Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.02.1972, Qupperneq 39

Skólablaðið - 01.02.1972, Qupperneq 39
Aður en vikið er að grundvallarskoðun Marx um eðli mannlegs lCfs, útfrá hverjum hann rekur sfðan allar sfnar kenningar um afneitun þjóð- ernis, baráttu kúgara og kúgaðra, arðrán og samdrátt fjármagns, væri ekki úr vegi, að líta nánar á arðráns- og verðmætiskenninguna. Eins og áður sagði telur Marx, að verð sérhverrar vöru ákveðist eingöngu af þeirri vinnu, sem f hana er lögð. Þjóðemissinnar benda réttilegaá, að þetta er með öllu rangt. Vöruverð ákveðst nær eingöngu af hlutfall- inu milli framboðs og eftirspurnar, sem hvort fyrir sig er háð ýmsum aðstæðum, t.d. þörf, kaupmætti, aflabrögðum, veðurfari o.fl. Með einföldu dæmi sýna þjóðemissinnar fáránleika verðmætiskenningarinnar. Samkvæmt henni tetti grastugga, sem hrakizt hefur og mikið erfiði hefur kostað að koma f hús, að vera verðmætari en önnur, sem hirt hefur verið beint af Ljánum, og þvf verðmætari sem meiri vinna hefur verið Lögð f þurrkun hennar. En það sem þjóðernisstefnur og marxisma greinir hvað mest á um eru grundvallarskoðanir þeirra á eðii mannlegs Lffs, sem Liggja til grund- vaiiar hvorrar stjórnmálastefnunnar um sig. LCfsskoðun marxismans er f fáum orðum þessi. Maðurinn er aðeins efnisfyrirbrigði hér á jörð, sem hefst með fæðingu og endar með dauðanum. Um eðii mannsins og afstöðu náttúrunnar umbergis sig er skoðun marxista sú, að umhverfið skapi ailar hans hugsanir og athafnir eða eins og Marx órðaði það : "Það er ekki vitund mannsins sem ákveður tilveru hans, heidur þvert á móti féiagsieg tilvera hans, sem ákveður vitundina. Og hér skilur milli feigs og ófeigs. Þjóðernissinnar telja þetta firru eina og benda á, að ekki þurfi langan tfma, ef kenningar þessar eru virtar fyrir sér til þess að komast að raun um, á hve röngum forsendum þær eru byggðar. LCfsskoðun marxismans er gersamlega hrakin af raunvfsindum nútfmans. Erfðafræðin hefur sannað, að hver einstaklingur fæðist með ákveðna og óumbreytanlega eiginleika, og áhrif umhverfisins og þjóðfélagsaðstæðna geti f mesta lagi beint einstaklingnum inn á meira eða minna hliðhollar brautir og mótað framkomu hans að nokkru. En sjálft eðli mannsins er alltaf eitt og hið sama, kenning Marx um alger áhrif þjóðfélagsins er þvf á engum rökum reist. Hughyggja sú, sem þjóðernisstefna er grundvölluð á, tekur enga afstöðu til annars lffs, hvorki játandi né neitandi og er þvf hlutlaus f trúarefn- um. Skoðun hennar á mannlffinu er sú, að hver einstaklingur og hver kynslóð sé hlekkur f hinni eilffu þróun mannkynsins tii fullkomnunar. Hún fæst ekki við að staðfesta hvort efni og andi séu skyld eða óskyld fyrirbrigði, en f samræmi við niðurstöður biológfunnar, mannfræðinnar og annarra vfsindagreina. Neitar hún þeirri fabulu, að þjóðfélagsskipu- lagið og umhverfið móti manninn. Hún álftur mannsandann hinn eina skapandi kraft utan náttúruaflanna hér á þessari jörð. Engan veginn 123 neitar hún þó þýðingu umhverfisins, þvf það getur ráðið nokkru um, hvort hæfileikar einstaklingsins fái að njóta sfn. Það sem úrslitaáhrif hefur eru þau örlög, sem manninum eru ásköpuð þegar f upphafi við getnað. Þvf hvenær hefur úr hrafnseggi komið dúfa. Eins og áður segir byggir þjóðernisstefnan á allt öðrum viðhorfum til lffsins og eðli mannsins en marxisminn. Þessi viðhorf þjóðernisstefn- unnar eru grundvöllurinn undir þeim kenningum, sem hún ber fram f þjóðfélagsmálum. f samræmi við niðurstöður vfsindanna lftur þjóðernis- stefna á manninn sem lffveru, er fæðist með ákveðnu og óumbreytan- legu eðli, sem stjórnar gerðum hans og viðleitni f hvfvetna. Þar eð einstaklingarnir erfa eiginleika sfna af forfeðrunum, tengir skyldleikinn þá misjafnlega sterkum böndum. Þessi staðreynd er grundvöllurinn undir fjölskyldumyndun og þjóða. Þess vegna gerir þjóðernisstefnan ein- staklinginn, heimilið og þjóðernið að hornsteinum þjóðskipulagsins. An tillits til skyldieika eru mennimir alménnt búnir vissum eðlishvötum. Amrfskur sálfræðingur McDongan telur þær 13, og eru helztar sjálfs- bjargarhvötin, foreldrahvötin og samfélagshvötin. f þjóðskipulagi þjóð- ernisstefnunnar er maðurinn þvf litinn einkum frá tveim sjónarmiðum. Hann er f fyrsta lagi sjálfstæður einstaklingur og f öðru lagi þjóðfélags- vera. Vegna sjálfsbjargarhvatarinnar verður eignarrétturinn og einstakl- ingsframtakið að vera undirstaða atvinnuskipulagsins, en vegna sam- félagshvatarinnar verður að miða efnahagsstarfsemina við hag og heill þjó ðarhe iidarinnar. Hið ytra form þessarar kenningar lýsir sér þannig, að hinir tveir aðil- ar, sem að framleiðslunni standa, fjármagn og vinna, mynda með sér samfélög á hverju sviði atvinnulCfsins f sambandi við rfkið, sem fulltrúa þjóðarheildarinnar. Hlutverk þessara samfélaga er að fjalla um öll málefni atvinnugreinarinnar, jafna hagsmunaáreksturinn og vinna að menningarlegum, efnalegum framförum með aðstoð vfsinda og tækni. Heildarsamræmið f búskap og menningarviðleitni þjóðarinnar er skapað f stofnun, þar sem öll þessi samfélög eiga súia fulltrúa. Þessi stofnun verður þá skipuð sérfræðingum þjóðarinnar á hverju sviði, sem með þekkingu og reynslu verða þess megnugir að leysa úr vandamálum henn- ar á hverjum tfma. Þorvaldur Friðriksson 6.B

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.