SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Blaðsíða 31
2. október 2011 31
L
andsmönnum gefst tækifæri á að sjá Hallgrím
Ólafsson leikara fara á kostum í nýjum sjónvarps-
þætti á RÚV þessa dagana, Kexvexmiðjunni, og
brátt mun honum bregða fyrir í öðrum nýjum sjón-
varpsþætti, Heimsenda. Hallgrímur er sviðsljósinu ekki
ókunnur þar sem hann hefur frá unga aldri fengist við tónlist
og var hann ófeiminn við að stíga á svið í grunnskólanum á
Akranesi, en hann er borinn og barnfæddur Skagamaður.
Hallgrímur hefur verið áberandi í leiklistarheiminum síðan
hann lauk námi við leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið
2007. Eftir útskrift starfaði hann með Leikfélagi Akureyrar
og fór m.a. með hlutverk í sýningunum Óvitum og Fló á
skinni. Árið 2008 gerði hann síðan samning við Borgarleik-
húsið og hefur verið áberandi í stórum sýningum leikhússins
á borð við Fjölskylduna, Gauragang, Fólkið í blokkinni og
fjölda annarra sýninga. Hann er í sambúð með Matthildi
Magnúsdóttur lögfræðingi og saman eiga þau soninn Elmar
Frey. Hallgrímur á eina stúlku úr fyrri sambúð, Hörpu Líf.
Hallgrímur er mikill áhugamaður um bæði stangveiði og golf
og eru sumrin undirlögð þessum áhugamálum hans. Á vet-
urna er aftur á móti vinnan fyrirferðarmeiri þó að honum
þyki líka gaman að elda góðan mat.
signy@mbl.is
Skeggi safnað fyrir Heimsenda. Á æskuheimilinu að Skarðsbraut 7. Bræðurnir Hallgrímur, Gunnar Hafsteinn og Jón Valur í bleikjuveiði á Hornströndum.
Fjölskyldan á góðri stund. Hallgrímur með unnustu sinni Matthildi, syn-
inum Elmari Frey og dótturinni Hörpu Líf.
Það næsta sem ég komst góðærinu var að prófa fjórhjól í veiðiferð.
Félagarnir Halli, Jói og Gói stjórna brekkusöng á írskum dögum á Akranesi.
Golfari og
góður kokkur
Myndaalbúmið
Hallgrímur Ólafsson leikari gerð-
ist svo ljúfur að hleypa okkur í
myndaalbúm sitt í þessari viku.
Var kosinn Hátónsbarkinn 1990. Fyrsti fiskurinn veiddur og áhuginn kviknar.
Ólíkur sjálfum sér á útskriftarmyndinni.
„Hér sést einfaldlega hvað ég var afspyrnu
fallegt fermingarbarn,“ segir Hallgrímur.
„Mér finnst ég svo töff pabbi þarna,“ segir Hallgrímur.