SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Blaðsíða 14
14 9. janúar 2011
Sigríður Anna: „Það er mér að þakka eða
kenna að Ragnheiður er sundkona því ég
setti hana ofan í sundlaug þegar hún var
sjö ára til að æfa sund og fljótlega eftir
það var hún ákveðin í því að þetta yrði
hennar sport.
Systurnar byrjuðu í fimleikum. Þær
eru báðar hávaxnar og fimleikarnir
hentuðu Margréti vel en Ragga kvartaði
yfir bakinu. Ég hugsaði með mér að ég
vildi ekki hafa hana trampandi á leik-
fimigólfum svo ég stakk henni ofan í
sundlaug!
Flugsynd fjögurra ára
Pabbi þeirra var alltaf duglegur að fara
með börnin í sund og í hverri einustu
sundferð var kennsla. Þau voru öll orðin
flugsynd snemma. Ég held að Ragga hafi
lært að synda á Ítalíu, í Gardavatni, á
ferðalagi fjölskyldunnar þegar hún var
fjögurra ára.
Sundið hefur auðvitað verið fyrirferð-
armikið síðustu nítján árin. Það hefur
alltaf verið númer eitt, tvö og þrjú hjá
henni. Að æfa sund þýddi að það þurfti
að vakna um miðjar nætur til þess að
vera búin að æfa áður en skólinn byrjaði.
Álagið að æfa sund með skóla er mikið og
kannski gerir þetta enginn án þess að
hafa einhvern til að hjálpa sér á hlið-
arlínunni og þetta hefur bara verið gott
fyrir okkur foreldrana og systkini henn-
ar tvö.
Öll á kafi í íþróttum
Öll börnin okkar hafa verið á kafi í
íþróttum. Jonni yngri bróðir hennar er
golfari eins og við hjónin og Margrét
eldri systir hennar var í frjálsum íþrótt-
um þangað til hún var 21 árs. Við höfum
öll verið samstiga fjölskyldan í sportinu
og lífinu og stutt við bakið á hvert öðru.
Systkinin eru ótrúlega góð við hvert
annað. Þær systur voru kannski ekki
alltaf spenntar fyrir hvor annarri á ung-
lingsárunum en Margrét er aðeins 16
mánuðum eldri en Ragnheiður. Það er
hinsvegar unun að horfa á þær í dag.
Við æfðum bæði sund ég og pabbi
hennar en hann fer ennþá mikið í sund
en ég frekar í ræktina. Við fjölskyldan
erum öll aktív og kunnum ekki að vera í
leti. Það er ekki mikið legið uppi í sófa.
Hún missti af ýmsu út af sundinu, hef-
ur þurft að leggja töluvert á sig en fengið
margt í staðinn sem hefur gefið henni og
okkur fjölskyldunni mikið. Hún hefur
farið á tvenna Ólympíuleika, verið á
heimsmeistaramótum og ferðast mikið.
Henni líður vel á ferðalögum, taskan
er oft á gólfinu heima milli ferðalaga, það
er ekki alltaf búið að ganga frá úr henni
þegar þarf að fara að pakka niður aftur.
Hún er alltaf svolítið nýkomin frá út-
löndum.
Það er ómetanlegt að fylgjast með
henni ná þessum árangri, maður er
klökkur, montinn og stoltur. Það er
gaman að sjá hana ná markmiðum sín-
um.
Það koma líka tímar þegar það gengur
ekki allt upp, lífið er ekki bara bein lína.
Ragga kann að taka því og setur þá
stefnuna upp á nýtt.
Ragnheiður er heilsteypt manneskja,
góð, blíð og ræktarsöm. Hún passar vel
uppá sína og er fylgin sér og einbeitt.
Hún hvikar ekkert frá því sem hún hefur
tekið ákvörðun um og það geislar af
henni.
Ragga er leitandi og les ýmis jákvæð
fræði. Hún grípur með sér það sem hún
finnur gott á leiðinni. Henni hefur tekist
að taka það með sér sem er upp-
byggilegt. Hún hefur náð ákveðnu jafn-
vægi í lífinu og farið sína eigin leiðir.
Gleðin er mest í því þegar barnið
manns eru farið að taka eigin ákvarðanir
í sátt við sjálft sig. Þá hefur manni tekist
vel upp sem foreldri.
Ragnheiður var alveg ótrúlega gott
barn, fyrir utan að hafa verið með maga-
kveisu um miðja nótt í fjóra mánuði!
Hún fylgdi í kjölfar systur sem var rosa-
lega fjörug. Hún var ótrúlega þægilegt
barn og aldrei heimtufrek. Hún hefur
frekar bætt meira í sig en hitt. Þegar hún
Bóngóð og
skapandi
Tengsl
Sigríður Anna Guðjónsdóttir skólastjóri er móðir
sunddrottningarinnar Ragnheiðar Ragnars-
dóttur. Þær mæðgur varpa ljósi á samband sitt,
góðu stundirnar og hversdagslífið, í viðtali.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is