SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Qupperneq 44

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Qupperneq 44
44 9. janúar 2011 A Feast for Crows - George R.R. Martin bbbbn Fantasíubækur eru meðal þeirra bókmennta sem seljast mest í heim- inum í dag ásamt vísindaskáldskap. Ef mig misminnir ekki eru aðeins ástar- og spennusögur sem seljast meira en sögur af geisla- og galdrasverðum. Langstærstur hluti fantasíugeirans er hins vegar mesta rusl þar sem höfundar virðast halda að nægilegt sé að hrista saman álfa, dverga og galdra með einum eða tveimur drekum til að búa til góða sögu. Sem betur fer eru hins vegar undantekningar þar á og síðustu ár hafa tvær seríur borið höfuð og herðar yfir annað sem á boðstólum er fyrir unn- endur góðrar fantasíu. Fyrst ber að nefna A Song of Ice and Fire eftir bandaríska rithöfundinn George R.R. Martin. Serí- an segir frá borgarastríði í ímynduðum miðaldaheimi, þar sem kon- ungsdæmið sekkur í blóðugt borgarastríð eftir dularfullan dauðdaga kóngsins. Martin hefur sjálfur sagt að hann hafi sótt töluvert í Ró- sastríðin ensku þegar hann var að skapa heiminn og söguna, en per- sónurnar eiga margar meira sameiginlegt með morðóðum og svik- ulum meðlimum ítalskra aðalsætta. Gagnrýnandi breska blaðsins Guardian sagði að í bókinni væru persónur sem væru svo eitraðar að þær gætu borðað hina alræmdu Borgia-fjölskyldu í morgunmat. Sag- an er sótsvört og gríðarlega spennandi og lesandinn þarf að vera ansi kaldrifjaður til að sleppa ósnortinn frá lestri bókanna. Nýjasta bókin í flokknum heitir A Feast for Crows og er verðugur arftaki þeirra sem á undan gengu. Aðdáendur bókanna geta svo huggað sig við að þrjár bækur eiga eftir að koma út og að bandaríska sjónvarpsstöðin HBO er að klára framleiðslu á sjónvarpsþáttum, byggðum á bókunum. Dust of Dreams - Steven Erikson bbbbm Önnur sería sem fyllilega stenst samanburðinn við bækur Martins er Malazan Book of the Fallen eftir kanadíska mann- og fornleifafræðinginn Steven Erikson. Erfitt er að lýsa efni bókanna, en þær gerast í ímynduðum heimi þar sem guðir og goð- sagnakenndar skepnur ganga um heiminn og blanda sér í málefni konungs- og keisaradæma. Dauðlegir einstaklingar taka illa í þessi afskipti og milli þess sem þeir berjast sín á milli þá rífast þeir og slást við hina afskiptasömu guði. Sérþekking Eriksons í mannfræði gagnast honum vel, en lýsingar hans á ímynd- uðum þjóðum og þjóðflokkum og trú þeirra og menningu eru afar vel útfærðar. Dramatíkin í bókum Eriksons er öll stórbrotnari og epískari en hjá Martin, þar sem persónulegt drama leikur stærra hlutverk. Þegar hafa níu bækur komið út í seríunni og er aðeins ein eftir, en fé- lagi Eriksons, Ian Cameron Esslemont, sem skapaði heiminn með honum, er byrjaður að skrifa bækur í sama heimi sem lofa góðu. Dust of Dreams er áðurnefnd níunda bók í flokknum og heldur áfram frásögninni af baráttu manna og hálfguða við hinn geðveika og valdasjúka Bæklaða Guð. Bækur Eriksons, eins og reyndar Martins líka, eru grundaðar í mjög tragískri sýn á heiminn og á mannlegt eðli og eru frábært dæmi um sótsvarta fantasíu. Erlendar bækur Eymundsson 1. Caught - Harlan Coben 2. Deeper Than the Dead - Tami Hoag 3. Worst Case - James Patter- son 4. The Five Greatest Warriors - Matthew Reilly 5. The Wedding Girl - Made- laine Wickham (Sophie Kin- sella) 6. Freedom - Jonathan Fran- zen 7. Innocent - Scott Thurow 8. Purge - Sofi Oksanen 9. The Chronicles of Narnia - C.S. Lewis 10. The First Rule - Robert Crais New York Times 1. Dead or Alive - Tom Clancy & Grant Blackwood 2. The Confession - John Gris- ham 3. Cross Fire - James Patter- son 4. The Girl Who Kicked the Hornet’s Nest - Stieg Lars- son 5. Full Dark, No Stars - Steph- en King 6. Freedom - Jonathan Fran- zen 7. Port Mortuary - Patricia Cornwell 8. The Help - Kathryn Stockett 9. Squirrel Seeks Chipmunk - David Sedaris 10. Fall of Giants - Ken Follett Waterstone’s 1. Jamie’s 30-minute Meals - Jamie Oliver 2. A Week in December - Seb- astian Faulks 3. One Day - David Nicholls 4. The Fry Chronicles - Steph- en Fry 5. Awakened - P.C. Cast & Kristin Cast 6. Sister - Rosamund Lupton 7. Life and Laughing - Michael McIntyre 8. Life - Keith Richards 9. The Return: Midnight - L.J. Smith 10. Kitchen: Recipes from the Heart of the Home - Nigella Lawson Bóksölulisti Lesbókbækur Allir einræðisherrar haga sér eins. Þeirkoma styttum af sjálfum sér fyrir áhverju torgi og fyrirskipa að myndir afþeim skuli hanga á hverju heimili. En Kim Il-sung, forseti Norður-Kóreu, tók þetta allt saman skrefinu lengra. Hann áttaði sig á því að til að ná fullu valdi yfir þjóðinni þyrfti hann að not- færa sér mátt trúarbragðanna. Hann lét loka kirkjunum, banna Biblíuna og fjarlægja allt það sem með einhverjum hætti gæti minnt á kristni. Síðan kynnti hann annan guð til sögunnar: Sjálfan sig. Þetta gerðist ekki á einni nóttu. Heilaþvott- urinn stóð yfir árum og áratugum saman. Kynslóð fram af kynslóð. Í fyrstu fóru fjölmiðlarnir, undir hans stjórn, að tala um hann og son hans og til- vonandi arftakann Kim Jong-il í sífellu. Segja frá atvikum þar sem þeir komu við sögu sem gátu í raun ekki verið túlkuð nema sem kraftaverk. Snjór bráðnaði og blóm blómstruðu þar sem þeir gengu. Og þetta var aðeins byrjunin. Í bókinni Nothing to Envy - real lives in North Korea, sem kom út í haust, segir banda- ríski blaðamaðurinn Barbara Demick frá bældri þjóð sem umheimurinn hefur gleymt. Demick byggir bók sína m.a. á viðtölum við fjölda flótta- fólks og eigin upplifun en hún hefur lengi verið fréttaritari Los Angeles Times og búið í Suður- Kóreu. Virðingarvert að njósna Eftir valdatöku Kim Il-sung var komið upp þéttu neti njósnara í landinu. Í sérhverju fjölbýlishúsi var einhver sem njósnaði um nágranna sína og gaf stjórnvöldum skýrslu. Börn voru hvött til að klaga foreldra sína. Bannað var að ferðast, svo mikið sem milli húsa, án sérstaks leyfis. Skylda var að bera barmmerki með andliti leiðtogans, hafa myndir af þeim feðgum uppi á vegg og dusta ryk af þeim með sérstökum klút. Stjórnvöld áttu (og eiga) alla fjölmiðla og stjórnuðu alfarið upp- lýsingaflæði til landsins. Fréttir af illsku Suður- Kóreubúa og Bandaríkjamanna voru tíðar. Allar kvikmyndir sem sýndar voru fjölluðu um gæsku feðganna og gleðina sem fylgdi kommúnism- anum. Margt smátt gerir vissulega eitt stórt. Þjóðin varð bældari með hverri kynslóð. Hvergi var óhætt að ræða opinskátt um skoðanir sínar. Því var best að þegja og vera stilltur. En að því kom að hjól efnahagslífsins stöðv- uðust og það dimmdi yfir Norður-Kóreu í orðsins fyllstu merkingu þar sem rafmagn var af skornum skammti. Á tíunda áratugnum var matarskortur orðinn tilfinnanlegur. Á meðan á þessum hörm- ungum stóð lést leiðtoginn mikli, Kim Il-sung. Mörgum kom reyndar á óvart að maðurinn væri allur, því var hann einmitt það, maður, en ekki guð? Upprisa ekki útilokuð Áróðursvélin fór á yfirsnúning. Fleiri styttum af leiðtoganum mikla var komið fyrir á torgum. Þar átti fólk að koma saman og syrgja. Ákveðið var að forsetinn skyldi halda titlinum fram yfir andlátið. Dagatalinu var breytt, tímatalið hófst nú á fæð- ingarári Kim Il-sung en ekki Krists. Í kvikmynd sem sýnd var um allt landið skömmu eftir að hann dó var gefið í skyn að Kim Il-sung myndi snúa aftur ef þjóð hans syrgði af nægri innlifun. Þjóðin var svo beygð af hungri, hafði svo lengi verið alin upp við dýrkun feðganna að uppreisn var ekki möguleg. Í þrjár kynslóðir hafði fólkið kynnst því að mótmælti það einhverju sem frá valdhöfunum kom, yrði refsingin hörð og myndi ná til foreldra þeirra og barna. Að flýja kom því sjaldnast til greina. Þá áhættu tóku þó einhverjir og í Nothing to Envy er talað við marga Norður- Kóreumenn sem hafa flúið heimalandið síðustu tvo áratugi. En lífið sem beið þeirra í Suður-Kóreu var ekki það ævintýri og sá griðastaður sem flestir von- uðust eftir. Tungumálið var ekki lengur eins, matarvenjur voru orðnar allt aðrar og útlit fólks- ins ólíkt enda Suður-Kóreumenn vel aldir í ára- tugi á meðan frændur þeirra í norðri höfðu liðið mikinn skort. Í sextíu ár hafði Suður-Kórea fetað allt aðra leið, var vestræn og framandi. Flótta- fólkið var flest án allrar menntunar, átti erfitt með að fá vinnu og fóta sig í nýja landinu. Kim Jong-il var enn við völd í fyrra, líklega síðasti einræðisherrann sem tuttugasta öldin gat af sér. Myndir af arftakanum og syninum Kim Jong-eun áttu að vera komnar upp á vegg á norð- urkóreskum heimilum fyrir áramótin. Og barm- merkin á brjóstkassann fljótlega. Leiðtoginn Kim Il-sung heilsar þjóð sinni á öllum torgum borga og bæja Norður-Kóreu enn þann dag í dag. Reuters Öruggast að þegja og vera stilltur Stórundarlegir þessir Norður-Kóreumenn. Fylkja sér um valdasjúka einræðisherra sem hafa kallað hungursneyð yfir þjóð sína oftar en einu sinni. Hvers vegna lætur fólkið allt þetta yfir sig ganga? Hvers vegna flýr það ekki land? Sunna Ósk Logadóttir sunna@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.