SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Blaðsíða 10
10 2. október 2011 Þ að var stutt viðtal við Steingrím J. Sigfússon, fjár- málaráðherra, í síðdegisútvarpi RÚV snemma í vik- unni, þar sem hann var staddur í Washington DC til þess að sitja árlegan fund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans. Að sögn fréttamannsins, Sveins Helgasonar, var síðasta helgi annasöm hjá ráðherranum, sem fundaði stíft með matsfyrirtækjum og fulltrúum erlendra banka og sjóða, með það að markmiði að efla traust fjárfesta á íslensku efnahagslífi og telja þeim trú um að í lagi væri að lána Íslendingum peninga. Ekki var annað að heyra á ráðherranum en hann væri alsæll með stöðu Íslands, því hann sagði m.a.: „Hvað Ísland varðar og andrúmsloftið í okkar garð, þá er mjög ánægjulegt að vera hér staddur.“ Og ráðherrann beinlínis hló af gleði og bætti svo við: „Það er mikill munur frá því í fyrra, svo maður tali nú ekki um frá því í hittifyrra.“ Í hvaða tómi er fjár- málaráðherrann og formaður VG? Er hann í engu sambandi við þann raunveruleika sem við Íslendingar lifum og hrær- umst í? Einmitt um það leyti sem fjármálaráðherrann hló af einskærri gleði í útvarps- viðtalinu, yfir því frábæra viðmóti sem mætti honum á fundunum í Washington, var gerð opinber skýrsla Al- þjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum - WEF) þar sem m.a. er lagt mat á heil- brigði banka í 143 löndum. Skemmst er frá því að segja, hvað sem líður sölumennsku Steingríms J. í Washington, að íslensku bankarnir fá falleinkunn og eru við það að verma botnsætið – þeir eru í 141. sæti af 143 sæt- um. Aðeins Úkraína og Írland eru neðar á listanum. Ætli þeir hjá Alþjóðaefnahagsráðinu þurfi ekki að fara á kynn- ingarnámskeið hjá íslenska fjármálaráðherranum, svo þeir átti sig á að allt er í lukkunnar velstandi hjá okkur Íslendingum? Á mánudag héldu Samtök atvinnulífsins (SA) fund um at- vinnumálin undir yfirskriftinni „Ryðjum hindrunum úr vegi – atvinnulíf í uppnámi“. Á þeim fundi var ríkisstjórnin gagnrýnd harkalega fyrir aðgerðaleysi. Í máli Kolbeins Kolbeinssonar, framkvæmdastjóra Ístaks, kom fram að fyrirtækið hefði gert einn verksamning hér á landi á þessu ári. „Atvinnuleysið er að festast í sessi og það er afleiðing þessarar stefnu sem er í gangi, að það sé öruggast að gera ekki neitt,“ sagði Kolbeinn. Það er einmitt mergurinn málsins. Ríkisstjórnin er ekki að gera neitt og íslenskt atvinnulíf og þorri landsmanna líður fyrir að- gerðaleysið. Þrjúþúsundogsexhundruð fleiri Íslendingar fluttu frá Íslandi á árunum 2008-2010 en til landsins og fólksflóttinn hefur bara haldið áfram að vaxa það sem af er þessu ári. En þau Steingrímur og Jóhanna halda áfram að berja sér á brjóst, mæra hvort annað fyrir vel unnin störf og afrek, þegar staðreyndin er sú, að orð eru eitt og athafnir annað, þegar þau skötuhjú eiga í hlut. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segist bæði sár og svekkt yfir yfirlýsingum Samtaka atvinnulífs- ins. Heilsíðuauglýsing birtist hér í Morgunblaðinu á föstudag, þar sem lýst var eftir Jóhönnu Sigurðardóttur og fundarlaunum heit- ið. Fundarlaunin eru sögð vera afnám verðtryggingar heimilisl- ána, gamalt og rækilega gleymt baráttumál forsætisráðherrans, frá því að hún var óbreyttur þingmaður. Forsætisráðherrann fannst um stundarsakir á fimmtudags- kvöldið þar sem hún sat fyrir svörum í Kastljósinu. Ekki það að svör hennar væru með þeim hætti að landsmenn gleddust sér- staklega, en augljóslega var hún mjög glöð yfir eigin frammi- stöðu, rétt eins og Steingrímur. Það fékk nú lítið á blessaða kon- una að fregnir af fjöldauppsögnum héldu áfram að berast á fimmtudag og í nýliðnum mánuði misstu um 180 manns atvinnu sína. Oddvitar ríkisstjórnarinnar þjást af alvarlegu sambandsleysi við þjóð sína og lítil von um að þar verði einhver breyting á. Því miður. Sambandsleysi oddvitanna Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Jóhanna Sigurðardóttir Steingrímur J. Sigfússon ’ Ríkisstjórnin er ekki að gera neitt og íslenskt atvinnulíf og þorri landsmanna líður fyrir aðgerðaleysið. Eva Jóhannsdóttir, handrits- höfundur og leikskólakennari, lýsir deginum hjá sér við bleiu- skiptingar og kattauppeldi. 07:30 Vekjaraklukkan byrj- ar að hringja og snooze- puttinn er settur á sinn stað þar sem hann sinnir vinnu sinni næstu 40 mínúturnar. Bara þægilegt! 08:10 Fer buguð úr þreytu á fætur, klæði mig og bursta í mér tennurnar. Horfi á mig í speglinum og ákveð að skella engu framan í mig, og til hvers líka? Ég vinn á leikskóla með yngstu börnunum og þeim er alveg sama. 08:30 Mætt til vinnu og tilbúin í bleiurnar. 14:20 Kaffitíminn að byrja og ég hringi í afa til að athuga hvort hann verði ekki örugg- lega heima á eftir svo ég geti horft með honum á Leiðarljós. Já fólk, Leiðarljós! Til er ungt fólk sem kann að meta gleðina sem þessir þættir eru. 16:30 Bruna til afa því það eru fimm mínútur í þáttinn. Afi talar við mig um hvað hann sakni Rogers mikið og hvað honum finnst Michelle vera mikill vælukjói. Svo ræðum við aðeins Revu og hvort hún muni nokkuð deyja einu sinni enn og hvers vegna Beth sé svona leið- inleg. Afi minn er æðislegur kall! 17:10 Hringi í Möggu vin- konu mína til að athuga hvort ég geti fengið lánaðan fótbolt- ann hennar í klukkustund svo ég og vinir mínir í CISV (Child- ren International Summer Villages) getum spilað fótbolta til heiðurs Peace One Day. Go- ogle it! 17:15 Kem heim og knúsa kettlinginn minn, gef honum nýtt vatn og segi hvað ég sé stolt af honum að hann sé að kúka á réttum stað í lífinu. Hann var yfirgefinn af móður sinni strax eftir fæðingu svo hann kom til mín og Lilju vin- konu minnar alveg ekki með neitt á hreinu. Það tók okkur samt ekki meira en tvo sólar- hringa að fá hann til að kúka á réttum stað. Ég sagði einmitt við Lilju um daginn að ef við eignuðumst barn saman þá myndi það barn vera bleiulaust fyrir eins árs afmælið! 18:00 Mætt í Vesturbæj- arskóla til að sparka bolta. Á staðnum voru stelpur sem voru ekki miklir áhugamenn um fótbolta svo eftir smá- spark ákváðum við að fara í skotbolta. Besta ákvörðun dagsins því það var rosalega gaman! 19:10 Kem heim og knúsa kettlinginn minn, hækka í öllum ofnum og fer undir teppi með tölvuna í fanginu. 19:30 Rista mér átta brauðsneiðar með túnfisksal- ati og skinkusalati til skiptis. Stelst til að gefa kisa smábita. 20:00 Undirbý fund sem ég er að fara að halda með Oddrúnu vinkonu minni. Hún er líka í CISV og við er- um að skipuleggja sólarhring af fyrirlestrum og gleði fyrir árlegan ungliðafund CISV-ara á Íslandi sem verður haldinn næstu helgi. 23:10 Oddrún var að fara, ég poppa mér og fer upp í herbergið mitt með tölvuna til að glápa á þætti og hafa það kósí. Góða nótt. Dagur í lífi Evu Jóhannsdóttur leikskólakennara Eva Jóhannsdóttir horfir á Leiðarljós í sjónvarpinu og finnst það gaman. Svo spilar hún líka fótbolta. Knúsa kettlinginn

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.