SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Qupperneq 4
4 9. janúar 2011
Sepp Blatter, forsetiFIFA, Alþjóðaknatt-spyrnusambandsins,kom enn á óvart í gær
þegar hann greindi blaða-
mönnum frá því að hann teldi
allt eins líklegt að heimsmeist-
aramótið í Katar árið 2022 færi
fram í janúar en ekki að sum-
arlagi eins og hefð er fyrir.
Það olli töluverðu uppnámi
í knattspyrnuheiminum nýver-
ið þegar stjórn FIFA ákvað að
HM færi fram í örríkinu Katar
eftir 12 ár. Margir töldu það
aldeilis fráleitt. Sumir bentu á
hve landið væri fámennt og lít-
ið, aðrir gerðust svo djarfir að
benda á að hiti að sumarlagi í
Mið-Austurlöndum væri gjarn-
an hátt í 50 gráður á Celsíus.
Heimamenn komu með
krók á móti bragði og sögðust
myndu setja upp loftkælingu á
öllum leikvöngum; að frá gras-
sverðinum og upp í þriggja
metra hæð yrði lofthiti ákjós-
anlegur fyrir leikmenn og
áhorfendur. Ekkert er nema
gott um það að segja. Í gær
virtist svo sem Blatter hefði
fallist á þá röksemd að hitinn
væri of mikill í þessum heims-
hluta til þess að leika knatt-
spyrnu að sumarlagi.
„Ég geri ráð fyrir því að
mótið fari fram að vetri,“ sagði
Blatter við blaðamenn í Katar í
gær, en þar var hann staddur
við upphaf Asíukeppni lands-
liða. „Við höfum nægan tíma til
þess að fara vandlega yfir mál-
ið. Enn eru 11 ár til stefnu,“
sagði forsetinn.
Blatter lýsti þeirri skoðun
sinni að nú, þegar búið væri að
ákveða að halda heimsmeist-
arakeppnina í Katar, yrði að
finna til þess sem bestan árs-
tíma. „Til þess að keppnin tak-
ist sem best verður að halda
hana á sem hentugustum tíma.
Og til þess að keppnin heppnist
eins vel og nokkur kostur er
verður líka að hugsa eins vel
um leikmennina og hægt er.“
Og þó að í umsóknarferl-
inu hafi verið gert ráð fyrir
keppninni í júní eða júlí geti
stjórn FIFA auðveldlega breytt
því, sagði Blatter. Arsene Wen-
ger, knattspyrnustjóri Arsenal
á Englandi, benti á að slík
breyting yrði til gífurlegra
vandræða fyrir bæði félagslið
og knattspyrnusambönd. „Það
yrði að endurskipuleggja
keppni um gjörvalla heims-
byggðina,“ sagði Wenger.
Hann bætti svo við með hæðn-
istón í röddinni: „Hér er hefð
fyrir því að leika um jólin.
Englendingar yrðu örugglega
mjög ánægðir með að taka þátt
í heimsmeistarakeppninni strax
í kjölfarið.“
Vetrarleikar í
Katar í kortunum
Forseti FIFA gefur í skyn að HM
2022 verði jafnvel í janúar
Sepp Blatter forseti FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins.
Reuters
Mark í janúarkuldanum! Qasem Abdullhamed Burhan, markvörður
Qatar, horfir á eftir boltanum í markið gegn Uzbekístan í Doha í gær.
Reuters
Vikuspegill
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Á meðal þeirra sem lýstu yfir
áhyggjum af því hve leikið yrði
í miklum hita í Katar að sumri
er þýska goðsögnin Franz
Beckenbauer og Platini, for-
seti Knattspyrnusambands
Evrópu, nefndi nýverið þann
möguleika að leika í janúar.
Hér er Sepp Blatter ásamt Bin
Ahmed al-Thani, forseta
knattspyrnusambands Katar.
Margir eru
áhyggjufullir
Polarolje
Meiri virkni
Hátt hlutfall Omega 3
fitusýrur
Minn læknir mælir með
Polarolíunni, en þinn ?
Selolía, einstök olía
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Polarolían fæst í:
apótekum, Þín verslun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð
Nú líka
í hylkjum
Nýtt!
Pólarolía góð fyrir líkamann
Í nýlegri doktorsrannsókn Linn
Anne Bjelland Brunborg kom í ljós
að selolía, sem var gefin í gegnum
sondu beint niður í skeifugörn,
linar liðverki, dregur úr liðbólgum
og hefur að auki jákvæð áhrif á
þarmabólgu. Fæða áVesturlöndum
inniheldur hlutfallslega mikið magn
af omega 6 fitusýrum í samanburði
við omega 3 fitusýrur. Þetta getur
orsakað ójafnvægi í líkamanum, sem
að einhverju leyti getur útskýrt af
hverju margt fólk þjáist af offitu og
ýmsum lífsstílstengdum sjúkdómum
eins og hjarta- og æðasjúkdómum,
sykursýki og krabbameini.
Besta leiðin til að greiða úr þessu
ójafnvægi er að auka neyslu á sjávar-
fangi sem almennt er auðugt af lang-
keðju omega fitusýru og samtímis að
minnka neyslu á matvörum sem eru
ríkar af omega fitusýrum.
Þarmabólga og liðverkir
Rannsókn Brunborgs á selkjöti
bendir til að það sé bæði holl og
örugg fæða. Selspikið er mjög ríkt
af langkeðju omega fitusýrum sem
hefur áhrif á staðbundin hormón,
sem meðal annars eru mikilvæg fyrir
bólguviðbrögð líkamans.Virkni sel-
olíunnar á bólguviðbrögð var prófuð
í klínískri tilraun á sjúklingum með
liðverki og IBD. IBD-sjúklingar hafa
oft minnkandi starfsgetu og lífsgæði
vegan sjúkdómsins og möguleikar á
lækningu eru litlir. Lyf sem draga úr
liðverkjum geta gert þarmabólguna
verri. Brunborg sýndi með tilraunum
að selolía, sem var gefin í gegnum
sondu, linar liðbólgur, liðverki
og hefur að auki jákvæð áhrif á
þarmabólgu. Að neyta nægilegs
sjávarfangs með omega fitusýrum
getur haft fyrirbyggjandi áhrif þegar
um þróun sjúkdóma eins og IBD og
annarra bólgusjúkdóma, hjarta- og
æðasjúkdóma er að ræða. Selolía fæst
í öllum helstu apótekum og heilsu-
búðum og ber nafnið Polarolje.
A U G L Ý S I N G
Linar verki og minnkar bólgur
Study Medicine, Dentistry and
physiotherapy In Hungary 2011
Interviews will be held in Reykjavik
in May, July and July. For details contact:
Tel.:+ 36 209 430 492. Fax:+ 36 52 324 031
E-mail: omer@hu.inter.net
internet: http://www.meddenpha.com