Skólablaðið - 01.02.1972, Page 56
140
ritnefnd sett sér það mark að velta blaðinu úr höftum ihaldsseminnar
nema ef vera skyldu Gestur og Gestur, þó orkuðu þeir ekki að valda
þeim breytingum að koma blaðinu f stærra brot, frá þessu kurfslega
tfmaritsformi f almennilegt blaðform. Það eitt hefði verið lyftistöng
betri sfðum f blaðaútgáfu okkar. Svava er einföld f frágangi sfnum á
blaðinu, stundum er hann jafnvel fátæklegur. Myndasögurnar gætu með
tfma og þjálfun höimyða orðið skemmtileg búbót, þó enn séu þær flestar
heldur lágrisa.
Heldur ætlar Jón að rfða rýru hrossi frá garði skólablaðstns. Hann er
orðinn fórnarlamb eigin gífuryrða sfðan f kosningum og einnig tfma, sem
hljóta að leiða til breytinga frá afturhaldssömu, vanhugsuðu blaði til rót-
tæks, vekjandi blaðs. Ég efa ekki að ritnefnd hyggst halda þessum
starfsháttum og þó svo fari áfram enn sem komið er, munu verk alltaf
vitna um þann er á hélt. Hræddur er ég um að meira sé unnið af
íhlaupum en hugsjón og stöðugri vinnu. Það má þó sjá vissa framför, sé
miðað við sfðasta tölublað. Engin von er um, að blaðið verði jafn-
ákveðið f afstöðu sinni til umhverfis og það var áður. Til þess skortir
ritnefnd bæði þekkingu og dug. Og þeir, sem á eftir koma, hljóta að
læra bæði af þessum mistökum, serri við sjáum f blaðinu f dag og einnig
þeim, sem Gestur 0 gerði, þvf "the very first thing a intellectual
revolutionary must do is stop being intellecmal".
Bolludaginn,
Páll Baldvin
madskuháog
f síðasta skólablaði birtist grein eftir Gylfa Kristinsson, fyrrverandi
forseta Framtfðarinnar. Nefndist hún Þögn er sama og samþykki og
fjallaði um þá nauðsyn, sem þegnum lýðræðisþjóðféiaga Vesturlanda er
á leikni f meðferð mngunnar og framsetningu skoðana. Segja má, að
grein þessi hafi gert þessu máli það góð skil, að ástæðulaust kunni að
vera að bæta þar nokkru við. Eigi að sfður get ég ekki stillt mig um
að leggja orð f belg, svo mikilvægt tel ég þetta mál. Hið hróplega
ósamræmi, sem er á þeim kröfum, sem lýðræðisskipulagið leggur okk-
ur á herðar, og þvf, hvernig okkur er gert illmögulegt að uppfylla þær
vegna ófullnægjandi þjálfunar f ræðumennsku, verður að lagfæra. Það er
tvfmælalaust hlutverk skólanna að búa nemendur sfna undir þátttöku f
lýðræðislegum félagsstörfum með kennslu f meðferð málsins, mælskulist
og skoðanaskiptum. Málfundafélög f skólum hafa reynt að axla þessar
byrðar, en hafa auðvitað ekki það bolmagn, sem nauðsynlegt er til slíks.
Gylfi Kristinsson vekur f þessum pistli máls á mjög veigamiklu atriði,
sem fyllilega er þess virði að það sé tekið upp sem baráttumál nem-
enda framhaldsskólanna.
Annað er það, sem mig fýsir að gera að umtalsefni. f samræmi við
hin nýju menntaskólalög var stofnuð skólastjórn f Menntaskólanum. Hún
er skipuð tveimur fulltrúum nemenda, tveimur fulltrúum kennara og
rektor, enn sem komið er. Starfssvið þessarar nefndar er mjög víð-
tækt, og hún getur haft mikil áhrif f þá átt að móta skólann. Þess vegna
hlýtur að vera mikilvasgt, að f henni eigi steti fulltrúar sem flestra
námsgreina hans, þannig að jafnan sé skilningur og þekking f skólastjórn
á viðfangsefnum einstakra deilda. Þegar litið er á samsetningu hennar,
virðist svo sem þetta hafi ekki tekizt. Fulltrúar kennara eru Þórður
Örn Sigurðsson, ensku-, latúiu- og spænskukennari, og Olöf Benedikts-
dóttir, dönsku- og enskukennari, þ.e. tveir málakennarar. Af hálfu
nemenda eru f skólsstjórn tveir máladeildarnemendur, Kjartan Gunnars-
son og Sigrfður Armannsdóttir. Að auki má benda á, að rektor hafði
ensku og frönsku að kennslugreinum, er hann var kennari við skólann.
Þó að allt séu þetta mætir menn, sem f skólastjóm sitja, er tæplega
hægt að ætlast til, að þeir geti gert málefnum stærðfræðideildanna
tveggja sömu skil og þeir, sem þekkja þessar fjölmennustu deildir skól-
ans af eigin raun. Þess vegna hlýtur það að vera ósk allra þeirra,
sem vilja, að skólastjórnin verði ekki gagnlaus pappfrsgögn, að þess
verði gætt framvegis, að fulltrúar f henni séu valdir að einhverju leyti
með tilliti til þess, sem fyrr var getið.
Hannes Gissurarson, X