandarfkjahers leiðir af sér ? Hvað um villimanniegar loft-
árásir Bandarfkjanna á báða hluta Vfetnam ? Hvað um beitingu napalms,
flfsasprengja, eiturefna, eiturgass ? Hvað um sviðna akra, eydda jörð?
Hvað um þann fjórðung þjóðarinnar, sem geta þakkað Bandarfkjamönnum
heimilis- og umkomuleysi sitt ? Hvað um miLljónir smábænda, sem
fluttir hafa verið nauðungarflutningum f vfggirt þorp, f raun réttri fanga-
búðir ? Hvað um spillingu embættismanna, hvað um heila kynsLóð vfet-
namskra kvenna, sem dregur fram lSið á þvf að selja sig könum ?
Hvað um þá tuttugu þúsund menn, sem teknir voru af lffi árið 1968 f
samræmi við fönixáætlun Bandarfkjamanna, grunaðir um stuðning við
"Vfet Cong" ?
Gamlar lummur verða ekki heitar af sjálfum sér, Haxmes minn.
Febrúar 1972
Stefán Snævarr