SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Síða 38
38 22. maí 2011
Frægð og furður
Baráttan fyrir fullu sjálfstæði íslensku þjóðarinnar frá Dönum var
löng og ströng. Margar kynslóðir unnu settu marki brautargengi og
áfangasigrar unnust, einn af öðrum. Danakonungur færði okkur
stjórnarskrá á þjóðhátíðinni árið 1874, við fengum heimastjórn 1904
og 1918 varð Ísland frjálst og fullvalda ríki með sambandslögunum
sem svo voru nefnd. Í krafti þeirra tóku Íslendingar stjórn flestra
mála í eigin hendur – nema hvað utanríkismálin voru áfram á hendi
Dana. Svo var lýðveldi stofnað á Þingvöllum 1944 og með því voru öll
mál komin í höfn, að segja mátti. Eitt stóð þó út af borðinu; hand-
ritamálið sem var meira táknræns eðlis en annað. Menningararfurinn
var enn í Danmörku og honum varð að ná heim til að undirstrika
sjálfstæði þjóðarinnar.
Á 16. öld gerðu norrænir fræðimenn sér ljóst að á Íslandi væri að
finna handrit að sögum sem vörðuðu fjarlæga fortíð, segir Gísli Sig-
urðsson prófessor í grein á Vísindavef Háskóla Íslands. Þegar fram
liðu stundir voru nokkur þessara handrita send utan, en 1685 hófHandritin heim. Helge Larsen, menntamálaráðherra Dana, færir Gylfa Þ. Gíslasyni Flateyjarbók 1971
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Myndasafnið 1971
Gylfi og
handritamálið
K
onurnar í París þykja hafa vissan
glæsileika yfir sér og líta vel út og er
Inès de la Fressange gott dæmi um
fáguðu Parísarkonuna. Það er því við
hæfi að þessi fyrsta franska ofurfyrirsæta og
andagift Karls Lagerfeld hafi verið að senda frá sér
bók, sem fjallar um stíl hinnar ekta Parísardömu.
De la Fressange leggur áherslu á að það sé ekki
bara hægt að eyða peningum til að verða Par-
ísardama. „Þetta er hugarástand,“ segir hún í
viðtali við fréttastofu AFP. „Það eru svo margir
sem vilja alltaf kaupa svo mikið. Ég segi, taktu
heldur gæði fram yfir magn.“
Bókin La Parisienne kom út í Frakklandi síð-
asta haust og hefur selst í meira en 100.000 ein-
tökum og er núna komin út á ensku undir nafn-
inu Parisian Chic. De La Fressange gengur vel
þessa dagana því fyrir utan að hafa gefið út bók-
ina vinnur hún hjá Roger Vivier og skrifaði nýlega
undir samning við L’Oréal.
Stíll frekar en tíska
Og hver er leyndardómurinn að því að líta út eins
og ekta Parísardama?
„Franskar konur vilja ekki vera of mikið í tísku.
Þær vita hvað hæfir þeim. Þetta snýst meira um
stíl en tísku. Við konur eigum að klæða okkur upp
fyrir okkur sjálfar, ekki til þess að sýnast heldur
til þess að líða betur. Ef manni líður vel lítur mað-
ur betur út,“ segir hún í öðru viðtali.
De la Fressange segir að franskar konur eldist
líka vel af því að þær feli ekki aldur sinn. „Þær eru
ekki með lýtaaðgerðir á heilanum. Í Bandaríkj-
unum líta allir út fyrir að vera 25 ára. Fólk er með
á heilanum að vera ungur,“ segir hún og útskýrir
nánar. „Það er ekkert sem gerir mann eins elli-
legan og það að reyna alltaf að líta út fyrir að vera
ungur. Það er mjög ljótt þegar konur neita að eld-
ast,“ segir de la Fressange, sem er 53 ára.
Hún er ekki hætt fyrirsætustörfunum því í
október síðastliðnum gekk hún á sýningarpall-
inum fyrir vin sinn Lagerfeld hjá Chanel.
„Franskar konur segjast svo oft
engan áhuga hafa á tísku svo það
kom mér mjög á óvart að bókin
hefði selst í fleiri eintökum en
Harry Potter og ævisaga Keith
Richard.“
Í bókinni útskýrir hún hvað
það þýði að vera Parísardama.
Hún telur þar upp nokkrar
reglur eins og: Blandaðu saman stílum
og ekki láta hlutina passa of vel saman,
kannaðu ný fatamerki og ef þér líður
eins og flíkin sé rétt og þé líður vel í
henni, notaðu hana þá.
Nauðsynlegar flíkur
Sumar flíkur segir hún nauðsynlegar í góð-
an fataskáp. Aðsniðinn jakka þurfa allar að
eiga (mælir með að nota belti við hann), líka
regnfrakka (helst Burberry), dökkbláa peysu
(fágaðra en að vera í svartri peysu) og hlýra-
bol. Svo má ekki gleyma litla svarta kjólnum,
fullkomnu gallabuxunum (rétt eins og salt
passa þær með öllu) og loks er nauðsynlegt að
eiga leðurjakka (bjargar alklæðnaði frá því að
vera of íhaldssamur).
De la Fressange segir að konur yfir fertugu eigi
ekki að vanrækja sjálfar sig. „Ekki festast í stíln-
um sem þú varst í á fertugsaldri“ því það „lætur
þig líta út fyrir að vera eldri en þú ert“. Hún vill
að konur yfir fimmtugu klæðist ekki loðfeldum,
nema þær vilji líta út fyrir að vera „verðlaunaeig-
inkonur“.
Kýs Converse-strigaskó
Varðandi skófatnað þá kýs hún sjálf að nota
flatbotna skó að jafnaði frekar en hælaskó og
er mjög hrifin af Converse-strigaskóm.
„Mörgum konum finnst alveg ómögulegt
að fara út án háu hælanna. Það er ótrúlegt.
Ef þær fara bara í háhælaða skó vegna þess að
þeim finnst þær of litlar, þá skiptir það ekki aðra
Bók Inès de la Fressange er happafengur
fyrir allt áhugafólk um fágun, franska
tísku og tímalausan stíl að hætti Par-
ísarkvenna.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Inès de la Fressange og mað-
ur hennar, Denis Olivennes,
voru prúðbúin á frumsýningu á
yfirstandandi kvikmyndahátíð
í Cannes.
Reuters
Alveg ekta
Parísardama