SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Side 2

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Side 2
2 9. janúar 2011 Við mælum með 8. janúar Seinni vináttulandsleikur A- landsliðs karla í handbolta við Þjóðverja fer fram laugardaginn 8. janúar. Þetta er síðasti leik- urinn fyrir HM sem hefst í Sví- þjóð í janúar svo nú er um að gera að hvetja okkar lið áfram. Komum saman og fylgjumst með strákunum okkar spila, sama hvort það er á vellinum eða heima í stofu! Morgunblaðið/Kristinn Styðjum strákana okkar 10 Gott að bjarga lífi Dagur í lífi Magnúsar Smára Smárasonar, slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns. 22 Er að bæta við raunveruleikann Sigrún Eldjárn á 30 ára rithöfundarafmæli og er tilnefnd til barna- bókaverðlauna Astrid Lindgren. 26 Hús í sátt við umhverfið Um 30 íslensk einkafélög og stofnanir á sviði mannvirkjagerðar eiga nú aðild að Vistbyggðarráði, sem ýtir undir sjálfbærni á þessu sviði. 28 Vil hafa röð og reglu Margrét Sigfúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans í Reykjavík, er kona sem vill hafa reglu á hlutunum. 31 Baggalútur og borgarfulltrúi Karl Sigurðsson opnar myndaalbúm sitt. 36 Á eftir bolta kemur Brasilía Stuðningsmenn Liverpool njóta ekki frammi- stöðu liðs síns um þessar mundir en geta aldeilis kitlað bragðlauk- ana. 41 Janúar kósíheit Ó, æ, janúar er kominn, jólin búin og ekkert framundan. En bíðið nú aðeins við, þetta þarf alls ekki að vera svona slæmt! Lesbók 42 Verk Kjarvals efniviðurinn „Þessi verk eru engin óvirðing við landslagið eða Kjarval,“ segir Stef- án Jónsson um sýningu sína, Kjarvalar, í Hafnarborg. Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Kjartan Þorbjörnsson af Sigurði Sigurjónssyni. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hugrún Halldórsdóttir, Hólmfríður Gísladóttir, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson. 16 34 Augnablikið Vinahópar hafa gjarnan haft það að venjuað fara í karókí á gleðistundum en núnaer allri þjóðinni boðið í karókí, að þessusinni náttúrunni til heiðurs. Páll Óskar var sá fyrsti sem prófaði karókí-vélina í Norræna húsinu, græju með 16.000 lögum frá diskótekinu Ó-Dollý! Hann söng ballöðu á meðan beðið var eftir borgarstjóranum. Fyrst tók hann samt lagið með Ólafi Stefánssyni handboltakappa en þeir kyrjuðu „Allt fyrir ástina“. Allt fyrir náttúruna er það núna en karókí- maraþoninu er ætlað að vekja athygli á undir- skriftasöfnun á orkuaudlindir.is. Blaðamanna- fundur var haldinn áður en söngurinn hófst og voru skilaboðin frá Björk og félögum skýr: Orkuauðlind- irnar eiga að vera í lögsögu og í þágu almennings í landinu en ekki lokaðra hagsmunahópa. Ilmur Dögg Gísladóttir, verkefnastjóri hjá Nor- ræna húsinu, segir þetta hafa gengið vonum framar og hún segir ríkjandi stemningu „einstaka“. Stórar og smáar stjörnur hafa tekið lagið og almenningur líka gengið inn af götunni. Enginn einn tónlistarstíll ræður ríkjum. Ilmur hafði til dæmis gaman af því þegar átta ára strákur söng lagið „Litli tromm- arinn“ og einnig af löngum metalsöng Hellvars, parsins Heiðu og Elvars. Karókíið verður í gangi í Norræna húsinu í dag, laugardag, á milli kl. þrjú og miðnættis. Fyrsti klukkutíminn verður tileinkaður sálmasöng og er kórfólk hvatt til að mæta. Ekki er aðeins sungið í Norræna húsinu heldur hefur karókíið tekið völdin víða um land. Boðað var til samkomu á Akureyri, Bolungavík og Selfossi en veðurguðirnir tóku völdin á Skagaströnd og þurfti að fresta gleðisöng í Kántríbæ. Náttúrublúsinn hefur greinilega náð athygli þjóðarinnar, á þeim skamma tíma sem ritun þessa pistils tók söfnuðust meira en 300 undirskriftir og var 30.000 undirskrifta múrinn rofinn. ingarun@mbl.is Ólafur Stefánsson og Páll Óskar sungu saman gleðilagið „Allt fyrir ástina“. Morgunblaðið/Ernir Náttúrublús Það var hráslagalegt um að litast í slyddunni á Times-torgi í New York seinni partinn á föstudaginn og skiljanlegt að fáir hafi verið á ferli á þessu sögufræga torgi. Þessi hjólreiðamaður beit þó á jaxlinn og fór ferða sinna. Veröldin Reuters Hráslagalegt á Times-torgi 9. janúar Sjónarhorn – Ljósmyndir eftir Wayne Gudmundson. Síðasta sýn- ingarhelgin á landslags- ljósmyndum Wayne í Ljós- myndasafni Reykjavíkur. 13. janúar Ellý Vilhjálms í 75 ár í saln- um í Kópa- vogi. Guðrún Gunn- arsdóttir heiðrar minningu söngkonunnar sem hefði orðið 75 ára í desember síðast- liðnum. 14. janúar Súldarsker, nýtt leikrit eftir Sölku Guðmundsdóttur, frum- sýnt í Tjarnarbíó. Með leik- stjórn fer Harpa Arnardóttir.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.