SunnudagsMogginn

Ulloq
  • Qaammatit siuliiOctober 2011Qaammatip tullia
    MoTuWeThFrSaSu
    262728293012
    3456789
    10111213141516
    17181920212223
    24252627282930
    31123456
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Qupperneq 4

SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Qupperneq 4
4 2. október 2011 Til sölu mjög vel staðsett iðnaðar- og fiskvinnsluhús að Hafnargötu 28 í Grindavík, stendur við hliðina á nýju tjaldstæði Grindavíkur. Húsið er samtals 1.380 m , sem skiptist í 974 m iðnaðarhús/fiskvinnslu á einni hæð og 404 m viðbyggingu á tveimur hæðum. Hlutar hússins er í útleigu í dag. 6 innkeyrsludyr, þ.a. 5 nýjar. Eignin er til þess að gera tilbúin undir fiskvinnslu, mjög lítið þarf að gera til að endurnýja vinnsluleyfi. Gott tækifæri fyrir nánast hvaða starfssemi sem er. Verð: 65.000.000 kr. Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Reykjaness í síma 533 4455 og/eða www.neteignir.is Til sölu iðnaðar- og fiskvinnsluhús í Grindavík Wangari Maathai barðist lengi fyrir endurheimt skóga í Kenía og grasrót- arhreyfingin sem hún stofn- aði, Græna beltið, tók einn- ig til hendinni í nágrannalöndunum, m.a. Eþíópíu og Sómalíu. Undir merkjum Græna beltisins hafa milljónir trjáa verið gróðursettar. Maathai hélt því alla tíð fram að skógareyðing hefði gríðarleg áhrif á allt lífríkið og þar á meðal afkomu fólks. Maathai tók því virkan þátt í umræðunni um orsakir hung- ursneyðarinnar sem nú geysar í Austur-Afríku og hefur kostað þús- undir manna lífið. Maathai sagði í sumar að nauð- synlegt væri að takast á við orsök þurrkanna, sem væri ofnotkun á landi. „Við höfum talað um hnign- un landgæða í áratugi,“ sagði Maathai í útvarpsviðtali. „Því mið- ur hafa stjórnvöld á þessum svæð- um ekki hlustað og ekki tekið áhyggjur okkar alvarlega.“ Matthai sagði gríðarstóra skóga fellda til að brjóta land til beitar, án alls framtíðarskipulags. Þetta hefði mjög alvarleg áhrif á árnar, þeim væri veitt á tún og næðu því ekki til þeirra svæða sem nú hefðu orðið hvað verst úti í þurrkunum. Maathai talar á ráðstefnu í Danmörku 2009, klædd norskri lopapeysu. Reuters Beitarlönd þurrka út skóga og valda neyð M örg stríð eru háð vegna bar- áttu um náttúruauðlindir sem eru að verða af skorn- um skammti. Ef við ein- beittum okkur að því að vernda auðlindir okkar þyrfti ekki að berjast um þær. Þannig er náttúruvernd nátengd því að halda friðinn í heiminum. Við sem erum meðvituð um þetta berum því mikla ábyrgð. Við megum ekki þreytast, við megum ekki gefast upp, við verðum að halda áfram.“ Þessi orð kenísku baráttukonunnar Wangari Maathai, er hún tók við frið- arverðlaunum Nóbels árið 2004, lýsa baráttu hennar í hnotskurn. Maathai var óþreytandi við að vekja athygli á mik- ilvægi náttúruverndar, kvenréttinda og friðar og taldi þessa þætti þétt samantv- innaða. Maathai, sem fæddist árið 1940, lést í vikunni eftir baráttu við krabba- mein. Lífsgæðin aukin Wangari Maathai stofnaði árið 1977 Græna beltið, hreyfingu sem miðaði að því að vernda umhverfið og nýta náttúr- una á sjálfbæran hátt, en gríðarleg skóg- areyðing hafði orðið á stórum svæðum í Kenía, líkt og víðar í Afríku. Á löngu tímabili höfðu upprunalegir skógar í fjöllunum í Kenía verið ruddir og í stað- inn gróðursettar fljótsprottnar trjáteg- undir. Einhæf ræktunin hafði mikil áhrif á allt lífríki skóganna og þurrkar og eðju- flóð úr bröttum fjallshlíðunum gerðu svæði óbyggileg. Maathai hafði alla tíð trú á að konur væru lykillinn að því að vernda umhverf- ið, þær væru ábyrgðarmenn hvers heim- ilis, ræktuðu matvælin, söfnuðu eldiviði og þekktu jarðargæðin. Því ákvað hún að uppfræða konur í sveitum landsins um náttúruvernd, hvernig væri hægt að nýta landið á sjálfbæran hátt og uppskera auk- in lífsgæði um leið. Með því að fá kon- urnar í lið með sér við skógrækt og að berjast fyrir bættum aðgangi að hreinu vatni myndaðist öflug hreyfing, aðallega kvenna, sem enn í dag nýtur mikillar virðingar meðal almennings í Kenía og víðar í Afríku. „Konur eru orðnar þess meðvitaðar að þær, frekar en stjórnvöld, eru varðmenn umhverfisins,“ sagði Maathai í ræðu árið 1994. Pólitíska lífið En Wangari Maathai var þó umdeild og lenti ítrekað upp á kant við stjórnvöld. Á áttunda áratugnum, er fyrrverandi eig- inmaður hennar var í kosningabaráttu til þings, fór hún að móta pólitískar hug- myndir sínar frekar og tengja þær við umhverfisvernd og atvinnusköpun. En frami eiginmannsins þáverandi var fyr- irferðarmikill. Maathai sat þó ekki auð- um höndum og úr varð stofnun Græna beltisins. Eftir að hafa skilið við eig- inmanninn, sem varð mikið fjölmiðla- mál, fór hún að einbeita sér að eigin frama í stjórnmálum. Það gekk ekki átakalaust fyrir sig. Um tíma var hún of- sótt af pólitískum andstæðingum, svo mjög að hún treysti sér ekki til að hafa börnin sín hjá sér. Hún komst loks á þing árið 2002 og hlaut þá yfirburðakosningu. Eitt helsta baráttumál Maathai alla tíð var aukið lýðræði en lýðveldið Kenía var ungt að árum og spilling gegnsýrði stjórnmálin. Þó að Græna beltinu, með sínum mannúðlegu baráttumálum, væri víðast hvar vel tekið af almenningi litu stjórnvöld á hreyfinguna sem ógn við ríkjandi öfl og lögðu því oft stein í götu hennar. Konur varðmenn umhverfisins Baráttukonan og friðarverðlaunahafinn Wangari Maathai látin Wangari Maathai fagnar með samlöndum sínum er hún kom heim frá Noregi þar sem hún hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2004. Þessi mikla baráttukona var 71 árs þegar hún lést. ReutersSpjallþáttastjórnandinn Oprah Winfrey og Hollywoodleikarinn Tom Cruise fagna Ma- athai er hún hlaut friðarverðlaun Nóbels. Vikuspegill Sunna Ósk Logadóttir sunna@mbl.is Wangari Maathai fæddist í Nyeri í Kenía árið 1940. Hún var fyrsta konan í Aust- ur- og Mið-Afríku til að fá doktorspróf. Hún nam líf- fræði við Mount St. Scho- lastica-háskólann í Kansas 1964 og lauk svo mast- ersprófi frá háskólanum í Pittsbourgh. Doktorsprófið tók hún svo við háskólann í Nairobi. Fékk fyrsta doktorsprófið Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti gleðst með Wangari Maathai.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar: 02. október (02.10.2011)
https://timarit.is/issue/337702

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

02. október (02.10.2011)

Iliuutsit: