SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Page 31

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Page 31
9. janúar 2011 31 Karl Sigurðsson fæddist í Reykjavík 24. júlí1973, sonur leikaranna Sigurður Karls-sonar og Bergljótar Stefánsdóttur. Eldri systirhans er Elín og yngri bróðir Skúli. Æskuslóð- ir Karls voru Hlíðarnar að frátöldum þremur árum sem hann bjó í Lundi í Svíþjóð. Úr Hlíðaskóla lá leiðin í MH þar sem hann sinnti félagslífinu af miklum krafti. Eftir nokkra umhugsun að loknu stúdentsprófi tók Karl tölv- unarfræði frá Háskóla Íslands og starfaði eftir það við forritun og hugbúnaðarprófanir. Karl er þó fyrst og fremst þekktur fyrir tónlist og sprell undir merkjum Baggalúts sem gefið hefur út sex hljómplötur og heldur úti furðufréttasíðunni baggalutur.is. Síðastliðið vor tók hann svo sæti í borgarstjórn sem fulltrúi Besta flokks- ins. Þarna er ég sennilega um þriggja ára. Strax kominn með óaðfinnanlegan fata- smekk. Fyrsti kvennafrídagurinn 1975. Við pabbi að skemmta á sviðinu með hinum konunum. Við Tobba vorum bæði jafn hissa á að við skyldum byrja saman. Fyrsta hlutverkið var sem hjólagarpur í sjónvarpsmyndinni Með stjörnur í skónum. Tvítugur með Hamrahlíðarkórnum í sendiráðsveislu í Brussel. Mjög lekker. Baggalútur og borgar- fulltrúi Myndaalbúmið Karl Sigurðsson, baggalútur og borgarfulltrúi, opnar myndaal- búmið sitt að þessu sinni. Á Ítalíu 14 ára gamall og elgtanaður. Eftir stúdentsútskrift með besta vininum. Stuttu síðar fór okkur að vaxa skegg. Ég og Skúli bróðir minn. Hann er stærri en ég í dag. Þarna er ég tiltölulega nýfæddur, sennilega afvelta vegna ofáts. Ekki í síðasta skiptið. Með Ellu systur í bústað móðurfjölskyldunnar. Hún þurfti oft að halda mér föstum. Fyrsta myndin. Ég er þessi í bumbunni.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.