SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Qupperneq 38

SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Qupperneq 38
38 2. október 2011 K raftbirtingarhljómur íslenskrar tónlistar barst á öldum ljósvaka svo um munaði þegar Íslendingar blönduðu sér í leikinn á vettvangi Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva. Þetta var á því herrans ári 1986; sama ár og til tíð- inda bar að Reykjavíkurborg varð 200 ára og leiðtogar stórveldanna komu hingað til skrafs og ráðagerða um heimsfrið. Báðir þeir atburð- ir voru á síðari hluta ársins en óhætt er að segja að Eurovision hafi verið stórmál fyrri helftar árs. Auglýst var eftir lögum í undankeppni og þau síðan síuð út – svo eftir stóðu tíu. Mörg góð lög komust í þau undanúrslit; svo sem lag Jakobs Frí- manns Magnússonar og Valgeirs Guðjónssonar Mitt á milli Moskvu og Washington og Vögguvísa eftir Ólaf Hauk Símonarson. Niðurstaða dómnefndar varð hins vegar að Gleðibanki Magnúsar Eiríkssonar væri besta sendingin og úr varð að ICY-flokkur Pálma Gunnarssonar, Eiríks Haukssonar og Helgu Möller hélt yfir höf til að leiða til lykta hið löðurmannlega mál að vinna keppnina. Enginn vafi var um sigur, enda var þjóðarsorg á Íslandi þegar 16. sæti var staðreynd. Höfundar og flytjendur Eins lags enn, framlags Íslendinga í Eurovision árið 1990 þar sem lagið náði fjórða sæti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kraftbirting- arhljómurinn Myndasafnið 13. febrúar 1990 S elena Gomez fæddist 22. júlí árið 1992 og er því 19 ára gömul. Hún er bæði vinsæl söng- kona og leikkona auk þess að vera í sviðsljós- inu fyrir að vera kærasta hins ofurvinsæla unglingapoppara Justins Biebers. Gomez er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Alex Russo í Disney-þáttunum Wizards of Waverly Place. Hún hefur leikið í kvik- mynd um galdrafólkið og líka sem dæmi í sjónvarps- myndinni Princess Protection Program við nokkrar vinsældir. Í ár lék hún í rómantísku gamanmyndinni Monte Carlo, m.a. á móti Leighton Meester úr Gossip Girl. Hún varð þó fyrst fræg fyrir leik sinn í barna- þáttunum Barney & Friends þar sem segir frá æv- intýrum vinalegrar fjólublárrar risaeðlu. Tvær gullplötur Hún er aðalsöngvari hljómsveitarinnar Selena Go- mez & the Scene, sem hún stofnaði en sveitin hef- ur gefið út tvær plötur, Kiss & Tell og A Year Without Rain, sem báðar hafa náð gullplötusölu. Lögin „Nat- urally“ og „Who Says“ hafa hins vegar bæði náð plat- ínusölu. Gomez leggur sitt af mörkum til góðgerðarmála en árið 2008 var hún gerð að velgjörðarsendiherra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). Það var tilkynnt í vikunni að Gomez yrði kynnir á Tónlistarverðlaunahátíð MTV í Evrópu, sem haldin verður 6. nóvember í Belfast. Víst er að Bieber verður líka á staðnum en hann er tilnefndur til verðlauna í þremur flokkum. Hún hefur áður verið í hlutverki kynnis á tónlistarhátíð en hún afhenti kærastanum verðlaun á slíkri hátíð í Toronto í Kanada á dögunum. Óvænt stefnumót í Staples Center Rómantíkin blómstrar hjá parinu en Bieber skipulagði alveg einstakt stefnumót við Gomez, sem var óvænt í þokkabót. Hann hvorki meira né minna en leigði Staples Center, heimavöll Los Angeles Lakers- körfuboltaliðsins, og höfðu þau leikvanginn alveg fyrir sig. Bieber var búinn að panta mat fyrir þau af þekkt- um veitingastað á leikvanginum og svo bauð hann líka Selena Gomez er ungstjarna sem hef- ur slegið í gegn bæði í sjónvarpi og á sviði, rétt eins og kærastinn Justin Bieber. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Justin Bieber og Selena Gomez mættu saman á Myndbanda- verðlaunahátíð MTV í Los Angeles í ágústlok. Reuters Frægð og furður Selena syngur og leikur

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.