SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Qupperneq 41

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Qupperneq 41
9. janúar 2011 41 Lífsstíll Byrjun janúar og ég sit við skrifborðið mitt oglít angistarfullum augum upp í loftið. Inn-blásturinn minn hlýtur að vera þarna ein-hvers staðar. Það bara hlýtur að vera! Nema ég hafi týnt honum. Kannski undir jólatrénu, eða ofan í konfektkassanum eða ætli hann sé heima kúrandi uppi í rúmi þar sem ég vildi helst vera? Í janúar væri upplagt að skapa Jamaica-stemn- ingu á Íslandi. Selja gegn vægu gjaldi aðgang að vel upphituðu og upp- lýstu húsi með sandi á gólfinu. Þar mætti sitja, spjalla, leggja sig, fá sér að drekka, dansa, borða ... Allt sam- an í hlýju og notalegu umhverfi. Þarna inni mætti jafna sig á jan- úarblúsinum, komast út úr syk- urkóma jólanna og almennt láta sér líða betur. Opið væri til, ja, mars eða apríl og þá mætti hleypa fólki út aftur í birtuna og komandi vor. Ég held að þetta væri ekkert svo slæm hugmynd en hún myndi sjálfsagt ekki ganga upp nema í útópísku samfélagi þar sem allir gætu hagað tíma sínum að vild. Svona í alvöru talað þá er þessi árstími líka ekk- ert alslæmur þó honum fylgi hjá mörgum eitthvert slen og þyngsli sem stundum er ekki hægt að festa hendur á. Í raun er janúar, sem oft virðist óendanlega langur, kjörinn mánuður til að bjóða vinum sínum í brunch eða kvöldmat, fara á tónleika og nota letilega sunnudaga í bíóferðir. Um leið er þetta líka góður tími til að velta fyrir sér því sem framundan er og hverju mann langi að áorka. Ákveðin ró færist yfir eftir hátíðarnar og allt í lagi að leyfa sér stundum að liggja bara með tærnar upp í loft. Það má líka ekki mikla fyrir sér hlutina og gott að muna að góðir hlutir gerast hægt. Væntingum og þrám nýja ársins getur fylgt nokkuð tilfinningarót. Hvernig ætl- um við annars að ná að gera allt þetta sem gera þarf og halda öll ára- mótaheitin? Órói grípur um sig og okkur finnst allt í einu eins og við höfum ekki nægan tíma þó heilt ár sé framundan. Þá er um að gera að taka ró sína og gleði á ný og til þess er mikilvægast að geta lifað í núinu. Hættum að bíða og velta okkur upp úr hlutunum, verum frekar og gerum og njótum þess að vera til. Tökum einn dag í einu, barnaskref og hættum að horfa lengst fram í tímann. Þannig gengur yfirleitt allt miklu betur. Janúar- kósíheit Ó, æ, janúar er kominn, jólin búin og ekkert framundan. En bíðið nú aðeins við. Þetta þarf alls ekki að vera svo slæmt! María Ólafsdóttir maria@mbl.is Í janúar dreymir marga um sól og sumaryl en í raun er ósköp stutt í vorið og sumarið. Morgunblaðið/Ernir ’ Í janúar væri upplagt að skapa Jamaica- stemningu á Íslandi. Selja gegn vægu gjaldi aðgang að vel upphit- uðu og upplýstu húsi með sandi á gólfinu. Janúar er rétti mánuðurinn til að draga fram gömlu, góðu uppskriftabókina hennar ömmu eða mömmu og elda alvöru heimilismat eins og þann sem við eigum bernskuminningar um. Kjötbollur eða falskur héri, já eða súpur og allt slíkt sem yljar að innan er það sem við ættum að borða í janúar. Til að gera þetta enn þá betra getum við svo hreiðrað um okkur í sófanum fyrir framan sjónvarpið. Dregið sængina yfir okkur og gætt okkur á rjúkandi heitri súpu. Endirinn á löngum skóla- eða vinnudegi í janúar gerist varla betri. Hlýtt og nærandi Rjúkandi heit súpa er afar góð á köldum janúarmorgni. Morgunblaðið/Ómar Það getur verið mjög erfitt að komast út úr rúminu á þessum árstíma þegar dimmt er úti. Reyndar er um leið mikilvægt að muna að von bráðar fer daginn að lengja. En með- an myrkrið umlykur okkur þá er mikilvægt að reyna að venja sig á góða svefn- rútínu og fara snemma að sofa. Reyndu líka eins og þú getur að nota helgar eða aðra frídaga til að vinna upp svefn. Jafnvel bara leigja þér sumarbústað og hreiðra þar um þig í mestu rólegheitum, lesa, sofa og hafa það náðugt. Eins er afar mikilvægt fyrir þá sem varla ranka við sér fyrr en undir hádegið að taka sér góðan tíma á morgn- ana. Það er ekkert skemmtilegt að rjúka út í kuldann næstum nýstaðin/n upp úr rúminu. Gefðu þér frekar góðan tíma til að fara í heita og góða sturtu, fá þér morgunmat og kaffi eða te til að kveikja á kerfinu. Þannig ættir þú að vera aðeins betur tilbúin/n til að fara út í daginn og takast á við verkefni hans. Góður svefn í myrkrinu Góður kaffibolli er nauð- syn á morgnana. Morgunblaðið/Eggert Það er víst kominn janúar og nýtt ár farið að lötra af stað. Þú veist að þessi árstími er genginn í garð því að:  Það gerist eins og næstum því sjálfkrafa að líkamsræktarstöðvarnar fyllast af fólki. Mörgum finnst nóg komið af ofáti og sófaleti og ætla nú heldur betur að gera hreint fyrir sín- um dyrum.  Þú fellur alla vega einu sinni í nammibindindinu þegar þú uppgötvar nokkra konfektmola sem hafa orðið eftir inni í skáp. Það er ekki annað hægt en að klára þá með bókinni sem þú fékkst í jólagjöf.  Fólk fyllir matarkörfuna af ávöxt- um, grænmeti og hollum vörum. Nóg er komið af gosi og nammi í bili og það nú bara leyft um helgar.  Sumir taka sér áfengishlé í jan- úar til að hreinsa líkamannn enn þá betur eftir hátíðarnar og algengt er að fólk hætti að reykja.  Þú laumast til að horfa á uppá- halds jólamyndina þína af því að jólin geta jú bara ekki verið búin svona fljótt. Svo spilar þú nokkur góð jóla- lög eins og til að setja punktinn yfir i- ið og hoppar um stofuna.  Þú ert dálítið angurvær og enn í hálfgerðri jólavímu en um leið von- góð/ur um að gott og skemmtilegt ár sé framundan.  Áramótaheitin eru komin á blað eða í tölvuskjal. Nú er bara að bretta upp ermarnar og standa sig! Stolist og laumast Í janúar fara margir að borða hollara þó konfektið sé enn lokkandi.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.