SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Síða 47

SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Síða 47
22. maí 2011 47 Þ að er ekki erfitt að finna húsið sem rithöf- undurinn og skáldið Einar Már Guðmunds- son býr í, jafnvel þó að um Völundarhús sé að fara. Hann stendur nefnilega fyrir utan heimili sitt í Miðhúsum í Grafarvogi. Og leiðin liggur beint í bílskúrinn, sem raunar var aldrei bílskúr. „Við keyptum húsið fokhelt, það var þegar fólk hafði enn sjálfsbjargarviðleitni,“ segir hann. „Þá urðum við að steypa plötu fyrir bílskúrinn sem teiknaður hafði verið inn á lóðina – einhverra hluta vegna var annað ólöglegt. Svo þegar ég fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, sem var bæði ánægja og heiður, þá byggði ég vinnustofu fyrir verðlaunaféð. En fyrstu fimm árin skrifaði ég inni á heimilinu, þar sem eldhúsið er núna.“ Það vaxa bækur í stöflum á borðum, hillum og á gólfinu, landslagið Manhattan bókamannsins, og gluggatjöldin gul eins og sólin. Einar Már stendur á gólfinu með gleraugun í hendinni, ákveðinn í fasi og skýrmæltur, þó að hann skeyti ekki alltaf um að klára setningarnar – að minnsta kosti ekki fyrr en hann er tilbúinn með nýjar. „Ég vann alltaf heima og þá var gott að vera til staðar fyrir öll börnin,“ segir hann. „Ég lærði að þetta með að mega ekki trufla skáldið er mikill mis- skilningur. Ég segi frekar eins og skáldið, þegar gesturinn spurði hvort hann væri að trufla: „Já, þakka þér fyrir það.““ Einar Már er sestur og hallar sér aftur í stólnum, enn með gleraugun í hendinni og sleppir þeim ekki, þó að hann þurfi ekki að brúka þau næsta kastið. „Við þekkjum hugmyndina um skáldið sem þarf þögnina. Það var aldrei inni í myndinni hjá mér. Börn, tónlist og smáhávaði hefur aldrei truflað mig. Þegar ég var í Menntaskólanum við Tjörnina, þá var ég hinsvegar talsvert á Landsbókasafninu og kynntist mörgum skemmtilegum mönnum. Ef Breiðhyltingar fóru niður í bæ, þá voru þeir bara í bænum. Ég var líka aðeins á söfnum þegar við bjuggum úti, en þegar við komum heim aftur, þá vorum við í ansi litlu hús- næði miðað við barnafjölda, þannig að ég fékk mér um tíma vinnustofu á Grettisgötunni. Kannski er pósturinn svangur er tileinkuð þessum tíma. Þetta að vera heima og vera að heiman, hvort tveggja hef- ur sína kosti, en hér er ég heima og að heiman, þannig að mér tókst greinilega að fá botn í málið!“ – Truflar næðið þig ekkert? „Næðið?“ spyr hann undrandi. „Nei, nei.“ Hann grettir sig. „Þegar ég lít til baka, þá held ég að ég hafi frá upphafi ákveðið að ég myndi aldrei kenna aðstæðunum um ófarir mínar.“ Svo hlær hann. „Ég yrði sjálfur að skapa mér mínar aðstæður og aðstöðu. Þetta er það sem ég vil starfa við og maður er ekkert að velta einverunni fyrir sér. Ef starfinu fylgja ókostir eða óhamingja, þá verður bara svo að vera. Ég hef eiginlega ekki annað markmið en að skrifa og er þakk- látur fyrir að hafa næði til þess. Þó að ég sé sjálfur félagsvera og njóti mín ágætlega með öðru fólki, þá er ég líka einfari. Mamma sagði að ég hefði frá upphafi verið sjálfum mér nógur. Og það að geta unnið lengi einn og einbeitt sér hefur aldrei þvælst fyrir mér. Maður lærir hinsvegar að laga sig að starf- inu. Í fyrra voru liðin 30 ár síðan ég gaf fyrst út og Thor [Vilhjálmsson] átti 60 ára rithöfundarafmæli!“ Hann rótar hressilega í hárinu á sér, sem er jafn- úfið eftir sem áður. „Þó að mér finnist þessi tími hafa liðið óskaplega hratt, þá hef ég gengið í gegnum byltingu í tölvu- tækni. Ég handskrifaði þegar ég byrjaði, notaði Pluto-blýant, Parker-penna, línustrikuð blöð og hvít blöð. Núna furðar maður sig á þolinmæðinni. Það var ekkert tiltökumál, ef það voru ein eða tvær villur, að skrifa síðuna bara aftur. Ég var sérvitur um hvernig handritið leit út, átti nokkrar týpur af skriftum – þú sérð leifarnar af þessum tíma í þessum blaðabunkum.“ Hann bendir á nokkrar af þeim plöntum sem blómstra í glugganum. „En talandi um hvað maður lærir,“ segir hann, stendur upp og gengur um gólf. „Stundum barðist maður alltof lengi við sömu hugmyndina, gafst aldrei upp og að lokum var það kannski orðin þráhyggja. En nú veit ég að ef ég stoppa í einhverju, þá legg ég það bara frá mér og geri eitthvað annað. En ég hugsa að enginn höfundur hafi ná- kvæmlega sömu vinnubrögðin. Það er nokkuð sem menn móta og þróa með sjálfum sér.“ – Þú sendir frá þér bók á þriðjudag- inn kemur, sem nefnist Bankastræti núll. Um hvað fjallar hún? „Ef maður getur sagt um hvað bók fjallar þá á maður ekki að skrifa hana,“ svarar Einar Már. „Að einhverju leyti speglar Bankastræti núll óreiðu okkar tíma. Þetta er hvorki skáldsaga, smá- sögur né greinar og heldur ekki ljóð. Samt finnast, að ég held, þættir úr öll- um þessum formum í bókinni. Ég kalla þetta sögur úr veruleikanum. Líklega er ég að meina að veruleikinn sé sagnaform, að ekki þurfi að skálda upp sögur við núverandi aðstæður. Maður segir bara frá veruleikanum og úr því verður skáldskapur. Hann er það lygilegur, meina ég. Veruleikinn. Mér finnast þetta áhugaverð landamæri, og ég sem skáld er líka að blanda mér í veruleikann með öðrum hætti. Sagnalistin er ekkert verndað svæði, skilurðu? Þess vegna beiti ég því sem ég kann í ritlist til að kafa í veruleikann, samtím- ann og samfélagið. Nú eru bara þannig tímar.“ Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is Síðasta orðið … Einar Már Guðmundsson Veruleikinn er lygilegur ’ Ef maður getur sagt um hvað bók fjallar þá á maður ekki að skrifa hana. Að einhverju leyti speglar Bankastræti núll óreiðu okkar tíma.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.