SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Síða 40
40 2. október 2011
Konur þurfa ekki alltaf að vera í megrun. Sýndu
hóf en troddu reglulega í þig því sem þig langar í.
Hætt að laumast
É
g veit að á mánudagskvöldið hefði
ég ekki átt að borða snakk eftir að
hafa fengið mér hollan og góðan
fisk. Í raun hefði ég heldur ekki
átt að borða ljúffengu bananasúkulaðikök-
una sem ég fékk mér eftir fiskinn. En ég
gerði það bara af því mig langaði til þess.
Já, og kannski hafði þetta verið dálítið erf-
iður mánudagur svo ég skal játa að hafa að
einhverju leyti leitað huggunar í sykurinn.
En það er bara allt í lagi. Auðvitað setur
maður sér einhver mörk og klárar ekki
heilan snakkpoka og tvær ídýfudósir á
hverju einasta kvöldi. En aldrei ætla ég að
þurfa að laumast út í bakarí eða stelast
endalaust í eitthvað gott. Það þýðir
nefnilega ekkert nema það að einn
daginn springur maður á limminu.
Gott og vel. Síðastliðið haust fór ég í
smá átak og það gerði mér mjög gott. Ég
náði mínu markmiði en eftir það hef ég
bara ekki nennt meiru. Mér finnst gott að
hreyfa mig til að styrkja mig og draga úr
vöðvabólgu og ég reyni að fá mér ferskan
safa og ávexti á hverjum degi. Reyni líka að
fá mér góðan morgumat og úða ekki í mig
kökum, kexi og sælgæti allan daginn. En að
lifa mestmegnis á kotasælu, hrökkbrauði
og skyri er bara ekki fyrir mig.
Það að borða er miklu meira en næring.
Það er félagsleg athöfn þar sem vinir og
fjölskylda sameinast til að spjalla og njóta
og gleðja bragðlaukana. Mér finnst sorgleg
sú stefna að konur þurfi alltaf að vera í
megrun og megi ekkert leyfa sér. Að þær
þurfi næstum því að fá sér súkkulaði lok-
aðar inni í skáp þar sem enginn sér og að
ímynd samfélagsins sé þannig að ósköp
venjulega vaxnar konur þori ekki að fara í
sund. Mér finnst líka áhyggjuefni að fæða
ef til vill einn daginn stúlku inn í þetta
samfélag öfgafullra krafna um útlit.
Ég sæi fyrir mér gömlu meistarana fá til
sín tískusýningarmódel til að mála. Þeir
myndu líklegast biðja hana að borða ávext-
ina sem þeir notuðu í kyrralífsmyndinni
fyrr um morguninn og biðja hana að koma
aftur eftir 50 kg. Svo að njótum þess að
vera eins og við erum. Kvenlegur vöxtur er
alls ekkert til að skammast sín fyrir. Sýn-
um um leið vissulega skynsemi og hugsum
vel um heilsuna. En reynum í það minnsta
að missa okkur ekki algjörlega í óraunhæf-
um kröfum um líkamsútlit sem að stórum
hluta eiga uppruna sinn á Hollywood-
færibandinu. Þær konur vinna í raun við að
halda sér í formi (og jú jú leika líka), mikið
sem ég öfunda þær ekki neitt. Nema jú
kannski af góða veðrinu allan ársins
hring …
Lífið og
tilveran
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is’
En aldrei ætla ég að
þurfa að laumast út í
bakarí eða stelast
endalaust í eitthvað gott.
Lífsstíll
Síðustu daga
hefur heldur
betur rignt á
landsmenn og
inn á milli eins
og hellt væri úr
fötu. Haustrign-
ingin virðist
ekki ætla að
láta að sér hæða en hún getur
verið ósköp notaleg. Margir
finna fyrir dálítilli þreytu í enda-
lausri grámyglu og rigningu en
þetta veður getur líka verið
notalegt. Nú er rétti tíminn til að
njóta þess að slappa af uppi í
sófa á laugar-
dagseftir-
miðdegi og
lesa bók. Eða
sofa almenni-
lega út og
hlusta á regnið
meðan maður
rennir yfir helg-
arblöðin og tekur jafnvel morg-
unmatinn með sér í rúmið. Njót-
um þess að vera pínu löt og
slappa af þegar lítið er hægt að
vera úti.
Slakaðu á
Líttu á hend-
urnar þínar. Ef
þú ert með
hnefana
kreppta skaltu
opna lófana og
reyna að slaka
á. Notaðu jóga-
stellinguna Inana mudra, sem er
talin endurhlaða innri orku lík-
amans. Þú lætur fingurgóma
þumals og baugfingurs snertast
og heldur þeim þannig um stund.
Einbeittu þér að staðnum þar
sem fingurnir mætast.
1001 leið til að slaka á
Susannah Marriott
Salka
Kistan
Á löngum köldum vetrum vill kvef oft staldra
lengi við og angra okkur. Gott ráð við þrálátu
kvefi er að skera nokkrar lauksneiðar og setja á
disk og leyfa þeim að vera á náttborðinu yfir
nóttina.
Hvítlaukur er mikið notaður sem lækningajurt.
Eyrnabólgur má oft lækna með því að setja
sneiðar af hvítlauk í grisju og leggja við eyrun.
Hvítlaukur er einnig talinn halda vampírum í
hæfilegri fjarlægð.
Náttúruspilin, 48 góð ráð fyrir þig og umhverfið.
Guðrún Tryggvadóttir og Signy Kolbeinsdóttir.
Hvítlaukur og laukur er góður í ýmis konar matreiðslu en hann virkar líka fyrir heilsuna.
Morgunblaðið/Kristinn
Laukur og hvítlaukur
Það er allt morandi í tónlist þessa dagana og ís-
lenskt tónlistarlíf hreinlega kraumar og ólgar. Mikið
er gott að láta helling af góðri tónlist flæða enda-
laust inn í eyrun og gera daginn þannig ennþá betri.
Nýttu þér tónlistina til að létta þér lífið, spilaðu eitt-
hvað hresst sem kemur þér í gang á morgnana og
endaðu daginn á kertaljósum og notalegri tónlist.
Eyru stútfull af góðgæti
holabok.is/holar@holabok.is
Saga og þróun mannlífs
í Austur-Skaftafellssýslu
er hér í brennidepli.
Viðmælendurnir eru hjónin
Álfheiður Magnúsdóttir
og Gísli Arason, Ingibjörg
Zophoníasdóttir, Þorvaldur
Þorgeirsson og feðgarnir
Sigurður Bjarnason og
Einar Rúnar Sigurðsson.
Sannkallað ferðalag í tíma
og rúmi.
FRÁSAGNIR
AUSTUR-SKAFTFELLINGA