Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1972, Page 55

Skólablaðið - 01.02.1972, Page 55
139 smáborgurum eða nokkru þvf hugtaki, sem gæti leitt til skilnings á þjóð- félagslegri skilgreiningu stöðu miðvikudagsmannsins. Þó Jón sé ekki jafn skarpur og fyrirrennari hans, gæti hann reynt að komast nær eðli hlutanna. Sigurður Helgason - Blekslettur Auk þess legg eg til að komið verði upp safni þeirra auglýsinga, sem birzt hafa á veggjum skólans f vetur. Gylfi Kristins - þögn Eflaust þörf tillaga, en ekki tfmabær né sanngjörn. Betur væri að álykta um ritgerðir. Mikill fjöldi fslenzkukennara skólans leitast við að steypa okkur f sama mót, ef skoðanir okkar eru ekki f krami viðkom- andi kennara þýðir það lága einkunn. Sömuleiðis ef orðanotkun er kenn- ara ekki að skapi, lækkar álit hans. Hvergi reynir kennari að setja sig f spor nemanda, heldur verður nemandinn að setja sig f slóðir kennarans. Þó alþýða manna og vfðsýnir hugsuðir hallist að jafnaðar- og lýðræðisstefnunum, þá hefur það ekki dugað hingað til. Og eru ekki til fleiri stefnur en demókratf og sósfal-demókratf, sem njóta jafnt fylgis vfðsýnustu hugsuða og alþýðu manna ? Kjartan Gunnarsson - Um áramót Það er ánægjulegt að sjá jafn vel á málum tekið og þarna, þetta minnir mest á greinar Bjama heitins. Kjartan er vel orðhagur : "Lýðræðið hefur auðvitað sfna galla, en með vaxandi íhygli og framþróun andlegra verðmæta munu þeir hverfa sem dögg fyrir sólu." Og mikið var hann góður þessi með forsetann. Eg vona að vænta megi fleiri greina af svipuðum toga, til dæmis "Á Þorra" eða "A "Góu”, "Um Sumarmál”. Vettvangur málefnalegra umræðna Palli Biering - Ritdðmur Sjall maður Páll. Segulbundinn agi - af ýmsum. Hannes Giz segir f upphafi, þegar hann er spurður hvað agi sé : "Það eru þagr reglur, sem við búum við f skólanum, og sú framkoma, sem búizt er við að nemendur sýni." Aðeins seinna er hann spurður hvort agi sé ekki bara framfylgni regla. Hann svarar : "Jú, hvernig stjórn- unaraðilar framfylgja þeim reglum, er hafa verið settar. Það er raun- verulegur agi. ” Þetta er að vera f mótsögn við sjálfan sig og það strax f upphafi. Umrasður sem þessar verða að ganga út frá forsendum, annars teygist úr öllum skilgreiningum og öll umræða þvælist og verður niðurstöðulaus með öllu. Betur hefði verið að endurprenta frá sfðasta ári grein eftir starfshóp Byltingar um sama spursmál. Kjartan Gunnarsson - Skólastjðrnir Eg hef gaman af langlokum, sem enda f jafn yndislegri hysterfu og mælgi sem þessi. Hannes Giz - Próf og einkunnir Lftið var greinin um einkunnir, en dáldið talar Hannes um prófin. AUt sem hann segir hefur komið fram áður og er vitað. Hann segir aldrei af eða á, heldur vafrar milli óljósra lýsingarorða. Það er mikill mis- skilningur að hlutleysi felist f skoðanaleysi og væri fróðlegt að gera könnun á þvf, hvort Hannes hefur skoðun yfirleitt á nokkrum sköpuðum hlut. Manneskjulegra yfirbragð Quid novi ? Það mun vera með erfiðari verkum að skrifa magnaða sögu um náungann Kvikindisskapur virðist á hröðu undanhaldi f skólanum fyrir kristilegum náungakærleik og lognmollu. Þeim óæskilegu fyrirbærum verður að út- rýma með öllu, annars hljóta Hvad nyt ? að leggjast niður. Þessir pistlar voru harla rýrir f roði. Þess vegna minni ég ykkur á það kæru skólasystkin að Quid novi ? er orðið til vegna nemenda og fyrir þá og á tvfmælalaust að vera skrifað af sem flestum nemendum og af þessum sökum skalt þú nú, lesandi góður, taka þér penna f hönd og hripa blað- inu fáeinar lihur. Dandimannaþáttur - G. Thoroddsen Það er vitað mál, að Tobbi er einn fárra f skólanum, sem á eitthvert erindi f þennan þátt. Það er bæði það, að hann er einhver kurteisasti ruddi, sem sögur fara af og jafnframt sjarmant, runninn úr einni merk- ari ætt þessa lands. Þess vegna var synd hve Gvendi fötuðust tökin á vini sfnum. Meðfylgjandi mynd var forljót, en hins vegar var fylgiritið fallegt. Tillögur - Jón Þór Þetta var bezti húmorinn f blaðinu, þó að brandaranum um Jónas undan- skildum, enda voru tillögurnar endurprentaðar f bezta blaði vetrarins, þriðja tölublaðinu einstaka. Otlit - Svava Hverjum sem nálægt skólablaðinu hefur komið er Ijóst hve þröngar skorður þvf eru settar, bæði útlitslega og efnislega. Enn hefur engin

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.