SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Side 13

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Side 13
9. janúar 2011 13 Miðvikudagskvöld á Ak-ureyri: Geir Guðmundssonsitur heima í eldhúsi ogspjallar við blaðamann ásamt foreldrum sínum. Hann ætti að vera með félögum sínum í landsliði 21 árs og yngri að búa sig undir ferð til Serbíu í fyrramálið en þar tekur liðið þátt í undankeppni HM um helgina. „Það var eins og sprengju væri kastað í mig,“ segir Geir um það, þegar honum voru flutt tíðindin. „Sautján ára fólk á ekki að fá blóðtappa í höndina af því að vöðvarnir stækka of hratt!“ Bláa höndin Hann fann fyrst fyrir eymslum á að- fangadag en velti þeim ekki mikið fyrir sér. Lék með Akureyrarliðinu í deilda- bikarkeppninni á milli jóla og nýárs en á öðrum degi nýs árs fann hann aftur fyrir verk í hægri hendinni. Sat þá við mat- arborðið og kvartaði – sem er óvanalegt – og Vigdísi móður hans leist satt best að segja ekki á þegar Geir fór úr skyrtunni. Handleggurinn var blár. „Ég harðneitaði fyrst að fara upp á spítala. Ég hef oft farið þangað, þurft að bíða lengi og svo verið sagt að hvíla mig í nokkra daga. En ég er ánægður með að hafa farið að ráðum mömmu og pabba núna,“ segir Geir. Þolinmæði er dyggð Eftir skoðun á Sjúkrahúsinu á Akureyri var ákveðið að láta kanna málið nánar í Reykjavík þar sem Geir var á leið þangað daginn eftir til æfinga með landsliðinu. Eftir samtöl við þjálfara liðsins og sjúkraþjálfara fór Geir á Læknavaktina, var sendur þaðan á Landspítalann þar sem hann komst að á slysadeildinni eftir þriggja tíma bið. Geir viðurkennir að þeir frændur, hann og Guðmundur Hólmar Helgason, liðsfélagi í Akureyri og landsliðinu sem beið með honum, hafi alvarlega velt því fyrir sér að fara bara heim en þeir létu sig hafa það. Þol- inmæði er dyggð og gott að eiga góðan frænda. Eftir rannsókn um kvöldið var Geir gefið blóðþynningarlyf „og morguninn eftir var litarefni dælt í æðarnar, þá fannst reyndar ekki blóðtappi en um- merki um hann. Því er talið að hann hafi losnað um nóttina eftir að mér var gefið lyfið,“ segir Geir við Morgunblaðið. Hann var enn með hugann við HM í Serbíu. „Ég bjóst við að verða kannski frá æfingum í tvo daga, í mesta lagi viku. En æðasérfræðingur sagði mér að ég þyrfti að vera á blóðþynningarlyfjum í 3 til 6 mánuði og að á meðan gæti ég ekki spilað handbolta.“ Geir leikur því tæpast meira með Ak- ureyrarliðinu í vetur. Hann má hins vegar byrja að æfa á ný fljótlega en verð- ur að fara varlega. Eftir að lyfjameðferð lýkur þarf Geir mjög líklega í aðgerð til þess að láta víkka æðarnar. Það verður þó í fyrsta lagi fjórum vikum eftir að hann hættir á blóðþynningarlyfjum og í millitíðinni má hann ekki spila hand- bolta. Það veit Geir vegna þess að hann spurði lækninn … Nær fullri heilsu Ástæðan fyrir veikindunum virðist vera sú að bein og vöðvar hafi stækkað svo mikið á skömmum tíma að þeir þrýsti á æð í framanverðri öxlinni, á milli við- beins og rifbeina. Honum þykir það undarlegt. Hann æfði reyndar gríðarlega vel í sumar og þyngdist um nokkur kíló. Geir hefur alltaf verið stór en hefur styrkst mikið undanfarið. Læknar tjáðu honum að svona nokkuð gerðist helst hjá strákum sem væru ný- byrjaðir að lyfta, og spurðu í hreinskilni hvort Geir hefði notað stera. Því gat hann samviskusamlega svarað neitandi. Geir er vonsvikinn, svo ekki sé fastar að orði kveðið, en lykilatriði er að eftir að þessu ferli lýkur á hann að verða góð- ur á ný. Veikindin eiga sem sagt ekki að há þessari efnilegu, örvhentu stórskyttu frekar. Vonsvikinn en þakklátur „Þetta eru mjög mikil vonbrigði og ger- ist á leiðinlegum tíma; tveimur dögum áður en liðið átti að fara út,“ segir Geir og nefnir að honum sé ef til vill ekki ætl- að að leika með þeim strákum sem nú eru í landsliði 21 árs og yngri. Geir er ekki nema 17 ára og er því í raun á fyrra ári í landsliði 19 ára og yngri en segist afar spenntur að leika með eldri drengj- unum því liðið sé mjög gott. „Þetta hefði orðið fyrsta ferðin mín með liðinu. Ég átti reyndar að fara með þessum sömu strákum í fyrra en þá sprakk Eyjafjalla- jökull og við komumst ekki. Það kemur alltaf eitthvað í veg fyrir að ég spili með þessu liði …“ Vonbrigðin eru skiljanleg en Geir er þó að sjálfsögðu þakklátur fyrir að í ljós kom tímanlega hvað hrjáði hann. Læknar segja að hefði ekkert verið að gert og hann flogið utan hefði getað farið illa. „Ef ég hefði ekki farið til læknis og flogið til Serbíu hefði það getað verið stórhættulegt. Þrýstingur er svo mikill í flugvélinni að blóðtappinn hefði getað stækkað og höndin orðið ónothæf. Tapp- inn hefði líka hugsanlega getað flust í lungað og ég hefði getað dáið. Ekkert af þessu er þó víst; kannski hefði ekkert gerst. En ég ætti samt að vera þakklátur fyrir að þetta uppgötvaðist áður en ég fór,“ segir Geir Guðmundsson. Geir hleypir af í leik gegn Haukum í íþróttahöllinni á Akureyri fyrr í vetur. Eins og sprengju sé kastað Geir Guðmundsson, 17 ára handboltakappi frá Akureyri, greindist með blóðtappa á byrjunar- stigi og verður frá keppni næstu mánuði. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Geir Guðmundsson með foreldrum sínum, Vigdísi Rafnsdóttur og Guðmundi Geirssyni. ’ Sautján ára fólk á ekki að fá blóðtappa í höndina af því að vöðvarnir stækka of hratt!“ Ljósmynd/Þórir Tryggvason

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.