SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Blaðsíða 8

SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Blaðsíða 8
8 2. október 2011 Þ ótt störfum í sjávarútvegi fari fækkandi vegna hagræðingar þarf það ekki að þýða að störfum í tengdum greinum þurfi að fækka. Að mati Þórs Sigfússonar hjá Íslenska sjáv- arklasanum er mikið af tækifærum ónýtt í sjávarútvegi og tengdum greinum. „Af skýrslum um þróun í fiskeldi, meðal annars frá Noregi, má ráða að vöxtur í fiskeldi verði allt að 8% á ári á heimsmarkaði,“ segir Þór. „Vöxtur í tæknibúnaði fyrir meðal annars fiskvinnslu verði um 5-6% á ári, útflutn- ingur á ýmissi þjónustu tengdri hafinu um 5% og vöxtur í þróun lýsisafurða um 10%. Þá er talið að mestur vöxtur verði í marg- háttaðri sjávarlíftækni og hagnýtingu líf- virkra efna hafsins eða allt að 15-30% á ári. Þrátt fyrir góða viðleitni margra hefur Ís- lendingum ekki tekist að ná sama vexti í mörgum nýjum greinum eins og mörg ná- grannalönd okkar. Þessu má breyta.“ Fókus umræðunnar um sjávarútvegsmál er nánast aðeins á kvótakerfinu og hvernig rík- ið geti komist í hagnað sjávarútvegsfyrir- tækjanna. En kannski væri vænlegra að horfa til hliðargreina og vaxtarmöguleika þar. „Vaxtarmöguleikar í veiðum á hafinu eru 0%. Þær eru ekki að fara að vaxa, né er störfum þar að fara að fjölga,“ segir Þór. „En það eru mjög miklir möguleikar í hlið- argreinunum. Fyrir fimmtán árum komu Norðmenn hingað og vildu læra af okkur. Í dag eru þeir búnir að taka fram úr okkur á mörgum sviðum. Nú eru teikn á lofti um uppgang í fiskeldi hérlendis. Kraftmikil fyr- irtæki, bæði ný og þau sem fyrir eru, stefna á umtalsverðar fjárfestingar í fiskeldi. Miðað við nágrannalönd okkar eins og Noreg og jafnvel Danmörku hefur fiskeldi vaxið lítið hérlendis á undanförnum 10 árum. Tap sem varð á þessum rekstri fyrir röskum 20 árum virðist lengi hafa dregið þrótt úr greininni. En það má ekki heldur bara einblína á fisk- eldið. Við verðum að hafa eggin í mörgum körfum. Möguleikarnir eru miklir í að breyta sjávarafurðum í lyf og heilsubótarefni. Líf- virk efni hafsins eru auðlind sem við erum komin stutt á veg með að nýta. Norðmenn áætla allt að 10% fjölgun starfa í norskri útrás þjónustu í tengslum við hafið. Íslensk fyrirtæki veita mun fjölbreyttari þjónustu við erlendan sjávarútveg en flesta grunar; fjármálaþjónustu, skipa- og vinnslu- tækni, þjónustu iðnaðarmanna, slippþjón- ustu, eftirlit á hafsvæðum og fleira. Nú má gera ráð fyrir að um 3-400 manns starfi við útflutning á þjónustu af þessu tagi hérlendis en ef við náum að efla okkur á þessu sviði í samræmi við áætlanir Norðmanna þá getur störfum í þessum greinum fjölgað um allt að 10-15% á ári næsta áratug. Áætla má að framleiðsla tengd lýsi og fiskimjöli vaxi um að minnsta kosti tíu pró- sent á ári næsta áratug. Í lýsisframleiðslu eru klárlega miklir möguleikar fyrir Íslendinga sem fyrirtæki á borð við Lýsi eru einmitt að nýta um þessar mundir. Fiskimjölið verður sífellt verðmætari auðlind prótíns sem án efa verður meira nýtt sem fæðubótarefni.“ Að mati Þórs er sátt um sjávarútveginn grunnurinn að því að vöxtur og framþróun verði í hliðargreinunum. Það verði að eyða óvissunni. Þegar engin er sáttin og fyr- irtækin óviss um framtíðarskipulag sjáv- arútvegsmála þá fjárfesti þau ekki í framtíð- inni. Þá fjárfesti fáir í þróunarstarfsemi. „Í fyrsta lagi verður að nást sátt um útveginn enda kemur fjárfesting í nýrri tækni þaðan. Þetta hefur komið skýrt fram í athugun Ís- lenska sjávarklasans á þeim 70 tæknifyr- irtækjum sem eru starfandi hérlendis og flytja út tæknibúnað. Nú eru merki um að þessi þróunarstarfsemi sé að flytjast til Nor- egs og víðar, meðal annars í þróun í líf- tækni, tækjabúnaðar og fleira. Þar eru fjár- munir til staðar í langtímafjárfestingar af þessu tagi. Önnur vísbending um vissa stöðnun á innanlandsmarkaði er að síðustu þrjú ár er lítið sem ekkert um nýstofnun fyrirtækja í framleiðslu á tækni fyrir sjávarútveg og fiskvinnslu. Á síðasta áratug voru að minnsta kosti tvö fyrirtæki sett á laggirnar á ári í þessari grein. Í öðru lagi þurfa fjárfestingarsjóðir og bankar að auka áhuga sinn á fyrirtækjum í sjávarklasanum. Setja þarf á laggirnar fjár- festingarsjóð sem sérhæfir sig í þessum greinum,“ segir Þór. Vaxtarmöguleikar eru miklir í greinum tengdum sjávarútvegi Vikuspegill Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Atvinnumögu- leikar hafsins Það hefur ekki verið mikill vöxtur í fiskeldi en nú virðist vera að vakna áhugi á því. Starfsmenn í fiskeldisverkefnum eru um 250 í dag en þar af eru um 150 hjá Fjarðalaxi. Að sögn Þórs Sigfús- sonar er búist við að heildartala starfa í fiskeldisverkefnum tvö- faldist á næstu 2-3 árum. Sjöfn Sigurgísladóttir er einn af framkvæmdastjórum Matorku sem er í eigu hennar, Stefaníu Katrínar Karlsdóttur og Ragnheið- ar Ingu Þórarinsdóttur. Um 30 manns starfa hjá fyrirtækinu. „Íslendingar framleiða 5.000 tonn á ári með fiskeldi,“ segir Sjöfn. „Ef við horfum til Danmerk- ur þá framleiða Danir 50.000 tonn á ári þrátt fyrir miklu verri aðstæður en við höfum hér. Danir eiga takmarkaða orku og tak- markað vatn. En við erum með nóg af vatni og orku. Ef litið er til Noregs þá framleiða Norðmenn milljón tonn á ári. Þetta er eiginlega óskiljanlegt að við séum svona aftarlega í fiskeldinu. Neikvæð umræða um fiskeldið hefur ekki hjálpað grein- inni. Það virðist vera í lagi að tölvu- fyrirtæki fari margsinnis á haus- inn án þess að menn hætti í þeim bransa. En það að fyrstu fiskeld- isfyrirtækin sem stofnað var til fyrir mörgum árum hafi farið á hausinn, þá er eins og margir hafi dæmt þá iðn vonlausa að eilífu. Í heiminum í dag kemur helm- ingur þess fisks sem er neytt úr fiskeldi. Kvótarnir eru bara að minnka og þannig mun þróunin vera víðast hvar. Aftur á móti er eftirspurn eftir fiski í heiminum mikil. Við erum bjartsýn og erum með 3000 tonna fiskeldisstöð í undirbúningi,“ segir Sjöfn. Vöxtur í fiskeldi á ÍslandiÞróun starfa innan sjávarklasans Fiskeldi Tæknibúnaður Lífvirk efni Omegavinnsla Þjónusta og sala Flutningaþjónusta 2500 2000 1500 1000 500 0 2000 2005 2010 2015 2020 2025 Fjöldi starfa Íslenski sjávarklas- inn er samstarfsvett- vangur fyrirtækja sem eru í haftengdri starfsemi. Þar eru fiskvinnslufyrirtæki, þjónustufyrirtæki, rannsóknarfyrirtæki, fyrirtæki við matvæla- vinnslu, sjávarlíf- tæknifyrirtæki, út- vegsfyrirtæki og fleiri. Íslenski sjávarklas- inn varð til í framhaldi af rannsóknum við Háskóla Íslands á síðasta ári. Sjávar- klasinn

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.