SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Qupperneq 34

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Qupperneq 34
Einhverra hluta vegna virðasttölurnar ekki stemma. Nærri65% bandarískra kvenna eru ofþung og af þeim glíma yfir 35% við offitu. Samt sem áður ná há- tískulínur fatahönnuða aðeins upp í stærð 10. Á þessum nótum hefst umfjöllun Los Angeles Times um „ráðgátuna um yfirstærðir í kvenfatatísku“ þar sem m.a. er vísað til sýn- ingapalla á síðustu mánuðum og bent á að á þeim hafi tág- grannar fyrirsætur sýnt fatnað leiðandi tískuhönnuða sem aldrei verður framleiddur í stærðum sem passa flestum konum. Sambandsleysið milli tískunnar og raunveruleikans er stórundar- legt á tímum þar sem verslunareig- endur streða við að skila hagnaði, segir greinarhöfundur, og bendir á þá staðreynd að horrengluhugmyndir hátískuhúsanna séu taldar að- alsökudólgurinn þegar kemur að lé- legri sjálfsmynd kvenna, lystarstoli og fordómum gegn yfirþyngd. Og það sem meira er, rannsókn frá í fyrra sýnir að konur í yfirstærð – sérstaklega þær yngri – vilja tísku sem er sambærileg þeirri sem seld er í minni stærðum. Ekki er þó útlit fyr- ir að þessum konum verði að ósk sinni, sé eitthvað að marka sérfræð- inga. Hlutföllin, hagfræðin og fag- urfræðin að baki fötum í yfirstærð nán- ast tryggir að tíska tískufrömuða, markaðsmanna og tískublaðamanna muni alltaf verða höll undir hinar grönnu. Það að búa til falleg föt á feitlagnar konur er flóknara en svo að það nægi að stækka einfaldlega fötin, segja sérfræð- ingarnir. Undir þetta tekur Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, sem segir að fatn- aður fyrir stærra fólk bjóði ekki upp á sömu fjölbreytni og flækjustig og flíkur fyrir þá sem grennri eru. „Vissulega er þetta stór markaður og mikil áskorun og t.d. er hægt að einblína á falleg efni og munstur í svona fatnaði. Formið verður hins vegar alltaf erfitt því þegar lík- aminn er stór og kringlóttur þurfa fötin að vera svo víð og efnismikil. Það er ekki sérlega skapandi fyrir fatahönn- uðinn því hann hefur þá ekki um mikið að velja í formum.“ Eins og geimverur í vextinum Raunin er sú að fatahönnuðir hafa sjaldnast þjálfun í tækninni sem þarf til þess að fatnaður í yfirstærðum sé í hlut- föllum við fólkið sem á að nota hann og passi á það. Hönnunarferlið kallar líka á stærri gínur og mátunarfyrirsætur svo hægt sé að fínstilla prufuflíkur á þeim og slíkt er töluverð fjárfesting í peningum og tíma fyrir framleiðendur og tísku- hönnunarskóla. Þá er það staðhæft að nemendur í fatahönnun hafi engan áhuga á fötum í yfirstærðum sem leiði til þess að fáir skólar treysta sér til að bjóða upp á mikið nám í þeim fræðum. „Ég hef verið með einn eða tvo nemendur sem hafa valið að teikna á konur sem eru aug- ljóslega ávalari en hinar,“ segir Linda. „Ef nemendur óska eindregið eftir því að skoða þetta fá þeir tækifæri til þess.“ Í hönnunarskólum er kennt að láta manneskjuna passa inn í klæðin, en ekki að klæðin passi manneskjunni. Venja er að skipta líkamanum upp í tíu hluta, sem hver er á hæð við mannshöfuð, en venjulegur mannslíkami er ekki nema sjö eða átta höfuð á hæð. Lengdin frá hné og upp í mitti er ýkt svo að leggir manneskjunnar eru gríðarlega langir. Búkurinn sjálfur er einnig í lengra lagi, en allt er þetta gert til að fötin líti betur út. Þetta rímar vel við reynslu Lindu. „Fatahönnuðir eru stöðugt að forma lík- amann upp á nýtt. Í hvert sinn sem búin er til ný lína er skapað nýtt form á lík- amann; axlirnar eru stækkaðar eða minnkaðar eða mittið hækkað. Tísku- hönnuðurinn formar líkamann en ekki líkaminn fötin. Þegar fólk er mjög stórt er bara eitt form sem virkar.“ Hún segir þetta líka ráða því að grannar og hávaxnar fyrirsætur eru valdar til að sýna fatnaðinn. „Þannig er auðvelt að sjá hvernig fatnaðurinn er sniðinn, hvernig efnið fellur og hreyfist þegar sýningarstúlkurnar labba eftir pallinum. Þessir þættir sjást ekki ef flík- in er full af holdi. Sýningarstelpurnar eru vissulega nánast eins og geimverur í vextinum en þær geta næstum farið í ljót föt og þau verða flott. Það er það sem verið er að borga fyrir.“ Linda er ekki ein um þetta viðhorf. „Svona er hátískan,“ er haft eftir tísku- sérfræðingi í grein Los Angeles Times sem bendir á að fatnaðurinn á sýning- arpöllunum sé ekki fyrir pöpulinn held- ur yfirstéttar- og frægðarmenni. Í raun sé þar um list að ræða sem eigi skylt við sýningu eða leikhús. Á sama hátt séu tískumyndir í tímaritum margunnar í ljósmyndaforritum, fatnaðurinn sé nældur og límdur utan á fyrirsæturnar og honum margbreytt. Þær klæðist hon- um ekki þægindanna vegna. Samt sem áður virðast konur setja sig æ meira í þeirra spor, ekki síst með til- komu raunveruleikaþátta á borð við America’s Next Top Model og Project Runaway þar sem venjulegar stúlkur umbreytast í fyrirsætur nánast yfir nótt. Fyrirsætur eru því ekki lengur fjarlægar og óvenjulegar fyrirmyndir – mjónu- myndin er allt um kring og hefur um- breyst í „normið“ – hið eðlilega í augum okkar. Og kúrfulaga kroppurinn er orð- inn hið óeðlilega. Tískuheimurinn hefur reynt að svara slíkum gagnrýnisröddum með því að kynna til sögunnar fyrirsætur í yfirvigt – „plus-size models“ – en fengið jafnvel enn meiri gagnrýni á sig fyrir vikið. Þannig vilja margir meina að það sé ekkert nema sölubrella að stilla upp einni og einni íturvaxinni fegurðardís Horrenglu- hugmyndir hátísku- húsanna „Tískuhönnuðurinn formar líkamann en ekki líkaminn fötin,“ segir Linda Björg sem er fagstjóri í fatahönnun. Morgunblaðið/Ernir Tíska Hvers vegna er markaðurinn fyrir fatnað á íturvaxnar konur ekki stærri? Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.