SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Page 13
2. október 2011 13
Hér er áherslan á mittið og langa leggi.
Léttleikandi efni í svarthvítu.
Ítalski hönnuðurinn Frida Giannini er listrænn
stjórnandi Gucci-tískuhússins.
Græni liturinn var áberandi í sýningunni.
Fylgihlutir af ýmsu tagi hafa alltaf
haft mikið vægi í línum Gucci.
Stórkostlegur partíkjóll
í anda þriðja áratugarins.
Reuters
Hið fornfræga tískuhús
Gucci fagnar níræðis-
afmæli í ár og gætir
áhrifa frá upphafs-
árum hússins í
sumarlínunni 2012.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
H
ið fornfræga ítalska tískuhús Gucci fagnar
níræðisafmæli í ár. Voru því allra augu á
sýningu Gucci á nýliðinni tískuviku í Míl-
anó en sýningin var á fatalínu komandi
vors og sumars. Tískuhúsið var stofnað árið 1921 en
baksviðs sagði listrænn stjóri Gucci, Frida Giannini, að
það væri algjör tilviljun að innblásturinn kæmi frá skreytilist
(Art Deco) þriðja áratugarins. Áhrif frá þessum djassaða áratug voru
áberandi á tískuvikunni í New York en útfærslan var sérstaklega vel
heppnuð hjá Giannini. „Ég er mjög hrifin af flottu háhýsunum frá
þessum tíma í New York,“ sagði hönnuðurinn við Style.com baksviðs
og miðað við línuna virðist hin fræga Chrysler-bygging vera í sérstöku
uppáhaldi hjá henni. Litirnir sem hún notaði voru svartur, hvítur og
brons auk þess sem græni liturinn var áherslulitur í línunni.
Gucci-safn opnað í Flórens
Veisluhöldin héldu áfram þegar fyrsta Gucci-safnið var opnað í borg-
inni Flórens í vikunni. Í þessari frægu ítölsku borg stofnaði Guccio
Gucci lítið fjölskyldufyrirtæki sem einbeitti sér að leðurvörum og
ferðatöskum. Frá upphafi var lögð áhersla á gott handverk. Hug-
myndina að fyrirtækinu fékk hann eftir að hafa starfað á hinu fína
Savoy-hóteli í London. Á meðal þess sem er til sýnis í safninu eru
frægar töskur með handfangi úr bambus úr eigu Sofiu Loren og
Jackie Onassis. Ennfremur er þarna að sjálfsögðu gott úrval af
fötum og fylgihlutum úr sögu tískuhússins og fjölmargar ljós-
myndir. Að lokum má ekki gleymast að minnast á leður-
ferðatöskurnar, golftöskurnar og Cadillac-bílinn en allt er
þetta skreytt með hinu þekkta Gucci-lógói.
Grafískt munstur á glitrandi jakka.
Tíska
Glys að
hætti
Gucci