SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Qupperneq 34

SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Qupperneq 34
34 22. maí 2011 Á Cannes mæta yfir fjögur þúsund blaðamenn, um þrjátíu þúsund manns úr kvikmyndabransanum og fjöldi kvikmyndaáhugamanna er á annað hundrað þúsund. Hápunkturinn á hátíðinni fyrir fólkið á hverjum degi er ekki sýningin sjálf eða verðlaunaaf- hendingin eða neitt þessháttar, nei, það er gangur stjarnanna á rauða dreglinum. Þessi stutti göngutúr goð- anna á teppinu. Það er ekki að ástæðulausu, því þarna eru leikararnir ekki í karakter, það er öðrum karakter en þeim sem kallast þeir sjálfir. Þarna gefst okkur almúganum tækifæri til að sjá fólkið á bakvið þá þúsund karakt- era sem þau hafa leikið. Þarna eru þau raunveruleg. Þau klæðast fínasta dressi og gefa línuna til okkar almúg- ans um hvernig við ættum að klæða okkur. Skartgripirnir sem stjörnurnar bera eru fyrirmynd kvenna og fyrirmynd karla þegar leitað er að gjöfum fyrir þær. Stjörnurnar hafa venjulega mestu tískujöfra sér til aðstoðar þegar kemur að því að velja rétta klæðnaðinn. Og þó að þetta sé stutt ganga, geta menn klikkað og dottið. Óvarkárt fólk getur líka verið með buxurnar illa girtar og eitthvað af efni kjólsins gæti hafa klemmst í nærbuxnastrengnum og þá munu þau mistök lifa lengur en afrek manneskjunnar á hvíta tjaldinu. Fyrir suma hefur rauði dregillinn reynst erfiðari en hvíta tjaldið. Það er jafnan í mörg horn að líta á ströndinni. Hér eru íslensku leikararnir Theódór Júlíusson og Margrét Helga Jóhannsdóttir að kynna mynd Rúnars Rúnarssonar, Eldfjall. Bæði einkasnekkjur og skemmtiferðaskip stoppa við Cannes á meðan há- tíðinni stendur. Á stundum er einsog umsátur lystisnekkja um borgina eigi sér stað enda ryðjast millarnir í herflokkum inní borgina og láta kampavínið freyða og kavíarinn flæða. Fólk sem Cannes sig Bak við tjöldin Myndir: Halldór Kolbeins Texti: Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Ingvar Þórðarson og Friðrik Þór Friðriksson kátir á rauða dreglinum. Það er misgott hald í kjólum stjarnanna.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.