SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Page 12

SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Page 12
12 22. maí 2011 Laugardagur Börkur Gunnarsson er á kaffihúsi hér í Can- nes og það var verið að rukka mig fyrir kaffi- bollann sem ég fékk mér. Hann kostar 1.640 krónur. Einn kaffibolli! Þriðjudagur Þórunn Erlu Valdi- marsdóttir Bannað að vera hræddur við að vera skotinn, það er það sama og að þora ekki að lifa. Guts meðan við tórum, krakkar. Föstudagur Tómas Hermannsson Ætla að fá mér aðeins í kvöld bara til öryggis ef það verður heims- endir á morgun. Eva María Jónsdóttir Reynir að muna að hún er manneskja en ekki kennitala. Það getur verið gott þegar bankaviðskipti eiga sér stað. Angela Rawlings … til Þórsmörk! Fésbók vik- unnar flett Svokallaðar SLR-myndavélar hafa nafn sitt af því að í þeim er spegill sem beinir því sem linsan nemur í sjónop vélarinnar. Fyrir vikið Þegar ljósmyndarinn svo smellir er spegill- inn felldur niður og því sést ekkert í rétt á meðan myndin er tekin. Myndavélaframleiðendur hafa lengi velt fyrir sér lausn á þessu og í A- myndavélalínu Sony er notaður sér- stakur spegill sem hleypir þorra ljóssins í gegnum sig. Það gefur ýmsa möguleika, þar á meðal það að taka myndir hraðar en almennt í áþekkum vélum annarra framleið- enda, þ.e. vélum sem ætlaðar eru áhugamönnum og lengra komnum. Þannig getur A55 tekið 10 ramma á sekúndu og A33 7 ramma. Tækninni fylgja fleiri kostir, til að mynda hvað varðar vídeómynda- töku, en einnig eru vélar sem nýta hana minni um sig og léttari. Ég spái því hér að ekki sé langt í að aðrir framleiðendur feti sömu braut, enda gefur þessi nýbreytni ýmsa möguleika sem sannast á þessari framúrskarandi myndavél. Sony A55T Framúrskarandi framsækin myndavél Þrívíð leikjatölva Um fátt er meira talað nú um stundir en þrívídd og þá aðallega þrívídd í sjón- varpi og bíóum. Það hlýtur að koma að því að leikjatölvur stígi inn í þriðju vídd- ina fljótlega eða hvað? Svarið við því er að þegar er til á markaði leikjatölva með þrívíðum skjá, Nintendo 3DS, og hún þrælvirkar. Græjur Árni Matthíasson arnim@mbl.is Það hljómar hálfótrúlega að hægt sé að koma þrívíðum skjá fyrir á leikjatölvu sem ætluð er fyrir lófa en það er einmitt það sem Nin- tendo-menn hafa gert og gert bráðvel. Tölvan er reyndar aðeins þyngri en eldri gerðir af Nintendo DS og þykkari, en það munar ekki svo miklu og hún virkar traustari fyrir vikið. Nýjung í tölvunni, og einstaklega vel heppnuð sem slík, er nýr stjórntakki sem kemur í stað fyrir gamla örvatakkann á vinstri hlið tölvunnar. Krossinn er sem sé ekki lengur til stað- ar heldur hringlaga hnappur sem maður rennir til eftir því sem þarf. Tekur smátíma að átta sig á því en eftir það er það bara snilld. Skjárinn á tölvunni er frábær, 3,5" með 800x240 díla upp- lausn sem er í meira lagi að maður held- ur, en í þrívíddinni er raunupplausnin 400x240. Hægt er að velja um hvort maður vill þrívídd eða tvívídd, maður rennir til hnappi, og ég býst við að marg- ir muni skrúfa niður í þrívíddinni á með- an þeir eru að venj- ast henni. Þrívíddin skilar sér eðlilega ekki nema leikirnir séu þrívíddarleikir. Hún kom mjög vel út í þeim leikjum sem ég próf- aði, Super Street Fighter IV 3D og Pi- lotwings Resort 3D, þá sérstaklega í fyrrnefnda leiknum, en þar kemur nýi stýripinninn líka sterkur inn.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.