SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Page 47

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Page 47
9. janúar 2011 47 Órætt landslag málað á tvo veggi stofunnar ogsvo hangir þar skáldsaga, sem aðeins er til ítveimur eintökum, handskrifuð með smáuog fínu letri í stórum ramma. Það er rithöfundurinn sjálfur sem býr til skreyting- arnar í íbúð sinni við Bergþórugötuna. Guðmundur Óskarsson fékk íslensku bókmennta- verðlaunin í fyrra fyrir skáldsöguna Bankster, en lét vera að senda frá sér bók með flóðinu fyrir jólin. Hann sendi hinsvegar vinum og fjölskyldu orðhviður eða örsögur úr bókinni Vaxandi nánd, innrammaðar og handskrifaðar. „Ég sendi hverjum eina sögu og reyndi að finna sögu sem átti við,“ segir hann. „Maður gefur nú ekki það margar gjafir, ég held þær hafi ekki verið nema tólf. Svo gaf ég Bjarna [Bjarnasyni rithöfundi] og Katrínu [Júlíusdóttur ráðherra] slíka gjöf þegar þau héldu upp á að hafa verið ár saman. Þau fengu sögu þar sem eldri maður er með yngri konu, hann vaknar og áttar sig á aldursmuninum, og hafði tekið eftir tveim örum – það verður svona blóðsuguelement.“ Hann þagnar. „Ég passaði að taka fram á kortinu að þetta væri vel meint,“ bætir hann við og hlær. Annars eru gjafainnkaupin í föstum skorðum. „Ég fer yfirleitt í Guðstein fyrir afa og Sigurbogann fyrir ömmurnar, frúarbúð á horni Laugavegar og Bar- ónsstígs – þar fást sápur og pakkar í baðherbergið. Svo spyr ég mömmu hvað hana vanti í stellið. Nema ég ákvað að gera það ekki núna, eins og ég sagði þér, heldur gaf fólki tímann. Það er það sem maður á minnst af. Og þannig hefur allt árið verið – maður hefur bara verið að splæsa tíma.“ Hann kemur færandi hendi með te í bollum og fjórar stangir af Caramel-súkkulaði, sest í sófann sem stofan hverfist um og bítur í hálsmjótt súkkulaðið. – Hvert er hlutverk sófans? „Það er mikilvægt,“ svarar Guðmundur hátíðlega. „Þetta er lykilhúsgagn, hér situr maður og borðar. Ég bý ekki heima hjá mér í þeirri merkingu, framan af býr móðirin þar sem maður á heima og þegar ég flutti að heiman leit ég því ekki á þetta sem heimili. Ég fékk mér ekki eldhúsborð fyrr en í sumar, fimmta árið sem ég bý hér; þetta er meira vinnustaður, ekkert sjónvarp og ekkert sem truflar.“ – Þegar ég boðaði komu mína sagðist þú verða í vinnunni til fimm. „Já, í Landsbankanum,“ segir hann. „Ég hef reyndar verið að velta fyrir mér rithöfundarstarfinu. Ég hef aldr- ei áttað mig á því. Það er svo fjarlægt mér að hugsa um það sem starf – það er fáránleg tilhugsun. Ég er sískrif- andi og hef skrifað frá því ég man ekki hvenær, þó að það hafi ekki alltaf verið markvisst, þá býr þetta innra með manni – þetta er gróið við mann.“ – Líturðu þá á þig sem frístundahöfund, eins og Elías Mar kallaði það? „Ég geri þetta reyndar ekki í frístundum. Skrifin eru mikilvægust af öllu. Þetta ár hef ég verið mikið með vin- um mínum; ég ákvað að taka eitt rólegt ár og gefa tíma. En þegar ég sinni hugmyndum er það af alvöru og þá skrifa ég með endalok í huga, þá sker ég allt annað frá. Það gerist ósjálfrátt, þannig að ég myndi aldrei, þótt ég standi í brauðstriti frá átta til fimm, kalla mig frístundahöfund.“ – Öfugt við það sem margir halda var þér ekki sagt upp hjá bankanum, eins og Markúsi í Bankster? „Nei, það tók því ekki, ég var hvorki nógu hátt settur né nógu hátt launaður, það hefði ekki sparað mikið og ekki verið neitt statement.“ – Komu bókmenntaverðlaunin flatt upp á þig? „Njah,“ svarar Guðmundur beggja blands. „Jú, þau gerðu það nú, en ef maður undrast þeg- ar eitthvað gott kemur fyrir mann, hvernig á maður þá að bregðast við því slæma. Ég reyni frekar að vera opinn fyrir þessu góða. Það getur komið manni úr jafnvægi, en það er ekki það versta. Ég held það megi læra af sigrum, en ég held það sé erfiðara en af ósigrum. Frændi minn talaði um það þegar hann slátraði mér í skák í gamla daga, að maður lærði ekkert á því að vinna – betra væri að tapa vel og lengi. Svo kom bara heimaskítsmát!“ – Er eitthvað á teikniborðinu? „Þrátt fyrir að ég hafi verið afslappaður síðasta árið, þá hef ég skoðað ýmsar hugmyndir og nú er ég búinn að söðla dýrið. Ég ætla að reyna að koma út bók í ár, þó að það sé ekkert mjög líklegt.“ – Er það bókin sem þú ætlaðir að skrifa þegar Bankster knúði dyra? „Nei, hún verður aldrei skrifuð held ég, tíminn leið og maður breytist. Eins og með þessa hérna...“ Hann bendir á innrömmuðu skáldsöguna á veggnum. „Hún kemur aldrei út – maður les hana stundum sér til skemmtunar, málsgrein og málsgrein.“ – Hvaða saga er þetta? „Þetta er sveitasaga sem gerist í þorpi úti á landi og var æfing í því að loka hringnum – ná að ljúka við eina sögu sem manni finnst vera heild. Ég skrifaði hana árið 2003 og það var lærdómsríkur tími. Hún nefnist Andspænis, ekki spyrja mig af hverju.“ – Kom hún fyrir í Vaxandi nánd? „Jú, það eru glefsur úr henni þar. Ég sneri upp á þrjár fjórar senur – nokkurskonar best of eða það sem ég gat sætt mig við.“ – Talarðu um óskrifuð verk? „Ég hef enga hjátrú í þeim efnum.“ – Hvað ertu að skrifa fyrir næsta ár? „Ég er að skrifa feðgasögu um son ís- lensks listmálara, sem er ekki raunveru- legur, en á örugglega fyrirmynd, jafnvel fyrirmyndir. En þessi listmálari sló í gegn eftir andlátið og ég er að skoða hvaða möguleika sonur hans og alnafni á í lífinu. Strákurinn vinnur bara við að sinna arf- leifð föður síns, þannig fær karlinn eig- inlega tvö líf, eða kannski 1,9 og strákurinn 0,1. Sagan gerist á tveimur tímum, en bara á einum stað og það líða sextíu ár á milli. Þau fara til borgar í Frakklandi um vorið og eru þar í einhvern tíma, svo kemur strákurinn aftur þangað. Það er grunnurinn, en það er tæplega ramminn. Ég veit bara ekki nógu mikið um hana sjálfur ennþá.“ – Þú hefur ekki teiknað söguna upp? „Nei, það er meira að segja óljóst hvernig hún endar. En það eru möguleikar...“ Texti Pétur Blöndal pebl@mbl.is Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is Síðasta orðið… Guðmundur Óskarsson ’ Ég held það megi læra af sigrum, en ég held það sé erfiðara en af ósigrum. Tíminn er það sem maður á minnst af

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.